Tónlistin - 01.06.1945, Page 25

Tónlistin - 01.06.1945, Page 25
TÓNLISTIN 23 hann þrjú þeirra latneska nafninu „ora- torium", sem nefnt hefir veriÖ á ís- lenzku „helgimál“. Til grundvallar slík- um verkum er lagður , ritningartexti. „Jólaóratóría“ Bachs segir frá fæðingu Jesú samkvæmt guðspjallinu. Er hún gerð úr sex kantötum, sem Bach hafði áður samið fyrir sex aðalguðsþjónustur jólahátiðarinnar, og er því ekki samin i einni lotu eins og passíurnar. Bach iðk- aði það mikið að fella sálmalög eða kór- allög inn í hin stóru kirkjulegu söng- verk sín. En það gerði Hándel aftur á móti ekki í óratóríuverkum sínum. I „Messíasi“ er ekkert sálmalag. Bach hóf þannig sálmalagið til vegs og virðingar, klæddi það i fegursta skrúða og lét það skarta í kirkjuhátíðarverkum sínum. Stundum kemur sama sálmalagið oft fyr- ir í sama verkinu. Þannig kemur í þessu verki jólasálmalagið við lagboðann „Af himnum ofan boðskap ber“ þrisvar sinn- um fyrir, jafnan í nýjum búningi, og er gaman að veita eftirtekt ólíkum verx- unum þess á hverjum stað, t. d. hinni miklu ofanbirtu, þar sem það kemur fvr- ir í annað sinn. Samkór „Tónlistarfélags- ins“ flutti sönginn. Er þar raddkostur góður. Bassarnir þyrftu þó að vera þyngri og undirstöðubetri, og gjarna hefði kór- inn mátt ,hafa fleiri æfingar. Daníel Þor- kelsson flutti guðspjallatextann skýrt og skilmerkilega. Það hefir viljað brenr.a við hjá okkur við flutning slíkra verka, að hlutföllin milli kórs og einsöngvara hafa raskazt, þannig að lægðir mynduð- ust í flutningi verksins, þegar einsöngv- ararnir tóku við. Þeim er nokkur vork- unn, því að sönglínur Bachs eru oft eins og hugsaðar fyrir hljóðfæri og vand- sungnar. 1 þetta sinn bætti Guðmundur Jónsson úr skák, með liþnni víðfeðmu og voldugu rödd sinni. Kristín Einarsdóttir fór þokkalega með sitt hlutverk. Guð- nin Ágústsdóttir hafði hlaupið í skarðið í forföllum og fór með óþjált og erfitt hlutverk. Hljómsveit Reykjavíkur ann- aðist undirleikinn með prýði. Páll ísólfs- son lék á orgelið með hljómsveit og kór og auk þess einleik á orgelið af sinni al- kunnu snilld. Aðrir einleikarar voru þcir tíjörn Ólafsson fiðluleikari, dr. Edelstein cellóleikari, Karl Runólfsson trompetleik- ari, og var einnig snilldarbragur á með- ferð þeirra. Dr. Urbantschitsch stjórnaði verkinu, og hefir hann enn einu sinni sýnt hvílíkur afbragðskraftur hann erú söng- lífi bæjarins. Er það þrekvirki hið mesta að uppfæra stórverk sem þetta hér í bæ og mikill ávinningur að kynnast því. Baldnr Andrésson. Það má til góðra tíðinda teljast, að hljómleikalífi Reykjavíkur skuli hafa bætzt nýr og ekki ómerkur iiður þar sem er sveit griplaðra strengjahljóðfæra með mandólíni, gítar, mandólu og bassa-man- dólu. Er hér um að ræða nýtt og alþýð- legt iðkunarform tónlistar á voru landi; og ber að fagna þeirri viðleitni, sem mið- ar að því að stækka áhrifasvið tónlistar- innar með því að frambera hana í að- gengilegri og auðskiljanlegri mynd. Þetta hlutverk hefir „Mandólínhljómsveii Reykjavíkur“ tekizt á hendur. Megi henni verða vel ágengt í þvi að laða menn til samleiks á tiltölulega handhæg og auð- lærð heimilishljóðfæri. Það var vel til- fundið, að hljómsveitin lofaði almenn- ingi að kynnast þessari nýju samleikstil- raun. Og verður ekki annað sagt en hug- myndir fólks um mátt samstarfsins á sviði tóns og hljóms hafi skýrzt og vaxið við þetta tækifæri. Að visu má ekki vænta þungrar fyllingar hjá þesskonar hljóð- færasamstæðu, en hljómurinn stingur þægilega í stúf við hina oft og tiðum grófgerðu tónlistarskynjun nútímans. Hljómsveitin lék með góðri tónvísi sex vinsæl alþýðulög undir ötullegri og mjúk- legri stjórn Haralds Guðmundssonar, sem af mikilli ósérplægni hefir byggt sveit- ina upp og æft hana. Að vísu mátti verða þess var, að annað mandólín dró sig um of i hlé og samhljómar voru á stöku stað ekki nógu traustir, en trúmennskan var samt auðsæ í öllum undirbúningi og flutningi, allt frá slipaðri mandólínsóló yfir synkóperuðum yfirröddum til jafns og samfellds tremololeiks hjá forysturödd-

x

Tónlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tónlistin
https://timarit.is/publication/922

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.