Bændablaðið - 17.02.1998, Síða 3
Þriðjudagur 17. febrúar 1998
Bændablaðið
3
Hert eftirlit með útflutningi hrossa
Ekki má dragast
að öll útflutt hross
verði örmerkt
Svo sem lesendur Bænda-
blaðsins hafa séð er nú mikið
starf í gangi við uppbyggingu
gæðaskýrsluhalds í hrossa-
rækt og tilheyrandi forritun
svo það verði að veruleika.
Jafnframt þessu er nú tekið
harðar á öllum málum er varða
skil á upplýsingum til Bænda-
samtakanna einkum hefur
eftirlitið verið hert með út-
flutningnum.
Bændablaðið tók Kristin Huga-
son hrossaræktarráðunaut tali að
þessu tilefni. Kristinn tók fram í
upphafi að þessar aðgerðir hefðu
lengi staðið yfir þó ekki hefðu þær
verið svo ýkja áberandi í fjöl-
miðlum enda væri oft verra að
vinna að málunum í gegnum þá.
Kristinn kvað mikið hafa áunnist,
t.d. þekktist ekki lengur að upp-
runavottorð væri gefið út um hross
sem skráð væri á annan eiganda en
þann sem skráður væri í Feng. Nú
væri þó verið að taka á ýmsum
erfiðum málum, t.d. þar sem allt
virtist benda til að rangar upp-
lýsingar hefðu verið gefnar vísvit-
andi. Kristinn tók fram í lokin að
ekki kæmist lag á þessi mál fyrr en
öll hross væru örmerkt sem á annað
borð væru á lífhrossamarkaði eða í
ræktun tengdri honum. Nú mætti
ekki dragast neitt að tekin yrði upp
sú venja að öll útflutt hross yrðu
örmerkt. Það hindraði að uppruna-
vottorð víxluðust á milli hrossa eða
þeim væri víxlað. Því þó svo út-
flytjendur væru í heild sinni sóma-
kærir væri þó misjafn sauður í
mörgu fé.
Fyrsta Limousine
nautið feilt í Hrísey
Á dögunum var Limousine nautið Ljúfur
felldur í Hrísey. Hann var fæddur í júlí 1995
og því um 30 mánaða gamall. Ljúfur var 720
kg á fæti og fallþunginn 421 kg. Kjötið af
honum var mjög vöðvamikið, en þar sem
hlutverk hans var að framleiða sæði var fítu-
söfnun tiltölulcga Iítil. Á meðfylgjandi mynd
má sjá fallið af Ljúfí.
Tveir góðir
kostir í kornið!
BIZON - SAMPO
CASE IH
* Valmet mótor 87 hö
* Valmet hydrostatic drif
* 3,25 m skurðarborö
* Hentar bændum og minni
kornræktarfélögum
* Perkins mótor 150 hö
* 3,60 - 4,20 - 4,80 skurðarborð
* Afkastamikil
* Hentar stærri
kornræktarfélögum
Leitið upp-
lýsinga hjá
sölumönnum!
VÉLAR&
ÞJÖNUSTAhf
Járnhálsi 2, Reykjavík, sími 587-6500, fax 567 4274
Útibú á Akureyri, sími 461 4040, Óseyri 1a
-\
Askrift að Frey
fyrir þá sem viljafylgjast með íslenskum landbúnaði
Freyr flytur nýja
þekkingu - undirstöðu framfara!
Þegar Bændasamtök íslands hófu að gefa út Bændablaðið árið 1995
breyttist hlutverk Freys. Blaðið birtir nú einkum alhliða
leiðbeiningaefni en minna af fréttum. Verkaskipting blaðanna er sú að
Frey er ætlað að birta efni sem ætla má að bændur þurfi að grípa til
eitthvert tímabil, jafnvel nokkur ár. Til að auðvelda þá notkun er birt
ítarlegt efnisyfirlit hvers árgangs í síðasta tölublaði ársins.
Á þessu ári, 1998, verður enn sú breyting á Frey að efni sem áður
birtist í sérritum BÍ, Nautgriparæktinni, Sauðfjárræktinni og að
hluta Hrossaræktinni, birtist nú í sérstökum „þemablöðum“ Freys.
Ráðgert er að fjölga tölublöðum Freys í 13 - 15 og þar af verði þrjú
sérblöð um nautgriprækt, tvö um sauðfjárrækt og eitt um hrossarækt.
Öðrum búgreinum verða einnig gerð skil í öðrum tölublöðum, sem sum
hver verða að hluta til búgreinatengd.
Óhjákvæmilega hækkar áskriftargjald Freys við þessa stækkun og
hefur verið ákveðið 3.600 kr. í ár.
Áfram verður hægt að kaupa sérritin ein og sér, en það er sérstök
ástæða til að hvetja bændur til að kaupa Frey allan. Ætlunin er að efla
hann sem faglegt rit, og bændur þurfa á því að halda að fylgjast með
því sem þar verður skrifað.
Vinsamlega klippið út og merkið umslagið:
Freyr, Bændahöll, Pósthólf 7080, 127 Reykjavík
Já, takk.
S
Eg vil gerast áskrifandi!
Nafn
Heimili
Póstfang
Staður
Kennitala
Ársárskrift er kr. 3.600
( ) VISA ( ) Euro ( ) Gíró
Nr. korts
( ) ( ) ( )()()()()()()( ()()()()( ( )
Gildirtil ( )( )
Áskrift er innheimt í upphafi nýs árs.
Undirskrift
Viltu hringja og gerast áskrifandi? Síminn er 563 0335, 563 0375 eða 563 0315. Faxið er 552 3855