Bændablaðið - 06.07.2004, Side 2

Bændablaðið - 06.07.2004, Side 2
2 Þriðjudagur 6. júlí 2004 Skógrækt ríkisins og BYKO hafa endurnýjað samning sín í milli um að BYKO selji timbur frá Skógræktinni. Að sögn Þrastar Eysteinssonar, þróunar- stjóra hjá Skógræktinni, byrjaði þetta samstarf fyrir nokkrum árum þegar BYKO hóf að styrkja grisjun í skóg- lendum Skógræktarinnar. Þröstur segir að fyrir 10 árum hafi BYKO byrjað að selja unninn við úr skóglendum Skógræktarinn- ar. Þar hafi síðan fengist borðviður af íslensku birki og íslensku lerki og ýmsu öðru sem BYKO hefur tekið til sölu svo sem plattar úr lerki og arinviður þó að mest af honum sé selt á bensínstöðvum landsins. ,,Þetta er nú ekki mikið magn því framleiðslan er ekki mikil úr íslenskum skógum enn sem komið er. Það hefur spurst út meðal hand- verksmanna og skóla að þarna sé íslenskur viður til sölu. Það sparar þeim á höfuðborgarsvæðinu að hringja í skógarverðina úti á landi og panta hjá þeim efni. Nú geta þeir bara farið í BYKO og keypt íslenskan við," sagði Þröstur. Á höfuðborgarsvæðinu fellur mikið til af trjáviði og af og til falla til stórir og miklir trjábolir af ösp eða greni sem garðeigendur eru að losa sig við. Einnig koma stundum tegundir sem handverks- menn sækjast mjög eftir svo sem hlynur og silfurreynir. Það gerist oft þegar hús í eldri hverjum skipta um eigendur að nýja fólkið sem kemur inn byrjar á að grisja skóg- inn á lóðinni vegna þess að það vill sjá til sólar. Þetta fólk hefur ekki sömu tilfinningar til trjánna og fólkið sem gróðursetti þau og fellir þau gjarnan. Hefur Skógrækt ríkisins boðið upp á að fletta slíka boli gegn vægu gjaldi. Enda þótt fólk þurfi leyfi til að fella tré sem hafa ná ákveðinni hæð segir Þröstur að æskilegt væri að koma upp lista yfir friðlýst tré, bæði á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri, því menn sæju eftir sumum gömlum fallegum trjám sem felld eru. Slík tré eru ekki aðeins minnismerki um bjartsýni og framtíðarvonir fólks í skóg- lausu landi á fyrri hluta 20. aldar heldur gefa þau einnig dýrmætar upplýsingar um aðlögun viðkom- andi tegundar og geta orðið mikil- væg uppspretta fræs til til ræktunar skóga framtíðarinnar. BYKO selur timbur frá Skógrækt ríkisins Innflutningur er hafinn á náttúruefnum frá Danmörku sem reynast afburðavel gegn bráða júgurbólgu og fleiri kvillum í kúm. Sömuleiðis er eitt efnanna hitalækkandi. Það er Guðmundur Jón Guðmundsson, bóndi í Holtseli í Eyjafirði, sem hefur tekið að sér umboð fyrir þessi hómópataefni, sem ekki má kalla lyf á Íslandi. Guðmundur Jón fór á Agromek landbúnaðarsýninguna í Danmörku í vetur eins og fleiri íslenskir bændur. Hann kom þá við í sýningarbás þar sem danskur maður, Per B. Andersen, var að kynna þessi efni sem hann hefur umboð fyrir í Danmörku. Guðmundur Jón segist ekki hafa verið mjög trúaður á þetta en hafi samt fengið smá sýnishorn af efnunum til reynslu því ekki sé hægt að neita því sem maður þekki ekki, eins og hann orðaði það. Efnin eru unnin úr mismunandi jurtum eftir því til hvers á að nota þau. Fyrirtækið heitir AltaVet og hefur selt þessar vörur í Danmörk í 11 ár en efnin er framleidd í Frakklandi og hafa verið í framleiðslu síðan 1936. ,,Við prófuðum efnin á kú sem var með júgurbólgu og gripum inn í um leið og fyrstu merkin sáust. Júgurbólgan var nánast horfin um kvöldið og alveg næsta morgun. Kúnum eru gefin þessi efni inn líkt og þegar verið er að lækna súrdoða og það virkaði fullkomlega. Efnið kemur til landsins sem fæðubótarefni og hefur þegar verið samþykkt af aðfangaeftirlitinu sem slíkt," sagði Guðmundur Jón. Efnum er úðað upp í kýrnar með úðabrúsa, u.