Bændablaðið - 02.03.1999, Síða 10
10
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 2. mars 1999
Eiturefnanámskeið
Námskeið um
notkun eiturefna
og hættulegra efna
við meindýra-
eyðingu verður
haldið dagana 18.
og 19. mars 1999.
Námskeið um
notkun eiturefna
og hættulegra efna
í landbúnaði,
garðyrkju og við
garðaúðun verður
haldið dagana 22.
og 23. mars 1999.
Sunnlenska
Námskeiðin eru einkum ætluð þeim sem vilja öðlast réttindi til
þess að kaupa og nota efni í X og A hættuflokkum, svo og þeim
sem óska eftir að starfa við garðaúðun eða meindýraeyðingu.
Þátttaka í eiturefnanámskeiði veitir þó ekki slík réttindi og
verður að sækja um þau sérstaklega
Þátttökugjald er kr. 14.000 fyrir námskeið um notkun eitur-
efna og hættulegra efna við meindýraeyðingu.
Þátttökugjald er kr. 15.000 fyrir námskeið um notkun eitur-
efna og hættulegra efna í landbúnaði, garðyrkju og við garða-
úðun.
Námskeiðin verða haldin hjá Rannsóknastofnun land-
búnaðarins á Keldnaholti, Reykjavík.
Tilkynna skal þátttöku sem fyrst og eigi síðar en 4. mars
1999 til Hollustuverndar ríkisins í síma 568 8848.
Hollustuvernd ríkisins
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
Vinnueftirlit ríkisins
Soffía í stúdíói Útvarps Suðurlands.
Jörð til sölu
Lynghóll í Skriðdal til sölu. Jörðin er 24 km frá Egils-
stöðum og er fjárbú. Jörðin getur verið laus strax
eða eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 471-1215.
Sveitakona kaupir
útvarpsslöð
Það var í upphafi ársins að
Soffía Sigurðardóttir á Neista-
stöðum í Villingaholtshrcppi
keypti sér útvarpsstöð. Soffía,
sem hefur m.a. unnið fyrir
Bændablaðið sannfrétti að stöð-
in væri til sölu og lét slag standa.
- En Soffía, er rekstrargrund-
Aq/uaBiená
Fljótandi steinefnablanda fyrir
NAUTGRIPI
AquaBlend er blanda mikilvægustu steinefna sem nautgripir
hafa þörf fyrir. Steinefnin eru á sérstöku efnafræðilegu formi sem
tryggir vatnsleysanleika blöndunnar og gerir það að verkum að
nýting efnanna í nautgripum verður mun betri samanborið við
hefðbundna steinefnagjöf.
AquaBlend er skammtað sjálfvirkt með þar til gerðum búnaði
inn á drykkjarvatnskerfi í fjósum. Aðferðin er í senn öruggari og
umhverfisvænni en hefðbundin steinefnagjöf. Vatnsneysla eykst í
réttu hlutfalli við nyt og þannig haldast í hendur aukin steinefna-
þörf vegna mjólkurframleiðslu og aukin hagkvæm steinefnagjöf.
AquaBlend er engin töfralausn fyrir íslenska nautgriparækt
heldur hagnýtur valkostur við faglega fóðrun þar sem mark-
miðið er m.a. að fyrirbyggja sjúkdóma. Betra heilbrigði dýranna
stuðlar að meiri afurðum hvort sem um er að ræða kjöt eða
mjólk.
Athuganir hérlendis með AquaBlend lofa góðu og því full
ástæða að hvetja bændur að kynna sér málið með fóðurráðgjafa
sínum og leita eftir viðbótar upplýsingum ef þörf er á.
Upplýsingar um AquaBlend eru fáanlegar á vefsíðu Pharmaco hf.
Vefslóðin er: www.pharmaco.is/aquablend.htm
Bi
Dreifingaraöili:
Olíuverslun Islands
HéBinsgötu 10,105 Reykjavík
Sími 515 1100
Innflytjandi:
Pharmaco
Hörgatúni 2, 220 Garöabær
Sími 535 7000
Framleiöandi:
EPENHUYSEN
NL-3336 LH Zwijndrecht, Holland
völlur fyrir hendi?
Já, Útvarp Suðurlands hefur
smám saman verið að vinna sér
sess hér á Suðurlandi. Hér er
ekkert svæðisútvarp á vegum
Ríkisútvarpsins. Hlustendur verða
varir við að á Útvarpi Suðurlands
er verið að tala við fólk sem hlust-
endur þekkja og um mál sem
hlustendum koma við. Það eru
tengiliðir um allt Suðurland og
Vestmannaeyjar sem haft er
reglulega samband við. Svo eru
viðtalsþættir þar sem rætt er við
fólk um ættir og uppruna,
áhugamál og lífshlaup. Útvarp
Suðurlands er orðið hluti af sunn-
lensku mannlífi, menningarlífi og
atvinnulífi. Hér er eini útvarps-
þátturinn um landbúnaðarmál og
hefur verið vikulega á dagskrá frá
því að útvarpið byrjaði sumarið
1997. Svo er hér líka mjög
fjölbreytt tónlist. Að mestu leyti
höfðar tónlistin til þeirra eldri, en
unglingamir hafa hér eigin þætti.
