Bændablaðið - 02.03.1999, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 2. mars 1999
BÆNDABLAÐIÐ
15
Dreifbæran
búskap eða
péttbæran?
í umræðu daganna um vist
okkar og umhverfi fer nokkuð
fyrir þeim hugtökum sem á málum
nágrannaþjóða kallast "intensive"
og "extensive". Búskap og
búskaparháttum er lýst með
þessum orðum. Intensívan kalla
menn þann búskap t.d. þar sem
miklum fjölda gripa er haldið á
afmörkuðu rými, hvort heldur er
landi eða á húsi. Mér hefur flogið í
hug hvort mætti nota orðin
þéttbær og dreifbær um þetta efni.
I fyrsta lagi eru þau í samhljómi
við þéttbýli - dreifbýli og þungbær
- -léttbær. I öðru lagi tengjast
orðin sögninni að bera og
nafnorðinu byrði, sem bæði hafa
nokkra skírskotun til búháttanna,
sem lýsa á, m.a. í gegnum það
hver byrði þeir kunna að vera fyrir
það umhverfi sem nýtt er.
Samkvæmt þessu mundum við til
dæmis kalla sauðfjárbúskap á
beitanlegum víðemum dreifbæran
búskap en tæknivæddan svína- og
hænsnabúskap þéttbæran. í
útlöndum nota þeir hins vegar
tölulegar mælistærðir til að greina
á milli stiganna tveggja
dreifbæris og þéttbæris. Hvar
fleiri en 2,0 stórgripaeiningar
koma á hektarann og meira en 1,0
tonn kjamfóðurs fer á
stórgripaeiningu kallast gjaman
þéttbær (intensive) búrekstur.
Hvemig fara þessi orð í ykkur?
Bjarni Guðmundsson
Hvanneyri
Frigg og Bændaskólinn á Hvanneyri gera
með sér samstarfssamning
Bændaskúlinn prófar
vörurnar frá Frigg
Bændaskólinn á Hvanneyri og
sápugerðin Frigg hafa gert með
sér samstarfssamning þess efnis
að hreinsiefnin sem Frigg fram-
leiðir fyrir mjólkurframleiðend-
ur verði prófuð á Hvanneyri.
Þetta á bæði við um ný efni og
efni sem þegar eru í framleiðslu
hjá fyrirtækinu, sem og erlend
efni sem Frigg er að sækja um
framleiðsluleyfi fyrir hér á landi.
Samningurinn snýst um að
efnin séu notuð á ákveðnum
stöðum í sveitinni og á Hvanneyri.
Mjólkureftirlitsmenn hafa eftirlit
með prófununum og Mjólkursam-
salan tekur einnig þátt í þessu.
Þama verða efnin undir stöðugu
eftirliti og sérfræðingar hver á sínu
sviði fylgjast með árangrinum. Þar
er m.a. fylgst með gerlatölu mjólk-
ur og hvemig efni vinna t.d. á
júgurbólgu. Þetta verður skráð nið-
ur og úr niðurstöðunum verður
unnin lokaskýrsla um hvemig
efnin hafa reynst.
Lúther Guðmundsson forstjóri
Friggjar segir að
vöruþróun skorti
nokkuð í þessum
geira. Tilgangurinn
með þessu af þeirra hálfu
sé að fá góða úttekt á
efnunum áður en byrjað
verði mikið á vöm- ,
þróun. Hann segir
að meðal þess sem
prófað verði séu
nýir fóðurbætissteinar sem eigi að
koma í staðinn fyrir saltsteinana
sem notaðir em víðast hvar í dag.
„Við komum til með að leggja
meiri áherslu á júgurhreinlæti en
við höfum gert á undanfömum
árum,“ segir hann.
Pétur Pétursson mjólkurfræð-
ingur bætir því við að mörg
þessara efna sem prófuð verða hjá
Hvanneyri hafi þegar verið í
notkun hjá bændum í mörg ár.
„Við viljum samt leggja þetta á
borðið til að fá niðurstöður um
hvort hægt sé að gera efnin betri.“
Pétur nefnir sem dæmi efnin 1P-
456 og Helios, en síðamefnda
efnið er reyndar frekar
nýtt af nálinni en
hefur komið vel út í
prófunum.
Lúther segist
spenntur fyrir niður-
stöðu verkefnisins.
„Þama fáum við svörin
á einum stað frá æðstu
menntastofnun landsins í land-
búnaðinum. Ef einhverju er ábóta-
vant vitum við hvar við eigum að
byrja að vinna. Við viljum í raun
nota þetta sem okkar gæðaeftirlit,"
segir hann.
Forsvarsmenn Friggjar segja
að niðurstöður skýrslunnar verði
notaðar í frekari vömþróun innan
fyrirtækisins.
A Alfa Laval Agri
VELAVERf
Lágmúla 7, 108 Reykjavík
Sími: 588 2600, fax: 588 2601
Þeir einu á
markaðnum
sem eru ryðfríir
að utan oq
innan.
Ryðfríir að utan og innan
Sérúttak í þvottavél
Hámarkshiti 95°C
Áreiðanlegir, öruggir og
endingargóðir
Sérhannaðir fyrir
mjólkurframleiðendur
Stillanlegur blöndunarventill
Sér heitavatnsúttak (L þvottavél “95°C”
TJmskiptanleg tæringarvörn
Ytra byrði úr . ryðfríu stáli
“Pölýurethane” éinangrun án umhverfisevðandi efna
Innra byrði úr ryðfríu stál
| Hitaelement Oryggisventill |
HITAVATNSKUTAR
Nú er rétti tíminn..
til að panta velbúinn I0HN DEERE traktor fyrir sumarið!
Dragðu ekkl að panta draumatraktorinn!
Vegna mikillar eftirspurnar eftir JOHN DEERE traktorum er afgreiðslutími um 4
mánuðir. Til að tryggja JOHN DEERE traktor fyrir sumarið er rétti tíminn til að
pantanúna.
Nú er tækifæri til að eignast John Deere traktor á hagstæða verðinu. Sökum
hagstæðs gengis á þýska markinu er verð á John Deere traktorum lægra en áður.
Þeirtraktorar sem við getum boðið af lagereða með stuttum fyrirvara eru:
5000 línan - stærðír60,70 og 80 hö.
6010 SE línan - stærðir 75,80,90,100 og 105 hö.
6010 línan - stærðir 75,80,90,100,105,115,125 og 135 hö.
Hafið samband við sölumenn okkarog kannið nánarbúnað, verð og greiðslukjör.
ÞOR HF
Reykjavík - Akureyri
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - Sími: 461-1070 - Vefsíða: www.thor.is
Láttu drauminn rætast -
fjárfestu í John Deere
traktor! Hann stendur
fyrirsínu.