þ.b. 15-20 ml í skammt, en ekki hellt ofan í kýrnar eins og súrdoðaefnum. Kýrnar eiga helst að taka þessi efni upp í gegnum slímhimnuna í munninum. Þess vegna er best að úða efnunum. Guðmundur Jón segir að þegar fúkkalyf eru notuð þá séu teknar fjórar til fimm túbur í kúrinn sem tekur jafn marga daga. Síðan bætast við 6 dagar í útskolun og þessa 10 til 11 daga verður að hella niður mjólkinni nema hvað hægt er að gefa hana kálfum síðust 2 dagana eða svo. Fyrir utan afurðatap kostar lyfið og dýralæknir sem kalla verður til á milli 30 og 40 þúsund krónur. Danska náttúruefnið kostar um það bil helmingi minna að sögn Guðmundar og það eyðir júgurbólgunni strax og því verður ekkert afurðatap. ,,Ég tel að með afurðatapi og dýralækni kosti hvert júgurbólgutilfelli vart undir 20-30 þúsund krónum en einn lítri af frönsku efnunum kostar um 20 þúsund krónur og dugar í um það bil 10-12 meðhöndlanir. Þessi efni eyða ekki júgurbólgunni heldur virkja ónæmiskerfi kúnna til að gera það sjálft." Eitt efnanna hjálpar til við að losa fastar hildar. Per B. Andersen kom í heimsókn til Íslands í maí og kom þá með sýnishorn af því efni með sér. Það hefur þegar verið prófað á tveimur kúm og virkar fullkomlega, að sögn Guðmundar Jóns Guðmundssonar. Franskt náttúruefni gegn júgurbólgu Heyforði kúabænda í landinu árið 2003 varð 57% umfram þarfir sem stafar af einstöku góðæri í fyrrasumar og ríflegri áburðagjöf miðað við tíðarfar. Breytilegur kostnaður við þetta umframhey nemur á annað hundrað milljónum króna. Bara plastið á það kostar um 50 milljónir króna. Þá er eftir olíu- kostnaður, laun, garn og annað sem til fellur. Þetta segir Baldur H. Benjamínsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands. Hann segir að margir bændur sleppi fasta kostnaðinum og segist eiga vélarnar hvort sem er. Hins vegar sé þetta það mikið hey að það er farið að skipta máli í sambandi við slit á vélum. ,,Ég held að mjög margir hafi verið á verði í ár því ljóst er að bændur keyptu mun minna af áburði en vanalega og menn bera á minni svæði en þeir hafa gert undanfarin ár. En það má gera ráð fyrir að í ár verði enn betra hey- skaparsumar en í fyrra því dæmi voru þess að menn byrjuðu að slá í maí. Slíkt hefur aldrei áður gerst síðan land byggðist," sagði Baldur. Hann var spurður hvað bændur gætu gert við umframheyið. Hann nefndi sem dæmi að uppi á Gler- árdal við Akureyri hefur verið stofnað fyrirtækið Tæting ehf. sem jarðgerir lífrænan úrgang. Mikið fellur til á Akureyri af lífrænum úrgangi en það vantar stoðefni sem heyið er. Hins vegar mun líklega falla til meira magn af heyi en Tæting ehf. getur notað. Þá bendir Baldur á að hey hafi verið notað til landgræðslu víða um land. En