Foringinn - 01.04.1975, Qupperneq 7

Foringinn - 01.04.1975, Qupperneq 7
Hótelstjórinn aö Valhöll hafði skrifað undir öll skjöl okkar með timasetningu og ööru sem þurfa þótti. A miðri leið stoppaði lögreglubill og kvitt- uðu lögreglumennirnir i honum á þetta sama blað sem sönnun á þvi að við hefðum verið þarna. Eftir rúma niu tima göngu skreiddist allur hópurinn inn á lögreglustöð i Reykjavik, þar sem við fengum síðustu undirskrift. Alla þessa leið hafði enginn helst úr Xestinni, jafnvel þó meirihluti hópsins væri kvenfólk. Þó var það mikil freisting þegar lögreglubíllinn stansaði fyrir okkur og bauö að taka einhverja uppi. Fyrir þetta afrek var sveitar- meðlimum boðið að kaupa skjöld einn, litinn og ljótan, dýrum dómum, sem var svo, þegar tilkom, ekki til nema i þrem eintökum. Eftir að hafa lagt þessa 50 km. að baki sér voru margir meðlimir ds. Póseidon með blöðrur og harð- sperrur. Þó skorum viö á sem flesta að reyna þetta, þvi að ferö sem þessi er i senn ógleym- anleg og lærdómsrik, þrátt fyrir allar blöðrur. POSEIDON Kl.S að kvöldi laugardagsins 17. ágúst siðastliöinn lögöu - nokkrar hræður gangandi af staö frá Þingvöllum. Nánar tiltekið 13 skátar úr drótt- skátasveitinni Póseidon Reykja- vik. Takmarkið var Reykjavik á tveimur jafnfljótum. FORSETA- MERKI-O Afhending forsetsunerkisins fer fram að Bessastöðum laugsirdaginn 19.april n.k. Umsóknir um merkið þurfa að berast til B.I.S. á þar til gerðum eyðublöðum fyrir l.april n.k. Eyðublöðin fást á skrifstofu B.I.S. en verða einnig send til dróttskátasveita. STARFSþRAUT 75 II. þraut. Blaðaútgáfa Blaðið skal vera minnst 4 siður, tvö blöð af stæröinni A4. Blaðið skal vera unnið að öllu leyti af meðlimum sveitarinnar. Skylduefni i blaðinu er: Kynningargrein um sveitina og kennslugrein úr skátastarfinu. Æskilegt er að hafa mynd (myndir) i blaðinu. Upplag blaösins er frjálst. Eintak af blaðinu skal senda fyrir 22. apríl til Starfsþraut II c/o Bandalag isl.skáta, Blönduhlið 35 Reykjavik. ÖR starfinu 7

x

Foringinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foringinn
https://timarit.is/publication/905

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.