Bændablaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 19
Bændablaðið — BÚ ‘87 19 Deutz dráttarvélin stendur alltaf fyrir sínu og var til margra ára mest selda dráttarvélin hér á landi. Bobcat heitir tœkið hér að neð- an, fjölnotavél og stœrsta bylting Hamars hf.á þessu ári. síðast en ekki síst loftkældum dieselmótor sem gefur minna viðhald, lengri endingu og minni bilanahættu. Það er almennt talið að um 80% af bílunum á mótor megi rekja til vatnskælikerfis. Þessi TORPEDO dráttar- vél var upphaflega smíðuð í samstarfi við KLÖCKNER — HUMBOLDT — DEUTZ AG og er í dag framleidd undir leyfum frá KHD AG. Það er mjög líklegt að þessi drátt- arvél taki stóran hluta sölu austantjaldsvéla á næsta ár vegna mikilla yfirburða í gæðum miðað við verð sem er frá kr. 390,000.00. Einnig býður HF HAMAR ámoksturstæki frá RIKO á þessar vélar frá kr. 125,000.00. Frá þessu fyrirtæki er HF HAMAR einnig með gröfubúnað sem hægt er að festa á hvaða dráttarvél sem er. Sjálfstætt vökva- kerfi er á þessum gröfubúnaði sem drifið er af aflúrtaki dráttarvélarinnar. Verðið á þess- um gröfubúnaði er frá kr. 285,000.00. Stærsta byltingin sem HF HAMAR kynn- ir á þessu ári er BOBCAT fjölnotavél, og um hana hefur verið sagt að hún geri allt það sem hin tækin geri ekki. Hún grefur, ýtir, mokar, skefur, jafnar, borar, heggur, grípur, sópar, lyftir, plantar, leggur og m.fl. Þeir sem hafa prófað þessa vél segjast ekki geta án hennar verið. Verðið á vélinni sjálfri er ffá kr. 375,000.00 og er hægt að greiða hana á allt að 3—4 árum með kr. 75,000.00 út- borgun og 50,000.00 á 6 mán. fresti. Þessi vél ætti að vera á hverjum sveitabæ. í þriðja lagi kynnir HF HAMAR á BÚ ’87 vörur frá STRANGKO í Danmörku og er þar um að ræða mjaltakerfi af fullkomn- ustu gerð, mjólkurrennslismæla, tölvustýrt fóðurkerfi, flórsköfur, brynningaskálar, vacumdælur fyrir öll mjaltakerfi og m.fl. Á BÚ ’87 verður sýningarbíll frá fyrirtækinu staðsettur á útisvæði HF HAMARS. Að lokum má minna á hið nýja lánakerfi sem HF HAMAR hefur verið að kynna á undanförnum mánuðum, sem gefur mögu- leika á því að kaupa vönduð tæki hjá HF H AM AR og dreifa greiðslubyrðinni á allt að 4—5 ár. Annars eru hugmyndir HF HAM- ARS með þessum lánakjörum fólgnar í því að kaupandi segir til um sína greiðslugetu og síðan eru greiðslukjörin sveigð að henni. Eins og sjá má á framansögðu er HF HAMAR fyrirtæki sem byggir á sterkum grunni og hefur vaxið jafnt og þétt síðan 1918, en eins og sjá má af þeim mörgu nýj- ungum sem þeir nú bjóða uppá er þarna um fyrirtæki að ræða sem fylgist með og er... ...í TAKT VIÐ TÍMANN. BÆNDABLAÐIÐ vantar ódýr eða gefins húsgögn á skrifstofuna. Borð, skrifstofustóla, skjalaskáp, hillur og fleira. Má vera notað. Ungt fyrirtæki á uppleið - með sparsemi að leiðarljósi. ____ BÆNDASYNIR

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.