Skátaforinginn - 01.12.1991, Síða 8
Komdu
með til
SWITZERLAND 27. 7. - 6. 8. 92
Kcmdersteg!
TEXTI: GUÐMUNDUR PÁLSSON
Dagana 27. |úlí tlC 6.
úgúsl 1992 veríur
haldið í Sviss 9. al-
heimsmút röverskúta.
Mútið heffur baeki-
stöðvar sínar f alþjúð-
■•gu skútamiðstöðinni
Kandersteg en ffer f
raun ffram um allt
SvUs. Ennþú er múgu-
leikl ffyrir þig að baet-
ast f húpinn!
8 - SKÁTAFORINGINN
Hverjir geta
tekið þúHT
Mótíð er ætlað skátum á aldrin-
um 18 til 25 ára. Gert er ráð
fyrir einum eldri foringja fyrir
hverja 10 þátttakendur en auk
þess gefst okkur kostur á að
senda lítínn hóp af skátum sem
eru komnir yfir aldur.
76 íslenskir skútar
I dag eru 76 íslenskir skátar
skráðir tíl þátnöku á mótið og
koma þeir víða að af landinu.
Samkvæmt nýjustu upplýsing-
um er ennþá möguleiki á að
bæta við þátttakendum og því
hefur þú kæri lesandi enn tæid-
færi til að bætast f hópinn - þ.e.
ef þú ert á réttum aldri!
Um mútlð
Þátttökugjald er rúmar 96.000
kr.- Innifalið í því verði er m.a.
mótsgjaldið, fullt fæði, allar
ferðir, tryggingar o.fl. Ýmsir
kostnaðarsamir dagskrárliðir
eru ekki innifaldir í mótsgjald-
inu og þarf því að greiða fyrir þá
sérstaklega vilji menn taka þátt í
þeim. Gert er ráð fyrir að margir
þátttakendur vilji nýta sér tæid-
færið og ferðast um eftír mótíð
og mun undirbúningsnefhdin
aðstoða áhugasama um að
sldpuleggja slíkt ferðalag.
Allt sem þú þarfft!
Til að gera dvöl þátttakenda
sem ánægjulegasta munu móts-
haldarar bjóða upp á alla þá
þjónustu sem við nútímafólk er-
um vön að hafa aðgang að.
Þrjár verslanir og sölutum,
pósthús, símstöð, banki og
fierðaskrifstofa em á meðal
þeirrar þjónustu sem í boði er.
Matur er
mannsins megin
Gífurleg fjölbreytni í mataræði
er eitt aðalsmerid mótsins. Sett
verða upp tíu mismunandi eld-
hús sem hvert um sig matreiðir
ákveðna tegund matar. Við fá-
um tældfæri á að kynnast matar-
gerðarlist frá Þýskalandi, Frakk-
landi, Asíu, Bandaríkjunum,
Suður-Ameríku og ítah'u. Auk
hinnar fjölbreyttu matargerðar
heimamanna. Og fyrir þá sem
vilja býður eitt eldhúsið ein-
göngu upp á grænmetisfæði.
Þátttakendum er svo frjálst að
borða það sem þeir helst kjósa.
Auk hinna tíu eldhúsa munu
þrír veitingastaðir og kaffihús
taka vel á móti gestum sfnum
með fjölbrcyttum mat og margs-
konar uppákomum s.s. leiksýn-
ingum og þjóðlagatónlist.
Dagslcrúin
Þátttakendum gefst kostur á að
kynnast fjölmörgum hliðum á
Sviss í gegnum fjölbreytta dag-
skrá. Hver þátttakandi mun
dvelja helming mótsins í tjald-
búð í Kandersteg en hinn helm-
ingin utan Kandersteg í sjálf-
valdri dagskrá. Sú dagskrá er
dreifð um allt landið.
Allir þátttakendur mun koma
saman þrisvar sinnum í Kan-
dersteg, við mótssetningu, um
miðbik mótsins og við mótsslit.
StyHri dagskrúrliðir
A hverjum degi verða u.þ.b. 50
dagskrártílboð í og við Kanders-
teg. Þessi tilboð eru mismun-
andi löng, allt frá einni klukku-
stund upp í heilan dag.
í ffrítíma og ú kvöldin
Þann tíma sem þátttakendur eru
í Kandersteg gefst kostur á að
ganga fyrirvaralaust inn í nokkra
dagskrárliði sem verða stöðugt í
boði. Þar má nefna sem dæmi
morgunskokk, þjóðdansatíma,
ýmsar íþróttir, leshom, hand-
mennt og blástur í Alpahorn!
Og á kvöldin má skella sér á
varðeld, inn á kaffihús, í um-
ræðuhópa, spilaklúbb, diskótek
eða í keilu.
Lengri dagskrúratriði
Þessi dagskrártílboð eru geysi-
lega fjölbreytt og gefá öllum
þátttakendum kost á að uppiifa
ævintýri við sitt hæfi. Þessi dag-
skrá fer fram um allt land.
Fimmtíu þátttakendur eru í
hvetjum hópi. Þessari dagskrá
er sldpt upp í 7 megin þemu:
- Ævintýri & upplifun
- Almenn ferðamennska
- Menning & saga
- Samfélagið & umhverfið
- Handmennt & listír
- Ferðalög
- íþróttir
Þú velur
þér strax!
Aður en farið er til Sviss velja
þátttakendur sér þann dagskrár-
lið sem þeir vilja taka þátt í. í
kynningunni á hverjum dag-
skrárlið er getíð um þann út-
búnað sem þátttakendur þurfa
að hafa meðferðis, hvaða kröfur
em gerðar tíl þátttakenda og
hve mikið þarf að borga auka-
lega ef viðkomandi dagskrárlið-
ur er ekki innifalin í mótsgjald-
inu. Þessir dagskrárliðir eru 80
talsins.
Hreint útrúlegt
- ekki satt?
Já, það ætti sko allir að finna
eitthvað við sitt hæfi f þessari
fjölbreyttu dagskrá sem í boði
er. Eins og segir hér að framan
þá getum við ennþá bætt
nokkrum við í hópinn.
Af hverju drífurðu nú ekki í að
hringja í síma 91-23190 og lætur
senda þér allar upplýsingar?