Bændablaðið - 01.08.1987, Page 16
16
Bændablaðið— BÚ ‘87
Þjónustuskrá vegna BÚ ’87
VIHHUEFTIRLIT RlKISINS
Administration of occupational safety and health
BLÓMAIVIIÐSTÖÐIN HF.
RÉTTARHÁLSI 2-110 REYKJAVIK
Vinnueftirlit ríkisins starfar
að því að koma í veg fyrir slys og
heilsutjón á vinnustöðum í
landi. Markmiðið er að öryggi,
hollustuhættir og aðbúnaður á
vinnustöðum sé í sem bestu lagi.
Fyrir bændur og aðra atvinnu-
rekendur í landbúnaði hefur
Vinnueftirlitið m.a. gefið út
leiðbeiningabæklingana:
— Öryggi við notkun dráttar-
véla
— Öryggi við notkun drif-
skafta.
Vinnueftirlitið hefur skrif-
stofur á Akranesi, ísafirði,
Sauðárkróki, Akureyri, Egils-
stöðum, Hveragerði, Keflavík
og Vestmannaeyjum.
Auk eftirlits á vinnustöðum
annast Vinnueftirlitið m.a. leið-
beiningar, mælingar og prófan-
ir. Aðalskrifstofan er í Bilds-
höfða 16, Reykjavík, simi
672500.
Fyrirtækið Fínull var stofnað 1.
desember á síðasta ári og eru
stærstu hluthafar Álafoss,
Byggðastofnun, Landssamband
kanínubænda og Kanínumið-
stöðin Njarðvíkum. Fínull rekur
verksmiðju til úrvinnslu á
kanínufiðu sem notuð er i fatn-
að sem fyrirtækið framleiðir.
Verksmiðjan sem keypt var í
Þýskalandi er mjög sérhæfð og
sú eina sinnar tegundar sem get-
ur spunnið jafn fínan þráð úr
fiðunni og notaður er í fatnað
Fínullar hf. Á BÚ ’87 kynnir
fyrirtækið fatnað sinn og gæði
angóraullarinnar.
Fínull hf. óskar Búnaðarfélagi íslands til hamingju
með 150 ára afmælið og veglega Landbúnaðarsýn-
ingu. Bjóðum alla velkomna í bás okkar á sýning-
unni.
Japanirnir tveir ásamt fulltrúa bœndastéttarinnar; Margréti Jóns-
dóttur húsfreyju á Nýhöfn í Melasveit. Aðalritstjóri Sekai Nippo,
Yoshiaki Kinoshito er vinstra megin en Haruo Takebayshi yfirmaður
Sekai Nippo í London er til hægri.
Blómamiðstöðin er stærsti
hlekkurinn í sölu og dreifingu
blóma í blómaverslanir landsins
og á stóran þátt í því að neytend-
ur um allt land eiga núorðið
greiðari aðgang að blómum en
áður.
Blómamiðstöðin hefur og
mesta og lengsta reynslu í með-
ferð og sölu blóma.
Ætíð er hlutast til um að selja
sem vandaðasta vöru, enda sér
Blómamiðstöðin daglega um að
nálgast afurðir hjá sínum fram-
leiðendum. Verslanir og neyt-
endur geta því ávallt treyst á
gæði blóma frá Blómamiðstöð-
inni.
Skógtækni sf. er fyrirtæki,
sem býður tæki og tækni til trjá-
og skógræktar. Fyrstu árin eru
trjánum erfiðust. Því einbeitum
við okkur að tækni, sem örvar
vöxt trjánna fyrstu árin og
tryggir afkomu þeirra.
Meðal þess, sem við bjóðum
eru trjáhlífar og ördropadælur.
Trjáhlífar auka vöxt trjá-
plantna, vernda þær fyrir beit,
illviðrum og illgresi. Ördropa-
dælur eru létt, lipur og mikilvirk
tæki til illgresiseyðingar og fara
sparlega með efni.
Með öllum vörum fylgja ítar-
legar leiðbeiningar á íslensku.
Um tækniþjónustu sér Þorberg-
ur Hjalti Jónsson skógfræðing-
ur í síma 91 18798. Sölustjóri er
Guðbjörg Jónsdóttir í Vest-
mannaeyjuin í síma 98 1500.
BÆ&DAISLAÐIÐ
Bændablaðið selur áskriftir að
blaðinu á sýningunni og for-
svarsmenn blaðsins verða á
staðnum til þess að ræða við
gesti og gangandi. Þarna er því
kjörið tækifæri fyrir þá sem
vilja koma gagnrýni og ábend-
ingum á framfæri.
Að Bændablaðinu stendur
nokkur hópur ungs fólks sem
stofnað hefur með sér óform-
legan félagsskap undir nafninu
Bændasynir, — en frumkvöðl-
arnir eiga þá nafngift allir með
réttu. Blaðið er málgagn lands-
byggðasjónarmiða og óvæginn
vettvangur umræðu um land-
búnaðar og landsbyggðarmál.
Félagið Bændasynir er ekki á
neinn hátt tengt félagskerfi
landbúnaðarins eða stórfyrir-
tækjum sem tilheyra landbún-
aðargeiranum.
Við reiknum með að bjóða
gestum okkar útlenska skinku í
bás okkar á BÚ ’87, — einhvern
tíma á seinniparti sýningarinn-
ar. Vertu velkominn í básinn.
P.S. Við buðum Samtökum um
jafnrétti milli landshluta að vera
með okkur í bás, — enda mál-
staður beggja sá sami!
HEIMSPRESSAN
Á BÆNDAFUNDI
Japanir tveir unnu nafnspjaldahappadrætti
sem efnt var til meðal erlendu fréttamann-
anna sem hingað komu vegna fundar Reag-
ans og Gorbashovs í fyrra. Vinninginn tóku
þeir út fyrir skemmstu með endurkomu upp
til íslands og dvöl á einum af bæjum Ferða-
þjónustu bænda. Þeir Haruo Takebayashi
og Yoshiaki Kinoshita voru á Nýhöfn í
Melasveit og sátu matarboð Bændasamtak-
anna á Hótel Sögu.
í ferð um landið komu þeir meðal annars
við í Hvalstöðinni í Hvalfirði þar sem þeim
bauðst að skera sér hráan hval, nýdreginn að
landi og bragða gómsætið á staðnum. Jap-
anirnir tveir vinna hjá einu af tímaritum
Sekai Nippo, — annar er aðalritstjóri í
Tókíó en hinn yfirmaður útibús í Lundún-
um.