Það kemur í ljós þegar ólíkt fólk
sér um þætti eftir eigin höfði, að
síbyljustöðvamar sem svo hafa
verið kallaðar, hafa alveg ótrúlega
þröngt tónlistarsvið að ekki sé
minnst á hvað þær hafa frá litlu að
segja. Stór hópur sumarbú-
staðafólks bætist hér í dyggan
hlustendahóp um hverja helgi.
-Má ekki fidlyrða að þú sért
ein af fáum konum á jarðar-
kringlunni sem á útvarpsstöð?
Jú, líklega. Mér finnst hins
vegar að ég eigi Útvarp Suður-
lands ekki ein nema að forminu til,
þetta er útvarp okkar allra sem að
því störfum og þar leggja margir
fram vinnu fyrir lítil eða engin
laun.
-Hvað er fyrirhugað í
rekstrinum?
Við þurfum að styrkja útsend-
ingarsvæðið okkar, einkum í V-
Skaftafellssýslu og sums staðar í
uppsveitum, t.d. Þingvallasveit,
Grafningi og Laugardal. Fyrir-
hugað er að koma á tengingu fyrir
útsendingar frá Vestmannaeyjum.
Þetta er dýrt, en það kemur að
þessu þegar reksturinn styrkist.
Allar okkar tekjur koma frá aug-
lýsendum og hafa alltaf gert. Svo
er verið að skoða samstarf við
Ríkisútvarpið um rekstur svæðis-
útvarps á Suðurlandi. Útvarp Suð-
urlands er komið til að vera.
Ný jaröabök lyrir Island
Ákveðið hefur verið að ráðast í
gerð jarðabókar fyrir allt landið
og er stefnt að því að ljúka því á
10 árum. Að verkinu munu
standa Rannsóknastofnun land-
búnaðarins, Landgræðsla ríkis-
ins, Bændasamtök íslands og
Skógrækt ríkisins.
I jarðabókinni eiga að vera
upplýsingar á borð við stærð jarða,
landeininga og uppgræðslusvæða,
staðsetningu landmerkja og
almennar upplýsingar um einstök
lönd. Ætlunin er að í slíkri jarða-
bók, sem verður á tölvutæku
formi, verði myndrænn grunnur af
landinu þar sem notaðar verða
stafrænar gervihnattamyndir,
Ólafur Amalds hjá RALA segir
að staðan sé sú núna að það vanti
landupplýsingar af mjög mörgum
ástæðum og að sú vöntun sé að
verða sífellt bagalegri. „Ég sé fyrir
mér að allir sem komi að land-
græðslu geti notað upplýsingar úr
slíkri jarðabók, sem og bændur
sjálfir, samtök þeirra og aðrir sem
bera ábyrgð á sjálfbærri nýtingu
landsins. Svo getur þetta verið
mikilvægt tæki fyrir bændur og
sveitarfélög í skipulagsmálum.
Hugsunin er sú að Bændasamtökin,
stofnanir landbúnaðarins og bændur
sjálfir hafi sem mestan hag af þessu
en hins vegar muni fleiri gera það
þegar fram í sækir,“ segir hann.
Ólafur tekur fram að ekki
standi til að gefa út nein kort af
jörðum. Ætlunin er að það liggi
fyrir gögn á tölvutæku formi og
síðan geti menn prentað út það
sem þeir vilja. „Við sjáum líka
þann möguleika að hver bóndi geti
fengið hluta af gögnunum í
tölvuna hjá sér og unnið með þau
þar. Ef hann ætlar t.d. að leggja
girðingu hjá sér gæti hann séð
þama hvað girðingin þyrfti að vera
löng og hvað svæðin sitt hvorum
megin við girðinguna verða stór,“
segir hann.
Ólafur bætir því við að það
sem þeir ætli að áorka með þessu
sé margt og ekk' sé hægt að tiltaka
það í stuttu máli. „Það má þó segja
að það sem við ætlum að fá fram
með þessu sé fyrst og fremst þjón-
usta,“ segir hann að lokum.
Eins og áður segir er áætlað að
þetta verk taki um 10 ár. Þar af er
reiknað með að fyrstu 2-3 árin fari
í að móta gagnagrunn og flokka
landið. Þegar hefur verið tryggt
grunnfjármagn til verkefnisins.