þeg- ar svona mikið fellur til af um- framheyi eins og var í fyrra sé erfitt að koma því í lóg, þetta sé í raun vandamál. Heyforði í fyrra 57% umfram þarfir Mikill skortur á nautakjöti Samkvæmt yfirliti frá Landssamtökum sláturleyfishafa var 13,5% minni nautakjötssala í maí 2004 miðað við sama mánuð 2003. Sömu sögu er að segja um sölu á 12 mánaða tímabili frá 1. júní 2003 til 31. maí 2004 en þá hefur nautakjötssala dregist saman um 18.1 tonn miðað við sama tímabil árið á undan. Hermann Árnason, sláturhússtjóri SS, sagði ástæðu minni sölu þá að það skorti kjöt í sláturhúsin. "Það hefur stórlega dregið úr framboði á nautakjöti og þá alveg sérstaklega ungnautakjöti. Þetta er afleiðing af lágu verði til bænda í langan tíma. Þumalputtareglan er sú að sá er elur upp íslenskt naut nær því upp í 250 kg á tveimur árum. Samkvæmt núverandi verði fengi bóndinn 130 til 140 krónum á dag í þessi tvö ár fyrir að ala nautið. Þá er eftir að greiða fyrir fóður og húsnæði," sagði Hermann. Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norðlenska, sagði að þar á bæ fengju menn allt of fáa nautgripi til slátrunar. "Við gætum selt alla nautavöðva sem nú eru í boði tvisvar til þrisvar sinnum," sagði Sigmundur. Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, segir kúabændur ekki hafa orðið vara við aukinn þrýsting á innflutning nautakjöts. Hann bendir á að sláturleyfishafar hefðu ekki vilja borga bændum raunhæft verð fyrir tveimur árum en þá var tekin ákvörðun um ásetning þeirra gripa sem hefðu getað verið tilbúnir til slátrunar nú. Þórólfur segist ekki eiga von á breytingu fyrr en bændur fái viðunandi verð fyrir kjötið. Formaður LK sagði að bændur hefðu fengið rangar upplýsingar varðandi biðlista eftir að koma nautgripum í slátrun en á sínum tíma hefði því verið haldið fram að framboðið væri afar mikið og því væri verðið lágt. "Á þessum biðlistum voru gripir sem ekki voru til," sagði Þórólfur og hann segist spyrja sig hvort núverandi tölur séu réttari en þær sem gefnar voru upp fyrir tveimur árum þegar biðlistar voru sagðir langir. "Vera má að eitthvað hafi dregið úr framboði en við höfum ekki tölvutækt skyldumerkingakerfi og meðan svo er þori ég ekki að fullyrða um þetta mál," sagði Þórólfur. Landnýtingarákvæði gæðastýringarinnar taka ekki gildi fyrr en á næsta ári Landgræðslan hefur sent bréf út í sveitarfélög og látið vita að vegna ástands á tilteknum afréttum geti þeir sem nýta þá ekki uppfyllt skilyrði gæða- stýringar fyrr en búið sé að vinna einhverjar landnýtingar- eða land- bótaáætlanir. Að sögn Sigurgeirs Þor- geirssonar, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, hafa sumir tekið þetta þannig að þeir muni ekki fá gæðatengdu greiðslurnar í ár en það er ekki rétt. Land- nýtingarákvæði gæðastýringar- innar gilda ekki í ár vegna þess að úttekt á jörðum var ekki lokið nógu snemma. Allir sem á annað borð uppfylla önnur skil- yrði gæðastýringarinnar fá þessar greiðslur í ár og land- nýtingarákvæðin taka ekki gildi fyrr en á næsta ári. Per B. Andersen kom hingað til lands ásamt eiginkonu sinni, Helgu. Hér eru þau stödd norður í Eyjafirði.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.