Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 6. júlí 2004 7 Við spurðum um höfund vísunnar ,,Fjallkóngur í fjórtán ár" í 11. tölublaðinu og fengum svar. Að vísu á það að vera fimmtán ár en ekki fjórtán í fyrstu línu en höfundur vísunnar hét Ásmundur Gíslason sem bjó í Besey í Norðurárdal á 19. öld. Vísuna orti hann um Jón Sæmundsson, hreppstjóra að Hamri í Þverárhlíð og leitarstjóra og réttarstjóra í Fiskivatnsrétt. Þá var til lítil rétt sem hét Víghólsrétt og vildi Jón Sæmundsson leggja hana niður og fá allt féð í Fiskivatnsrétt og því fór hann og braut Víghólsrétt niður og það var tilefni vísunnar. Spurt á ný Enn á ný langar mig til að spyrja um höfund ágætrar vísu sem ég lærði á dögunum. Mannsnafnið þarf ekki að vera rétt: Sigurður hefur farið flatt flæktur í gögnum hæpnum, dæmdur fyrir að segja satt en sýknaður af glæpnum. Um suma Kristján Bersi sendi þessa skemmtilegu vísu á Leir ,,eins og ég lærði hann einhvern tímann í einhverju þjóðsagnasafni var hún á þessa leið": Ef sumir vissu um suma, hvernig sumir eru við suma, þegar sumir eru frá, - þá væru ekki sumir við suma eins og sumir eru við suma, þegar sumir eru hjá. Kommarnir og sálirnar Sumir kættust vegna dómsins yfir Davíð en hægri menn urðu reiðir og kölluðu alla sem kættust komma og að þeir hefðu allaf eina sál þegar svona mál kæmu upp. Þá orti Hjálmar Freysteinsson: Sýnist vera sannað mál segir okkur heimild traust, að kommar eiga eina sál en íhaldið er sálarlaust. Kjósendur bjánar Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku sendi nýlega frá sér vísnabók sem hann kallar ,,Ekki orð af viti". Á einum stað segir Ragnar að nokkrir frændur hans og vinir hafi boðið sig fram fyrir hina ýmsu flokka í kosningum en ekki fengið sérlega góða kosningu. Þá orti hann í orðastað þeirra allra: Mér finnst almættið ýtið og frekt og óhæf þess víðtæka mekt. Mér finnst kjörstjórnin kjánar og kjósendur bjánar og lýðræðið andstyggilegt Elsta listgreinin Ragnar Ingi Aðalsteinsson segir í kveri sínu Ekki orð af viti að menn hafi deilt um það hvort súludans væri list eður ei. Ragnar orti: Til listgreina ljúfra það telst og list í því gjörvöllu felst. Að leggjast á bakið með lífið allsnakið er allra listgreina elst. Mælt af munni fram Um nokkurra áratuga skeið hefur á alþjóðavettvangi verið fjallað um viðskipti milli landa með það að markmiði að draga úr hömlum á þeim. Samningar um aukið frelsi í viðskiptum með búvörur hófust á vegum GATT á 9. áratugnum en GATT var leyst af hólmi með stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, 1992. Hugmyndin á bak við aukið frelsi í viðskipt- um er sú að frelsið auki velmegun þjóða jafnt og einstaklinga. Um langan aldur hafa lönd hins vegar varið markaði sína með tollum, sem lagð- ir hafa verið á innflutning, og greitt með út- flutningi á matvælum sínum og mörgum öðrum vöruflokkum. Fórnarlömbin í þessum viðskiptum hafa einkum verið fátæk lönd, þróunarlönd, sem koma ekki framleiðslu sinni á markað og eru illa varin eða óvarin gagnvart ódýrum innflutn- ingi, sem rænir þeirra eigin bændur lífsbjörg- inni. Við fall Sovétríkjanna árið 1989 var eftir- minnilega staðfest hrun kommúnismans í reynd hvað sem leið fagurri hugmyndafræði þeirrar stefnu um jöfnuð og réttlæti. Jafnframt fékk andstæða kommúnismans, kapítalisminn, mikinn byr í seglin. Alþjóðaviðskiptastofnunin hefur reglulega haldið fundi með þátttöku allra aðildarþjóða sinna þar sem á dagskrá hefur verið aukið frelsi í viðskiptum í anda alþjóðahyggju. Þær niður- stöður, sem að hefur verið stefnt, hafa þó ekki fengist. Fastur fylgifiskur þessara funda er jafnframt að mótmælendur alþjóðavæðingar- innar, af ýmsum toga, hafa fjölmennt á fundar- staðina. Síðustu viðræðulotu innan GATT/WTO lauk 1994 og þar var í fyrsta sinn samið um aukið frelsi í viðskiptum með búvörur. Árið 2001 fór síðan ný viðræðulota af stað í Doha, svokölluð Dohalota. Stefnt var að því að samningum lyki á þessu ári og tækju þeir gildi 2005. Sú tímaáætlun er nú farin út um þúfur, en viðræðurnar eru í fullum gangi og er tíðinda vænst af ráðherrafundi sem haldinn verður í Genf í lok júlí á þessu ári. Samkvæmt hugmyndafræði alþjóðavæðing- arinnar skal hver þjóð njóta þess að framleiðsla hennar sé hagkvæmari og ódýrari en annarra þjóða. Til að leggja mat á stöðu hverrar þjóðar í þeim efnum er reiknað svokallað PSE, sem kallað hefur verið tekjuígildi stuðnings við landbúnað í hverju landi, miðað við heimsmarkaðsverð. PSE hefur þó sína veik- leika. Þannig er tekjuígildi stuðnings við mjólk- urframleiðendur í Evrópu fundið með því að ganga út frá mjólkurverði á Nýja-Sjálandi að