Bændablaðið - 10.03.2004, Blaðsíða 16
16 Miðvikudagur 10. mars 2004
ðalfundur Osta- og smjör-
sölunnar sf., sá 45. í röð-
inni, var haldinn föstudaginn
5. mars síðastliðinn, og sóttu
hann fulltrúar mjólkursamlag-
anna og gestir. Fundarstjóri
var kosinn Ásvaldur Þormóðs-
son og fundarritari Karl Stef-
ánsson.
Hvert stefnir?
Birgir Guðmundsson stjórnar-
formaður flutti skýrslu stjórnar
fyrir liðið ár en hún hélt sjö
bókaða fundi þar sem fjallað
var um ótal mál og ákvarðanir
teknar. Birgir minntist á þá ó-
vissu sem nú ríkir varðandi
starfsemi mjólkuriðnaðarins og
starfsskilyrði Osta- og smjör-
sölunnar. Í tilefni af því leitaði
stjórnin til lögmannsstofunnar
Logos og bað hana að kanna
hver staðan er nú og hvert
stefnir. Ítarleg skýrsla um þetta
efni hefur nýverið borist og er
nú til athugunar. Birgir taldi að
skýrslan mundi koma að góðu
gagna við undirbúning að nýrri
stefnumótun og gerð nýs bú-
vörusamnings og þá miklu
vinnu sem hún krefst.
Sneiddur ostur æ vinsælli
Magnús Ólafsson forstjóri flutti
ítarlega skýrslu bæði í máli og
skýringamyndum um starfsemi
Osta- og smjörsölunnar á árinu
2003 en hún var sem fyrr fjöl-
breytileg og öflug og afkoman
góð. Meðal annars kom fram
að sala á sneiddum osti jókst
verulega á árinu eða alls um
15,7%. Aukningin nam 19,1% í
sneiddum osti í neytenda-
pakkningum og 14,3% í
sneiddum osti ætluðum
stórnotendum. Í ljósi mikillar
söluaukningar undanfarin ár
var ákveðið að undirbúa kaup
á fullkomnum tækjabúnaði fyr-
ir sneiðapökkun. Í október
2003 var gengið frá kaupum á
sjálfvirkri sneiðapökkunarvél
frá fyrirtækinu CFS B.V. í
Hollandi. Hún verður væntan-
lega tekin í notkun í aprílmán-
uði næstkomandi, og þá verður
unnt að bjóða upp á mun fjöl-
breyttara úrval af sneiddum
osti.
Ný tæki fyrir rifinn ost
Sala á rifnum osti jókst um
11,9% milli ára. Í fyrra voru
keypt ný tæki til pökkunar á
rifnum osti og þau hafa reynst
mjög vel. Þau hafa orðið til
þess að draga úr framleiðslu-
kostnaði, þar sem færra starfs-
fólk þarf við framleiðsluna,
rýrnun hráefnis og kostnaður
við umbúðir minnkar og afköst
aukast til muna. Söluaukning á
rifnum osti í fyrra var mest
meðal stórnotenda eða 11,7%
en í smásölupakkningum varð
hún 6,9%
Rafræn gæðahandbók
Mikil vinna fór í að bæta raf-
ræna gæðahandbók á árinu til
samræmis við breytingar sem
hafa verið gerðar á ISO-gæða-
staðlinum. Tekinn var upp nýr
staðall, ISO 9001, en með til-
komu hans er lögð meiri á-
herslu á setningu markmiða,
vöruþróun og náin tengsl við
viðskiptavini. Það var haustið
1991 sem tekið var að huga að
gæðakerfi sem henta mundi
fyrirtækinu. Vorið 1992 var
valið kerfið ISO 9002, og eftir
tímafrekan undirbúning var
takmarkinu náð og vottun
fékkst í ágústmánuði 1994.
Síðan hefur gæðastjórnun ver-
AÐALFUNDUR OSTA- OG SMJÖRSÖLUNNAR SF. :
Öflug starfsemi
og góð afkoma
A
Magnús
Ólafsson
sextugur
agnús Ólafsson, forstjóri
Osta- og smjörsölunar,
varð sextugur 6. mars síðast-
liðinn og tók á móti gestum í
Akoges- salnum. Mikill fjöldi
vina og samstarfsmanna
fagnaði með honum og fjöl-
skyldu hans þessum merku
tímamótum. •
Helgi Jóhannesson ávarpar
Magnús og afhendir honum
andvirði listaverks að gjöf frá
Osta- og smjörsölunni.
ið ómissandi þáttur í starfsemi
Osta- og smjörsölunnar.
Vel heppnaðar auglýsingar
Nýstárleg og vel heppnuð aug-
lýsingaherferð var í tengslum
við markaðssetningu á Léttu
og laggóðu með olífuolíu. Saga
film annaðist gerð sjónvarps-
auglýsinganna, sem fylgt var
eftir með stuðningsefni í dag-
blöðum og tímaritum og á
strætisvagnaskýlum. Athygli
vakti að ´sjónvarpsauglýsing-
arnar voru teknar í Slóveníu
með þarlendum leikurum.
Önnur auglýsingaherferð, sem
einnig tókst með ágætum, var
skafmiðaleikur í samstarfi við
Laugarásbíó; aðrir samstarfs-
aðilar voru Bónus og Iceland
Express. Endurnýjaður var á
árinu birtingarsamningur
vegna sjónvarpsauglýsinganna
með leikkonunum Helgu
Brögu Jónsdóttur og Halldóru
Geirharðsdóttur. Þessar vin-
sælu auglýsingar verða birtar
fram á vormánuði 2004 en þá
verður allt auglýsingaefni fyrir
osta endurnýjað.
Stjórnin endurkosin
Stjórn Osta- og smjörsölunnar
var endurkosin í lok aðalfund-
arins en hana skipa: Birgir
Guðmundsson, Helgi Jóhann-
esson, Erlingur Teitsson,
Þórólfur Gíslason og Guðlaug-
ur Björgvinsson. Varamenn
voru kjörnir: Magnús H. Sig-
urðsson, Guðmundur Þor-
steinsson, Jóhannes Ævar
Jónsson, Hólmgeir Karlsson og
Snorri Evertsson. •
Ísland í
þriðja sæti
sland er í þriðja sæti
samkvæmt skýrslu IDF
um mestu ostaþjóðir heims
á árinu 2002. Í efsta sæti er
Grikkland með 27,5 kg á
hvern íbúa, Frakkland er í
öðru sæti með 25,8 kg. og
síðan komum við með 22,3
kg. Hafa ber í huga að
kvarg er haft með ostum er-
lendis og skyrið hjá okkur.
Neyslan hér á landi er enn
meiri á árinu 2003 eða 23,9
kg.; ostur er 15 kg. og skyr-
ið 8,9 kg. •
Í
M
Yst til vinstri er Ásvaldur Þormóðsson fundarstjóri, í miðju sést Birgir Guðmundsson stjórnarformaður og loks
Magnús Ólafsson forstjóri í ræðustóli.
Séð yfir fundarsalinn á aðalfundi Osta- og smjörsölunnar.