Skátaforinginn - 01.06.1991, Síða 9
SEGÐU MER FRA
OILJI
TEXTI: SIGURÐUR GUÐLEIFSSON DUFA
Ég blós í sjóðheltan
kakóbollann minn.
Alveg ótrúlegt hvað
kakó helst lengi helttl
"Segðu mér nánar frá þessu
Gilji", sagði ég við félaga minn er
sat við hlið mér í forskála KSÚ.
Þetta var á fallegum og sólbjörtum
haustdegi fyrir nokkrum misser-
um.
"Ekki Gilji, heldur Gilwell; alveg
ótrúlegt hvað þú getur verið treg-
ur alltaf hreint. Þú kemst aldrei fet
á Gilwell með þessum asnaskap."
Ég gat ekld annað en brosað, því
Gilli, eins og ég uppnefndi félaga
minn ætíð síðan, og hafði fengið
sinn drapplitaða klút bættan að
aftan, tyrkjahnút úr brúnu leðri og
tréperlur í svartri leðurskóreim,
var alveg einstaklega sár ef maður
gerði gys að Gilwell í einu eða
öðru formi.
"Námskeiðið sjálft stendur í eina
viku og ef þú heldur að hægt sé að
segja frá því í einni setningu, þá
skjátlast þér all hrapalega”,
þrumaði hann yfir mér. "Dagskrá
í heila viku frá átta á morgnana
fram á rauða nótt. Hikeferð, verk-
efni af öllu tagi, kvöldvökur, sér-
vitrir stjórnendur, sprenglærðir
gestaleiðbeinendur og Guð má
vita hvað er ekki í gangi þessa ótrú-
legu, en allt of stuttri viku. Svo
viltu að ég skýri þetta út í einni
setningu! Heldurðu að þetta sé
eins og langt helgamámskeið - eða
hvað?
Þessari spumingu vinarins var
ekki ætlast til að væri svarað.
Hann var kominn í ham og það
ekki lítinn. Nú væri best að hlusta,
enda hafði hann komið af Gilwell
í upphaft síðasta starfsárs, ferskur
og kraftmeiri en nokkm sinni fyrr
- og gert ótrúlega hlud. Og alltaf
gat hann vitnað í Gilwell þetta og
Gilwell hitt. Starf hans að undan-
fömu hafði vissulega borið árang-
ur, svo það væri kannski óvitlaust
að hlusta aðeins á hann.
"Geturðu hugsað þér 30 manna
hóp syngja eins og dómkór (ég
hélt að hann væri falskur!), fman
og penan, stuttu eftir að hafa látíð
eins og asnar í hreyfisöng um aust-
urrískan jóðlara? - Eða séð tjald-
búð rísa upp á þremur dögum í
kaffi- og matarhléum hjá sex
manna fiokk? Tjaldbúð, sem
venjulega tekur viku að reisa við
eðlilegar aðstæður!"
Ég sperrti eyrun, enda ekki á
hverjum degi sem ég heyri af Súp>-
ermönnum meðal oss.
"Annars ættum við að hætta
þessu rausi héma og líta niðureft-
ir. Égheflykilogþúhefðirgottaf
því að sjá alvöru skála. Svo gæti ég
frætt þig í leiðinni. Hvað segirðu,
ertu tíl?"
Til var ég, enda aldrei orðið svo
frægur að fara inn í Gilwellskál-
ann, heldur eingöngu rýnt inn í
gegnum rúðumar.
Er við stóðum á tröppum skálans
var Gilli orðinn rólegur, enda var
hann að ljúka upp helgidóm sem
maður fann fyrir hjá Gilwellingum
einhverra hluta vegna.
Gilwellskálinn, sem reistur var
árið 1941, ber með sér að vera all
sérstæður frá fyrsta andartaki er
maður stígur fæti inn í hann.
Skrautskrift og útskurður, fánar og
minnismerki uppi um alla veggi,
loft og hillur. Hvert sem litíð var,
alls staðar máttí sjá handverk er
hafði sína eigin sögu frá sínum
tíma, gamla eða nýja. Frásagnirog
skýringar möluðu fyrir eyrum mín-
um er ég meðhöndlaði hina ýmsu
hluti. Merki Gilwellflokkanna,
sem eru Uglur, Gaukar, Dúfúr,
Hrafnar (og Spætur?), blöstu hvar-
vetna við. Misjöfn að gæðum, en
báru samt með sér metnað þeirra
aðila er verkin höfðu unnið.
Manni fór að sldljast sú virðing
sem borin er fyrir staðnum og
hvað hann á í ótrúlega mörgum. í
tæpa fjóra tíma röltum við um skál-
ann og ræddum málin vítt og
breitt.
Til að gera langa sögu stutta, þá
fór ég á Gilwell og þetta var ótrú-
legt. Vika sem h'ður mér aldrei úr
minni. Vika sem ekki er hægt að
endurlifa. Við vorum sex í flokk,
yngst 18 ára og sá elstí yfir þrítugt.
Ólík reynsla og mismunandi bak-
grunnur hjálpaði tíl við að draga
það besta fram í hverjum og einum
og styðja hvert annað. Sú reynsla,
viska og glaðværð sem ég innbyrtí
þama stendur framar öllu öðru
sem ég hef upplifað. Geta mín og
skilningur tíl að taka þátt í og
stjórna hinum ýmsu verkefnum
stórjókst. NúsldléghvfGilhhefur
gert svo góða hlutí í félaginu. Sá
efi er læðst hafði að mér um tíl-
verurétt hreyfingarinnar hvarf
með öllu. GilweU er nokkuð sem
enginn skátí getur látíð fram hjá
sér fara þegar tækifærið gefst. Hik-
aðu ekld - þú sérð ekld eftír því.
SKATAFORINGINN - 9