Bændablaðið - 01.08.1987, Page 2
2
Bændablaðið — BÚ ‘87
BÆNDABLAÐIÐ — BÚ ’87
150 ára afmæli búnaðarsamtakanna:
Þetta blað er aukablað okkar
um sýninguna BÚ ’87 sem
Bændablaðið tekur þátt í.
Áskrifendur fá þetta blað með
3. tölublaði en aðrir fá þetta
blað sent sérstaklega en geta
hringt ef þeir hafa áhuga á að
gerast áskrifendur og fengið þá
aðalblað 3. tbl. Að þessu blaði
unnu allir þeir sömu og getið er
í blaðhaus 3. tbl. en auk þess
Einar Benediktsson, Hjarðar-
haga í Eyjafirði sem er líka sér-
stakur starfsmaður Bænda-
blaðsins á BÚ ’87.
Ritstj. og ábm. Bjarni Harðar-
son.
Bændablaðið
Sími 91—17593
Pósthólf 5403
125 Reykjavík
Söguútgáfa og
afmælisfundir
Landbúnaðurinn er
siðmenningin
Landbúnaðurinn er lífið sjálft. Þess vegna finnst borgarbúanum svo
endurnœrandi að koma ísveitina. Bóndinn er lífgandi afl, sem rœkt-
ar og kemur lífverum tilþroska. En hann varðveitir á sama hátt leyni-
þráð menningarsögunnar á jörðinni. Hlutverk hans er göfugt og
stórbrotið.
Landbúnaður er upphaf menningarinnar áþessari jarðkúlu. Sjálft
orðið menning á alþjóðatungum: CULTURE, — KULTUR osfrv., —
þýðir ekkert nema RÆKTUN. Ogþar voru árstíðasveiflur sem komu
syngjandi rœktendum og búfjáreigendum á sporið við Níl, Indus,
Jangtsekíang, Efrat og Tígris. Þarna upplaukst stjörnufræðin og
tímareikningurinn — og þar með allur reikningur. Seinna dröttuðust
á eftir siglingar, bókmenntir og myndlist.
Sumum finnst tölvuvœddir búreikningar sumra íslenskra bœnda
lítið skylt við hámenningu fornþjóðanna. En grundvöUurinn er hinn
sami: Tökum skal náð á ávexti jarðar.
Öðrum finnst íslenskir góðbœndur bara vera framkvœmdastjórar
í litlum matvœlaverksmiðjum en ekki dæmigerðir bændur, ekki
nógu smáir, gamaldags eða skrítnir. Almenningur hefur oft fengið
brenglaða mynd af nútímabóndanum á Islandi. En það er sama sag-
an íflestum héröðum: Stórfelldar framfarir í jarðrækt, kynbótum og
tækniþekkingu hafa stundum í besta lagi verið dæmdar bruðl og of-
fjárfesting.
Staðreyndin er hins vegar sú að við eigum í landinu harðsnúið lið
sveitafólks sem kann til verka við þessar norðlægu aðstæður, vinnur
mikið og nær stórfenglegum árangri. Vísindamennirnir hafa hjálpað
okkur að læra á gæði landsins og bústofnana.
íslensk menning er enn bœndamenning. Reyndar segja Frakkar
hið sama: Frönsk menning er bœndamenning. Þeir þykjast hafa
stundað landbúnað lengur en aðrir í okkar heimshluta og vita hvað
þeir syngja. Þess vegna er opinber stefna Frakka í málefnum jaðar-
byggða og sveita ótvírœð: Þetta má aldrei undir lok líða. Þeir eru ekki
einir ábáti. Flestallar Evrópuþjóðir skynja hinn djúpa undirtón lífs-
ins og siðmenningarinnar í sveitum sínum.
Þeirsem íbráðrœði höggva til íslensks landbúnaðar beina prikum
sínum að lífinu sjálfu.
Ólafur H. Torfason
Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins
Búnaðarsamtök á íslandi eru
150 ára í ár og er Landbúnað-
arsýningin BU ’87 haldin af því
tilefni. Sömuleiðis verður efnt
til fræðafundar í minningu
Halldórs Pálssonar þar sem
þekktir erlendir búfjárfræðing-
ar tala og núna á laugardaginn
15. kemur Búnaðarþing saman
til sérstaks hátíðarfundar.
Á Búnaðarþingið sem byrjar klukkan
14:00 og er í Súlnasal Sögu koma fjölmargir
gestir, innlendir og erlendir og má meðal
annars nefna að þar verða fulltrúar allra
Norðurlandanna. Flutt verður og rædd sér-
stök þingsályktunartillaga um málefni land-
búnaðarins núna. Að því loknu fundarhlé
og hefst hinn eiginlegi hátíðarfundur eftir
hléið þar sem landbúnaðarráðherrar og
ýmsir gestir flytja ávörp. Að því loknu eru
bornar fram veitingar fyrir opnu húsi, —
uppúr klukkan 16:10.
Minningarfundur um Halldór Pálsson
verður haldinn í ráðstefnusal Bændahallar-
innar dagana 18. og 19. ágúst og þar verður
fjallað um ýmsa þætti sauðfjárræktarinnar.
Sem kunnugt er var Halldór Pálsson heims-
þekktur vísindamaður á sviði sauðfjárrækt-
ar auk þess sem hann leí málefni landbún-
aðar til sín taka í starfi búnaðarmálastjóra
og víðar.
Loks er þess að geta að í tilefni afmælisins
er nú unnið að útgáfu sögu búnaðarsamtak-
anna allt frá stofnun Sauðuramtsins húss og
bústjórnarfélags 1837 og munu gestir BÚ
’87 kynnast því verki nokkuð í sögudeild
sýningarinnar.