Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 20

Neytendablaðið - 01.04.2003, Blaðsíða 20
Suszuki Liana fékk 3,5 stig af 5 möguiegum fyrir þægindi í akstri. Hann fékkst hér á tæpa 1,9 m.kr. hjá Suzuki-bflum hf. Verðstýring framleiðenda Langt er frá því að raunveruleg frjáls samkeppni ríki á evrópska bifreiðamark- aðnum. Bílaframleiðendur í Evrópu hafa meiri markaðstruflandi völd en flestir neytendur gera sér grein fyrir. Þeir hafa sjálfir orðið að takmarka fjölda þeirra fyrirtækja sem selja og þjónusta bíla úr verksmiðjum sínum og komið þannig í veg fyrir eðlilega samkeppni. En kannski hefur mesta óréttlætið falist í því að framleiðendur hafa ákveðið út- söluverðið eftir markaðssvæðum. BEUC (samtök evrópskra neytendafélaga) hafa til dæmis bent á að nýr Volkswagen 75 PS Golf er 22% ódýrari í Danmörku en sama bílgerð í Þýskalandi (miðað við Chrysler PT Cruiser-bílarnir eru rúmgóðir og fá góða einkunn fyrir marga þætti. Hér fást þrjár gerðir á verðbilinu um 2,6-3,3 m.kr.m hjá Ræsi hf. verð án skatta). Ástæðan er verðstýring Volkswagen-verksmiðjanna. Þær telja að verðteygnin sé meiri í Þýskalandi, þar sé hægt að pína verðið hærra en í Danmörku. í undirbúningi hefur verið ný löggjöf innan ESB til að koma í veg fyrir þessar aðferðir framleiðenda og efla raunveru- lega samkeppni á bifreiðamarkaðnum en nú í febrúar frestaði framkvæmdastjórn ESB gildistöku hennar við mikil mótmæli neytendasamtaka. Frjáls samkeppni fær sem sé enn ekki að njóta sín á þessum vettvangi. Neytendasamtök innan Evr- ópusambandsins hafa lengi gagnrýnt bæði opinberan lagaramma um bílakaup og þessi óeðlilegu völd og aðferðir bíla- framleiðenda. Verðdæmi í lok febrúar 2003 birtu Evrópusamtök neytendafélaga (BEUC) skýrslu um verð á bifreiðum í löndum Evrópusambands- ins undanfarið hálft ár. Borið er saman verð bílanna án skatta til þess meðal ann- ars að endurspegla hvernig framleiðend- urnir stýra verði á markaðssvæðunum að verulegu leyti. Ódýrastir voru bílarnir í Finnlandi og síðan í Grikklandi og Hollandi. Reynslan sýnir að bílverð á Spáni og í Danmörku hefur líka að jafnaði verið einna lægst. Dýrastir eru bílar í Bretlandi (sem er í ESB en utan evrusvæðisins). Sé aðeins evrusvæðið skoðað eru flestar bílgerð- ir dýrastar f Þýskalandi og að hluta í Austurríki. Alls voru ákveðnar bílgerðir í 40 tilvikum dýrastar í Þýskalandi og 36 þeirra voru 20-42% dýrari þar en á nokkru öðru markaðssvæði í Evrópu. I Austurríki voru 20 bílgerðir a.m.k. 20% dýrari en annars staðar í Evrópu. Mismunur á verði bílgerðar af millistærð (Fiat Marea, klass D) reyndist í vissum tilvikum geta verið um 4.600 evrur (390.000 kr.) innan evrusvæðisins og allt að 6.000 evrur (510.000 kr.) ef skoðað var allt Evrópusambandið. Neytendur í mörgum löndum ESB geta því oft sparað sér umtalsverðar fjárhæðir með því að kanna málin og versla í þvf landi þar sem það er hagstæðast. En samkvæmt núgildandi reglum má bíla- sali í einu ESB-landi ekki opna útibú f öðru nema með leyfi framleiðenda og á þeirra skilmálum. Framtíðin Afnám ofurvalds framleiðenda 'á dreif- ingu bíla, sem reikna má með á næstu misserum, mun leiða til þess að neytend- ur í Evrópu geta reiknað með fjölbreytt- ara framboði bíla. Seljendur geta þá selt hvaða bílgerðir sem þeir vilja hvar sem er f Evrópu. Hefðbundnar bílaverslanir lenda hugsanlega í samkeppni við stór- markaði og verslanakeðjur. Sérfræðing- ar telja að samfara þessari samkeppni muni bílverð lækka, að Ifkindum fyrst og fremst á gerðum sem framleiddar eru í miklu magni á vegum stærstu framleið- endanna. Viðgerðir og viðhald bíla verða líka f frjálsara formi þegar væntanleg ESB- löggjöf tekur gildi. Samkvæmt tillögum um lagabreytingar f þessu efni verða framleiðendur að leyfa öllum verkstæð- um sem standast ákveðnar kröfur að þjónusta bílana. Alfa Romeo-bflarnir fá góða einkunn fyrir aksturshæfni og þægindi. Hér fengust fjórar gerðir á verðbilinu um 2-3 m.kr. hjá Alfa Romeo-umboðinu á íslandi. Kröfur neytenda Evrópusamtök neytendafélaga, BEUC, hafa lengi barist fyrir því að ESB setji nýjar reglur um sölu og þjónustu á bif- reiðum. Helstu atriðin sem BEUC vill fá í gegn eru þessi: • Bifreiðasölufyrirtæki í einu ESB-landi megi stofna útibú í öðru. • Bifreiðasalar megi sýna og selja eins margar bílgerðir og þeir vilja f sama sýningarsal (multi-branding) og séu ekki háðir samþykki framleiðenda. • Dregið verði úr skilmálum framleið- enda um tengsl sölu og þjónustu. BEUC BMW 3-bílar fá ! mörgum efnum háar gæðaeinkunnir og stóðu sig vei í árekstra- prófunum hjá Euro NCAP. Hér fengust þrjár gerðir á biiinu um 2,5-4,6 m.kr. hjá B&L. 20 NEYTENDABLAÐIÐ 1.TBL. 2003

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.