Bændablaðið - 10.03.2004, Síða 26

Bændablaðið - 10.03.2004, Síða 26
26 Miðvikudagur 10. mars 2004 Á dögunum fóru röskir tveir tugir loðdýra- bænda til Danmerkur í því skyni að kynna sér starfsemi danska uppboðshússins í Kaupmannahöfn og fylgjast með lands- sýningu á skinnum danskra loð- dýrabænda. Sýningin var í Herning á Jótlandi, en þar voru einnig sýnd tæki og tól sem notuð eru í loðdýrarækt. Loðdýraræktin er í uppsveiflu nú um stundir en á síðustu árum hafa framleiðendur fatnaðar notað mikið af skinnum t.d. í bryddingar og nú beinast tískustraumar aftur að heilum pelsum - loðdýrabændum til mikillar ánægju. Dönsk loðdýrabú stækka stöðugt og hið sama gildir um tæki sem eru notuð á búunum. Um leið er reynt að létta vinnuna og auka afköstin. Tækin verða sífellt dýrari og afkastameiri svo að lítil loðdýrabú standa ekki alltaf undir fjárfestingunni. Því hafa til dæmis margir danskir bændur brugðið á það ráð að stofna sam- eiginlegar verkunarstöðvar sem verka allt að 150-200 þúsund skinn á ári - auk þess hefur sam- vinna verið aukin á ýmsum öðrum sviðum. Á Íslandi eru 35 loð- dýrabændur sem framleiða árlega um 150 - 160 þúsund minkaskinn og um 11 - 12.000 refaskinn. Danskir loðdýrabændur eru rétt rösklega 2000. Ársframleiðslan er 12 milljónir minkaskinna og 40 þúsund refaskinn. Íslensku bændurnir skoðuðu sérstaklega skinn sem danskir bændur voru með á sýningunni og það var mál manna að þar væri gífurlega mikið af frábærum skinnum en athygli vakti að allnokkur búnt hefðu ekki náð langt á sýningum hér á landi. Stutt er síðan haldin var sýning á af- urðum loðdýrabænda í Reykjavík þannig að auðvelt var fyrir ferða- langana að bera saman það besta á Íslandi og í Danmörku. "Það hefur orðið gríðarleg framför í loðdýra- rækt á Íslandi," sagði Árni Krist- jánsson, framkvæmdastjóri Sam- bands íslenska loðdýrabænda. "Við erum komin að toppnum en nokkrir bændur á Íslandi eru að fá að meðaltali sama verð og Danir." Danskir loðdýrabændur búa við þann augljósa kost að greiða lægra verð fyrir loðdýrafóður en íslenskir starfsbræður þeirra. Svo virðist sem það ríki meiri skiln- ingur á því í Danmörku en á Ís- landi að heppilegra sé að loðdýr éti t.d. sláturúrgang - og á þann hátt séu sköpuð verðmæti - fremur en að úrganginum sé fargað. Það kostar peninga að urða úrgang og sums staðar er það ekki liðið. Þannig fá hollenskir bændur greitt fyrir að taka á móti sláturúrgangi. Forsvarsmenn ýmissa fyrir- tækja á Íslandi hafa sýnt áhuga á að láta úrgang fara í loðdýra- ræktina fremur en að henda honum. Sem dæmi má nefna Síldarvinnsluna í Neskaupsstað, sem rekur laxeldi í Mjóafirði, en SR frystir afskurð sem loðdýra- bændur nýta. Loðdýrabændurnir sem Bændablaðið ræddi við um þessi mál sögðu að hægt væri að tilgreina fjölmörg dæmi þar sem sláturúrgangur hefði verið urðaður eða honum hent frekar en að koma honum í fóðurstöð. "Sem betur fer er þetta viðhorf að breytast, en lægra fóðurverð heima er forsenda þess að hægt sé að stunda loðdýra- rækt á Íslandi. Við verðum að minnsta kosti að standa jafnfætis samkeppnislöndum okkar hvað þetta varðar ef greinin á að eiga sér framtíð. Loðdýraræktin getur orðið að ígildi stóriðju," sagði Árni og undir það tóku margir af viðmælendum blaðsins. Bent var á að stöðugt væri þrengt að búskap á meginlandi Evrópu og það á jafnt við um loðdýrarækt og ýmsar aðr- ar greinar. Af þeim sökum sagði Árni að það væri ekki fjarri lagi að ætla að Ísland gæti orðið stórveldi á sviði loðdýraræktar enda skorti hér hvorki landrými né fóður. Loðdýrabændurnir Gauti Halldórsson og Bjarni Stefánsson, sem eiga sæti í fagráði í loðdýrarækt, sátu nokkra fundi ytra til að kynna sér stefnu og strauma í loðdýraræktinni. Þeir voru sammála um að saman- burðurinn við Dani væri síður en svo óhagstæður. "Markmiðið er að ná Dönunum og fara fram úr þeim," sagði Bjarni og benti á að þegar harðnaði á dalnum dyttu þeir út sem rækju lestina. "Við verðum að vera framan við miðju ef við ætlum að vera með." Á fundum þeirra félaga kom fram að nú væri verið að kanna möguleika á einstaklingsfóðrun loðdýra. Þetta er vel þekkt í naut- griparæktinni og rétt eins og þar virðist einstaklingsfóðrun í loð- dýrarækt ætla að gefast vel. Gauti sagði að einstaklingsfóðruð dýr væru stærri og fóðurnotkun væri minni. Bjarni benti líka á að í ræktun yrðu þau dýr valin sem hefðu góða fóðurnýtingu. Getur loðdýraræktin orðið ný stóriðja á Íslandi? Hópurinn sem fór utan til að kynna sér allt það nýjasta og besta í loðdýrarækt. Hér má sjá Skagfirðingana Benedikt Agnarsson, Breiðstöðum og Harald Stefánsson, Brautarholti og Reyni Barðdal, Sauðárkróki með þönur úr plasti en þær eru hluti af samstæðu sem strekkir skinn og þurrkar. Plastpokum er rennt yfir skinnið þegar það er þurrkað. Reynir sagði að þessi vél væri ein mesta byltingin í þurrkun á skinnum sem hefði komið fram á liðnum árum. Bjarni Gauti Þau Katrín Sigurðardóttir og Stefán Guðmundsson á Mön, sem einnig reka loðdýrabú á Hraunbúi í Gnúpverjahreppi, voru að skoða búr þegar Bbl. hitti þau á sýningunni. Katrín sagði að þau hefðu séð margt sem gæti komið sér vel í búskapnum og nú biði þeirra að forgangsraða. „Ég sá t.d. hér nýja strekkivél sem ég hef mikinn áhuga á - en vélin er dýr. Hér er líka ný fláningslína sem krefst aðeins eins manns í stað þriggja eins og staðan er hjá okkur núna - og þessi eini mundi afkasta meiru,“ sagði Katrín. Stefán minnti á að í Danmörku er litið á loðdýrarækt sem mikilvægan atvinnuveg. „Heimsókn á svona sýningu virkar eins og vítamínsprauta. Nú förum við heim og brettum upp ermar.“ Katrín Stefán Danirnir efndu til margra tískusýninga sem vöktu gríðarlega athygli. Árni Kristjánsson, framkvæmda- stjóri SÍL og kona hans Ragn- heiður Skúladóttir.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.