Skátaforinginn - 01.06.1991, Blaðsíða 5
DRAUMUR I DOS
HÖSKULDARVÖLLUM '91
TEXTI & MYND: DAÐI ÞORBJÖRNSSON
Strax og komið var á staðinn
var ljóst að hér var á ferðinni
stórkostleg útilega enda ekki von
á öðru þegar þeir Páll Sigurðsson
úr Segli og Ari Hallgtímsson úr
Eina leggja nótt við dag við að
undirbúa slíkt mannamót.
Yfirskrift útilegunnar var
„Draumur í dós” og bar dagskrá-
in auðvitað keim af því. Albr þátt-
takendur fengu bol þar sem á var
prentað merki mótsins, útílegu-
bók og minjagrip, sem var dós
með álímdu merki útiLegunnar.
Það ætti ekki að koma neinum á
óvart að aðeins var snæddur
dósamatur.
Rigningin
Þessa sömu helgi var vormót
Hraunbúa haldið í Krýsuvík.
Þess vegna mátti búast við rign-
ingu. Hún Lét auðvitað ekki á sér
standa og um það Leyti sem vor-
mótið var sett brast á aiveg óeðli-
Lega mikil, grenjandi heiiirign-
ing. Það Lét engin rigninguna á
sig fá en þrátt fyrir það Lögðust
dróttskátarnir á bæn og báðu
veðurguðina að Láta það ekid
bitna á okkur þó að á sama tíma
væri haidið vormót í Krýsuvík.
Að sjálfsögðu stytti þá upp um
leið og brátt fór sólin að skfna og
Það voru 55 vanlr
menn, vllltar meyjar og
vandrsaðaböm sem
létu slg vaða á samelg-
Inlega félagsútllegu
skátafólagslns Elna og
Seguls sem haklln var
á Höskuldarvöllum
helglna 31. - 2. Júní
1991.
er víst enn ekki hætt því, síðast
þegar að ég vissi.
Dagskráin
Eftir að tjaldbúðavinnu var Lok-
ið var á dagskrá kynningarleikur.
Að honum loknum var ætt á
kvöLdvöku sem stjómað var af
hinu margfræga bandi Dós fyrir
Didda. Á eftir kvöldvökunni var
boðið upp á heitt kakó að hætti
hússins.
Strax að loknum morgunmat á
laugardeginum var ferið í pósta-
leik en í honum var m.a. boðið
upp á stígvélakast og þriggja
kaðla reipitog. Það var um há-
degisbilið sem stytti upp og þeg-
ar krakkamir komu aftur út úr
eldhústjöldunum að loknum há-
degismat var komin glampandi
sóL eins og áður sagði. SóLar-
geisfemirvoru boðnir velkomnir
niður á Höskuldarvelii og því var
það ánægður skátahópur sem
skundaði af stað í ratleik í glamp-
andi sóL og 15 stiga hita. Þegar
komið var tiL baka úr ratleiknum
biðu gómsætir grillaðir ham-
borgarar eftir því að vera borðað-
ir.
Að Loknum kvöldverði var ferið
í kvöldleik og eftir mikia baráttu,
hlaup og Læti og „dauðsföll”
þyrptust allir á varðeld.
Eftir morgunverð á sunnudag
hófst íþróttakeppni en í þessari
keppni var m.a. keppt í hinni
margfrægu íþrótt dósahlaupi.
Senn var komið að brottför.
Það var ótrúlegt hve helgin var
fijót að líða hjá enda var hér um
frábæra útilegu að ræða og þess
vegna fóru 55 vanir menn, vilLtar
meyjar og vandræðaböm heim í
Breiðholtið með dós í hendi og
risastórt sólskinsbros á vör.
ÚTILÍFS- OG ÆVINTÝRANÁMSKEIÐ
Skátafélagið Víflll í Garöa-
bæ mun halda uppteknum
hættl nú í sumar elns og s.L
ár og býður Garðbæingum
á vit nýrra ævintýra í fylgt
reyndra skátaforingja.
VífiLi heldur þessi námskeið í
þriðja sinn í ár og eru nám-
skeiðin ætiuð fyrir böm á aldr-
inum 7 til 12 ára. Fjölbreytt
dagskrá er á námskeiðunum og
má þar nefna ratleiki, pósta-
leiki, hjólaferðir, fjöru- og
hellaferðir og frumbyggjastörf
svo eitthvað sé nefnt.
Hverju námskeiði Lýkur svo
með einnar nætur útilegu þar
sem gist verður í skála eða
tjöldum. Að öðru leyti verður
útfærsla námskeiðanna í hönd-
um Leiðbeinenda sem eru
margreyndir skátaforingjar og
munu þeir miða dagskrána við
getu og áhuga hvers hóps.
Námskeiðin verða hvem virk-
an dag frá kl. 09-00 til 17.00 og
eru tímabilin sem hér segir: 3 -
14. júní, 18.-28. júní, 1.-12. júlí
og 15.-26. júlí.
Innritun og upplýsingar fást í
skátaheimilinu Hraunhólum
12 og í síma 91-51989/52820.
SKÁTAFORINGINN - 5