Skátaforinginn - 01.12.1991, Side 17
ardaginn 24. júlí en mótsetning
fer fram sunnudagskvöldið 25.
júlf. Þannig gefst heill dagur til
tjaldbúðarvinnu áður en eigin-
leg dagskrá hefst. Mótinu verð-
ur slitið sunnudagskvöldið 1.
ágúst og þannig verður hægt að
nýta frídag verslunarmanna til
frágangs og heimferðar.
Erlendir
skátar
Undirbúningsnefnd vegna er-
lendrar kynningar, móttöku er-
lendra skáta og rekstur ferða-
skrifstofu hefur þegar verið
skipuð. Þetta erfiða verkefni
tóku þau Anna Gunnhildur
Sverrisdóttir ogSigurjón Einars-
son að sér. Þau hafa bæði ára-
langa reynslu í alþjóðstarfi og
Anna er í dag formaður alþjóða-
ráðs. í dag Liggur fyrir áætlun
um þessi mál og kemur m.a.
frarn í henni að kynningarstarf
eriendis mun hefjast í janúar á
næsta ári með því að formlegt
boð verður sent erlendum
bandalögum. Fjölmargar
spennandi hugmyndir hafa
komið upp á yfirborðið varð-
andi erlendu skátana og má
þeirra á meðal nefna alþjóðlegt
torg þar sem erlendir skátar
myndu sjá um fjölbreytta dag-
skrá og ýmsar uppákomur.
Þema landsmóts
Fulltrúar Klakks hafia kynnt fyrir
aðalstjóm nokkrar hugmyndir
að þema mótsins - allar mjög
spennandi. Þessar hugmyndir
verða ekki reifaðar hér en þeim
tilmælum beint til lesenda
blaðsins að leggja höfúðið í
bleyti og koma með hugmyndir
um gott þema.
Undirbúningur félogn
Skátaforinginn hefúr haft spum-
ir af því að sumir séu þegar bún-
ir að leggja drög að landsmót-
sundirbúningi og er það vel.
Tíminn fram að móti er nefni-
lega ekld svo fangur. Við undir-
búning skátaflokks á landsmót
eru nokkur atriði sem þarf að
huga að: tjaldbúðarh'f, áttavit-
inn, söngvar, matreiðsla, hnútar
og súrringar svo nokkuð sé
nefint. Það er alveg graupplagt
að hefja fræðilegan undirbún-
ing þessara þátta nú strax eftir
áramót. Svo má nota sumarið
til að æfia sig og komandi vetur
til að lagfæra það sem lagfæra
þarf. Svo má auðvitað ekki
gleyma flokkakeppninni sem
verður í algleymingi veturinn
fyrir landsmót.
Allir
á landsmót!
Af framangreindu má sjá að
skemmtilegt mót er í uppsigl-
ingu. Það er þó eitt sem alhr
skulu hafa í huga: maður upp-
sker einungis það sem maður
sáir! Góður undirbúningur er
forsenda þess að þátttakendur
njóti alls þess sem gott lands-
mót hefur upp á að bjóða. Hefj-
um því strax markvissan undir-
búning fyrir landsmót og verum
klár í slaginn í Kjamaskógi 1993!
f tengslum við fúnd aðalstjómar BÍS stóð Klakkur fyrir kynningarferð í Kjamaskóg þar sem stjómarfólld var kynnt
aðstaðan og þær framkvæmdir sem farið verður í fýrir landsmótið. Á myndinni er ristjóri Skátaforingjans, Júlíus
Aðalsteinsson, á milli þeirra Ólafs Ásgeirssonar og Hafdísar Óladóttur. Eins og sjá má á myndinni er umhverfið
fallegt og býður skógurinn upp á spennandi vettvang ævintýra.
VINNUFUNDUR Á ÚLFLJÓTSVATNI:
FASTARÁÐIN FUNDA
TEXTI: HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR
Dagana 13. til 15.
septembar s.l. hiHust
alþ|óóaró6, starfs-
ráö, foring|aþ|ólfun-
arráð eg starfsmenn
BÍS til skrafs og ráfta-
gerfta á Úlfl|ótsvatni.
Frá starfsráði komu þau Björk
Thomsen formaður, Karlinna
Guðmundsdóttir Strók,
Guðni Gíslason Hraunbúum
og Guðfinnur Pálsson Skjöld-
ungum. Frá alþjóðaráði
komu þau Anna G. Sverris-
dóttir formaður, Hrönn Pét-
ursdóttir Klakk, Amfinnur U.
Jónsson Landnemum og
Hulda Guðmundsdóttir Garð-
búum. Frá foringjaþjálfúnar-
ráði sátu fundinn þeir Sigurð-
ur Guðleifsson Heiðabúum
og Júhus Aðalsteinsson Ægis-
búum. Helgi Eiríksson og
Guðmundur Pálsson starfs-
menn BÍS sátu einnig þennan
fund.
Fyrri hluta helgarinnar not-
uðu ráðin til að fúnda sitt í
hvom lagi en upp úr hádegi á
laugardag hófist sameiginleg-
ur fundur þar sem ráðunum
gafist kostur á að kynna þau
mál sem væru á stefnuskránni
næstu mánuðina. Seinni
hluta laugardagsins var varið í
umræður um markaðsmál og
útgáfúmál - mjög hressandi
umræður.
Um kvöldið var svo sannköll-
uð veisla en heiðurinn af
henni átti Guðni Gíslason sem
bauð viðstöddum upp á jap-
anskan kjúklingarétt (sem
reyndar er indverskur) og
máttu menn gjöra svo vel að
borða með prjónum uppá
japanska vísu. Á milli lykkju-
falla voru fjörugar umræður
um framtíð skátastarfs en
þeirri umræðu stjómaði
Haukur Haraldsson Land-
nemum en hann var sérstakur
kvöldverðargestur okkar.
Á sunnudag var haldið áfram
fram á miðjan dag við ýmsar
umræður. Þátttakendur í
fundinum voru sammála um
að fundurinn hefði heppnast
vel og hefði mikið að segja
varðandi samskipti og upplýs-
ingaflæði á milli ráðanna.
SKÁTAFORINGINN -17