Neytendablaðið - 01.06.2004, Side 7
Skrifstofa Neytendasamtakanna á Akureyri
I um aldarfjórðung hafa Neytenda-
samtökin rekið skrifstofu á Akureyri. í
upphafi var skrifstofan opin tvo daga
vikunnar og sáu stjórnarmenn í stjórn
Neytendafélags Akureyrar og nágrennis
um starfið í sjálfboðavinnu. í mörg ár
hefur skrifstofan haft fastan starfsmann á
launum og breytti það miklu fyrir starfið
þegar sá áfangi náðist.
Það sem gerði gæfumuninn þegar Neyt-
endasamtökin ákváðu að reka útibú á
Akureyri var að stéttarfélög á Eyjafjarðar-
svæðinu ákváðu að ganga til samstarfs
við samtökin. Gerður var samstarfssamn-
ingur milli þessara aðila sem fól meðal
annars í sér að stéttarfélögin styrkja
Neytendasamtökin fjárhagslega til að
auðvelda þeim rekstur skrifstofunnar.
Þau stéttarfélög á Akureyri sem eru aðil-
ar að þessum samningi eru: Eining-lðja,
Sjómannafélag Eyjafjarðar, Félag málm-
iðnaðarmanna, Félag verslunar- og skrif-
stofufólks, Starfsmannafélag Akureyrar-
bæjar og Félag byggingamanna.
Neytendasamtökin færa þeim öllum
þakkir fyrir ríkan skilning á mikilvægi
öflugs neytendastarfs.
Auk þess hafa tvö bæjarfélög, Akureyri
og Dalvík, styrkt þessa starfsemi, alla
vega flest árin og fyrir það þakka Neyt-
endasamtökin. Því er þó ekki að leyna að
Neytendasamtökin telja eðlilegt að sveit-
arfélög á svæðinu styrki samtökin með
öflugri hætti en nú er svo efla megi þessa
einingu í starfi Neytendasamtakanna.
Og vissulega voru það vonbrigði að Ak-
ureyrarbær sá sér ekki fært að styrkja
samtökin þetta árið.
Það er hins vegar Ijóst að það skiptir
máli að Neytendasamtökunum sé gert
kleift að starfrækja útibú úti á landi. Með
því komast þau í meiri nálægð við neyt-
endur sem þar búa og neytendastarf á
viðkomandi svæði verður að sjálfsögðu
líka allt annað og meira, til hagsbóta fyrir
neytendur. Starfsmaður skrifstofunnar á
Akureyri er Brynhildur Pétursdóttir.
Neytendablaðið spurði Kristján Þór ]úl-
íusson bæjarstjóra á Akureyri og Björn
Snæbjörnsson formann Eingar-lðju eftir-
farandi spurningar:
Hvaða gildi telur þú það hafa fyrir neyt-
endur á Eyjafjarðarsvæðinu að Neyt-
endasamtökin reka útibú á staðnum?
Björn Snæbjörnsson
Það hefur haft mjög mikið gildi fyrir
launafólk á Eyjafjarðarsvæðinu að Neyt-
endasamtökin skuli hafa hér útibú. Það
skerpir athygli fólks á málefnum hér á
svæðinu.
Fólk tekur vel eftir því þegar kannanir
eru gerðar og sömuleiðis hefur þetta haft
áhrif á verslanir og fyrirtæki. Neytenda-
mál voru mikið inni á skrifstofum stéttar-
félaganna og þar var þeim sinnt af bestu
getu en þar skorti e.t.v. reynsluna. Nú
sinnir fagfólk þessum störfum og kann
til verka.
Samstarf stéttarfélaganna og Neytenda-
samtakanna hefur verið gott í öllum meg-
inatriðum og hefur auðveldað báðum
aðilum að sinna því sem hver og einn
kann best.
Ef setja ætti út á eitthvað væri það helst
að ekki er nógu mikið um verðkannanir,
t.d. matvöru, þeirri vöru sem fólk kaupir
mest af.
Ég vil alls ekki að skrifstofan á Akureyri
verði lögð niður. Það yrði mikil afturför í
þjónustu við félagsmenn okkar.
Kristján Þór Júlíusson
Nútímasamfélag er eins og þéttriðið net
verslunar og viðskipta. Kaup og sala á
vörum og þjónustu verða sífellt flóknari
og þar sjást ekki allir fyrir. Það verður
því að sjálfsögðu að standa vörð um
rétt neytenda og til þess eru líkast til
engir betur fallnir en samtök neytenda.
Það eru til mýmörg dæmi um ýmis vafa-
mál sem koma upp í viðskiptum manna
á meðal því það er misjafn sauður í
mörgu fé. Jafnvel vill brenna við að verið
sé að selja hálfónýta eða gallaða vöru,
svo ekki sé minnst á varning sem beinlín-
is getur talist hættulegur heilsu manna.
Þar kemur til kasta Neytendasamtakanna
og njóta almennir neytendur góðs af vak-
andi auga þeirra og eftirliti með viðskipt-
um, auk þess að njóta stuðnings við að
leita réttar síns.
I Eyjafirði er blómleg byggð þar sem Ak-
ureyri er kjarninn og miðpunkturinn með
öllum lífsins gæðum. Þetta er blómlegt
byggðalag og ég hef haldið því fram að
þar muni búa í það minnsta um 30.000
manns árið 2020. Hér er og verður næst-
stærsta þéttbýli landsins og því er mjög
mikilvægt að í svo stóru samfélagi sé
starfsemi Neytendasamtakanna virk og
sýnileg og ekki þurfi að sækja slíka þjón-
ustu um langan veg.
NEYTENDABLA0H12.TBL.2OO4 7