Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 15

Neytendablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 15
Stefna stjórnmálaflokkanna í neytendamálum rænum ríkjum starfrækir hið opinbera embætti umboðsmanns neytenda. Hann fjallar urn ýmis mikilvæg hagsmunamál neytenda, stendur að eigin rannsóknum og annast eftirlit með markaðssetningu. Mun flokkur þinn beita sér fyrir því að sambærilegt embætti verði sett á fót hér á landi? Framsóknarflokkurinn: Á 28. flokks- þingi Framsóknarflokksins, sem haldið var á þessu ári, var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Neytendavernd verði efld og samtök þeirra hér á landi verði styrkt, ekki síst með tilliti til þeirrar fákeppni sem hefur myndast í landinu og reglur um réttarstöðu neytenda verði gerðar sem skýrastar." Ekki var tekin afstaða til þess hvort stofna ætti til embættis um- boðsmanns neytenda, enda skiptir meiru að upplýsingagjöf til neytenda verði auk- in og að eftirlit með markaðssetningu, sem nú er í höndum Samkeppnisstofnun- ar, verði tryggt. Frjálslyndi flokkurinn: já. Samfylkingin: Já, það ætlar Samfylking- in gera, eins og fram kom í fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar þingmanns Samfylkingarinnar á Alþingi á dögunum til viðskiptaráðherra um embætti um- boðsmanns neytenda. Það er mikilvægt að embætti umboðsmanns neytenda verði sett á stofn og er það stór þáttur í að efla neytendavernd á íslandi, sem er eina norræna ríkið þar sem ekki er sér- stakt embætti umboðsmanns neytenda. Stofnun þessa embættis væri mikið fram- faramál fyrir neytendavernd og sigur fyrir öflugt starf Neytendasamtakanna. Því er mikilvægt að stjórnvöld átti sig á alvöru málsins og að þverpólitísk samstaða ná- ist um það en núverandi stjórnvöld hafa lítinn skilning sýnt neytendamálum og mikilvægi þeirra. Sjálfstæðisflokkurinn: Sjálfstæðisflokk- urinn hefur ekki ályktað um stofnun slíks embættis. Vinstri hreyfingin -grænt framboð: VG hefur ekki tekið afstöðu til þess sér- staklega hvort hér skuli stofnað slíkt emb- ætti. Við þekkjum til starfsemi embætta umboðsmanna neytenda sem og fleiri málaflokka á hinum Norðurlöndunum, s.s. umboðsmanna fatlaðra og aldraðra, sem ekki eru hér á landi. I reynd tengist spurningin umræðu um sjálft grundvall- arfyrirkomulagið, þ.e. hvort hér eigi að stefna að slíkum embættum á helstu málasviðum eða hvort fremur eigi að efla embætti umboðsmanns Alþingis, hið eina hérlendis með þeirri undantekn- ingu þó að hér er þegar við lýði embætti umboðsmanns barna. Við í VG erum opin fyrir því að ræða stofnun embætt- is umboðsmanns neytenda enda verði það liður í heildarstefnumótun að þessu leyti. Afstaða til þriggja lagafrumvarpa Spurning Neytendablaðsins: Þrjú laga- frumvörp, sem Neytendasamtökin telja afar brýnt að verði að lögum, hafa fengið umfjöllun á Alþingi án þess að ná fram að ganga. Um er að ræða frumvörp til laga um a) greiðsluaðlögun, b) ábyrgðar- menn, og c) innheimtustarfsemi. Hyggst flokkur þinn beita sér fyrir því að eitthvert þessara frumvarpa verði að lögum? Framsóknarflokkurinn: Á 28. flokks- þingi Framsóknarflokksins, sem haldið var á þessu ári, var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Sett verði lög um innheimtu- starfsemi sem tryggi að þóknun vegna innheimtuaðgerða sé sanngjörn." Frjálslyndi flokkurinn: Öll þessi mál eru áhugaverð, sér í lagi frumvarpið urn ábyrgðarmenn fyrir þann, sem hér heldur á penna. Hinsvegar verður bréf- ritari að hryggja ykkur með því, að hann þykist hafa gengið úr skugga um að ekk- ert frumvarp nái fram að ganga á þessu þingi. En koma tímar og koma ráð. Samfylkingin: Samfylkingin beitirsérfyr- ir því að þau verði að lögum. Samanber að flutningsmenn þeirra eru þingmenn Samfylkingarinnar. Þau eru þáttur í stefnu flokksins og við beitum okkur fyrir því að þau verði að lögum. Sjálfstæðisflokkurinn: Öll frumvörpin sem hér voru nefnd eru stjórnarand- stöðufrumvörp. Þingmeirihluti er ekki fyrir þessum frumvörpum á yfirstandandi þingi. Vinstri hreyfingin -grænt framboð: VG telur öll viðfangsefnin í nefndum frumvörpum mikilvæg og styður innihald þeirra a.m.k. að miklu leyti og á reyndar aðild að flutningi sumra þeirra. Við erum reiðubúin til að vinna á þinglegum for- sendum að umfjöllun um þessi mál eins og önnur sem til framfara horfa og stuðla að afgreiðslu þeirra. Sama gildir um fjöl- mörg önnur mikilvæg mál, þar á meðal ýmis þingmál sem þingmenn VG hafa flutt, sem beint eða óbeint varða hags- muni neytenda og almennings. NEYTENDABLAÐIÐ 1.TBL. 2003 15

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.