viðbættum flutningskostnaði á þungaeiningu á osti eða smjöri til Evrópu. Eftir því sem lengur hefur liðið hefur æ betur komið í ljós að stefna Alþjóða viðskipta- stofnunarinnar, að beita viðskiptafrelsi og al- þjóðavæðingu til að jafna kjör ríkra og fátækra þjóða, á sér ýmsa annmarka. Þar má í fyrsta lagi nefna að sífellt fleiri þjóðir krefjast þess að hafa matvælaöflun til eigin þarfa á sinni könnu. Ástæða þess er sú að þær vilja ekki eiga þessa mikilvægustu undirstöðu í lífi hvers manns, matinn, undir öðrum, þ.e. að framboð á nægum og hollum mat sé tryggt. Þá er matvælaframleiðsla og búseta í hverju landi nátengd frá aldaöðli og mikilvægur hluti af menningararfi hverrar þjóðar og sjálfsmynd hennar. Í því sambandi kemur oft upp hugtakið búsetulandslag í umræðunni, þar sem aldagróin byggð á nú undir högg að sækja. Þessara sjónarmiða gætir mjög í nýrri land- búnaðarstefnu ESB en samkvæmt henni á að greiða opinber framlög til landbúnaðar að ein- hverju leyti sem byggðastyrki (svokallaðar grænar greiðslur). Á hinn bóginn vex fylgi við því á alþjóða- vettvangi að afnema markaðstruflandi styrki með útflutningi, hvort sem er í beinum fjár- framlögum eða sem greiðslufresti. Á síðari árum hefur sífellt meira borið á því að auðug alþjóðleg fyrirtæki eða auðugir aðilar, sem starfa í svokölluðum þróunarlöndum, hafi boðið fram búvörur á alþjóðamörmarkaði á lágu verði. Þetta hefur gerst í framhaldi af sams konar starfsemi á öðrum sviðum, þar sem kunnust er fataframleiðsla og samsetning raf- tækja. Við þessa framleiðslu eru starfsmönnum greidd afar lág laun og öll vinnuskilyrði og at- vinnuréttindi látin lönd og leið. Við bú- vöruframleiðslu eru umhverfismál þar að auki fótum troðin sem og reglur um notkun eitur- efna. Viðkomandi þróunarlönd standa illa í við- skiptum við þessi fyrirtæki. Þau eru að leitast við að efla atvinnulíf í löndum sínum en kröfum þeirra um úrbætur í aðbúnaði og umhverfis- málum er svarað með hótunum um að starf- semin verði lögð niður og flutt til landa þar sem hún sé velkomin. Ódýrar vörur, þar á meðal búvörur, eru síðan fluttar á markað hvar sem hann er að finna og nýtt það frelsi sem nú hefur fengist um rýmkun alþjóðaviðskipta. Fregnir um alvarlegar afleiðingar þessa fyrir fátæk lönd berast úr ýmsum áttum. Þar má nefna stórfelldan flótta bænda í Mexíkó frá búum sínum þar sem ódýrt korn og sojabaunir streyma inn í landið frá Bandaríkjunum. Frá Indlandi berast einnig fréttir um áföll í landbúnaði vegna ódýrs inn- flutnings og fjölda sjálfsvíga gjaldþrota bænda. Þann lærdóm verður að draga af baráttu Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar fyrir frjálsum við- skiptum og alþjóðavæðingu að þar birtist veik- leiki kapítalismans. Af öllum fram- leiðsluþáttum er þar frelsi fjármagnsins eitt sem sett er í öndvegi. Afrakstur af fjármagni er æðri réttindum og þörfum fólks sem og um- hverfisins. Þessi stefna stenst ekki hugmyndir um sjálfbæra þróun, sem er forsenda þess að líf fái að þróast til lengdar. Kommúnisminn stóðst ekki raunveruleikann, hinn óhefti kapítalismi gerir það ekki heldur. /M. E. Kjallarinn Hagkerfi og sjálfbær þróun Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson Sveitarstjórnarmenn á Vesturlandi hafa brugðist hart við þeirri ákvörðun fv. menntamálaráðherra, Tómasar Inga Olricht, að sniðganga Vestlendinga við úthlutun fjármagns til menningarsamnings og úthluta 240 milljónum til menningarsamnings á Akureyri á síðustu dögum hans í embætti. Nú er ekki sjálfgefið að fólk almennt geri sér grein fyrir því út á hvað menningarsamningur gengur og er rétt að skýra það hér í nokkrum orðum. Frá árinu 2001 hefur vinnuhópur á vegum Atvinnuráðgjafar Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi unnið að stefnumótun og undirbúningi menningarsamnings við menntamálaráðuneytið, með fullum vilja og hvatningu frá ráðuneytinu. Höfð var til hliðsjónar skýrsla starfshóps sem menntamálaráðherra skipaði árið 2000 en sá starfshópur lagði til að "Á grundvelli menningarstefnu verði fjárhagsgrunnur menningarstarfs í viðkomandi sveitarfélögum tryggður, m.a. með samningum við menntamálaráðuneytið". Hugmyndin er sem sagt komin frá vinnuhópi skipuðum af menntamálaráðherra. En í tengslum við samþykkt Alþingis um stefnu í byggðamálum fyrir árin 1999-2001 var m.a. lögð áhersla á að efla menningu á landsbyggðinni og því var áðurnefndur vinnuhópur skipaður. Hugmyndin byggir á því að fjármagn komi í menningarsjóð samkvæmt menningarsamningi ríkisins og viðkomandi sveitarfélaga eða samtaka þeirra. Veittir verði síðan styrkir úr sjóðnum til sérstakra menningarverkefna en skilyrði fyrir úthlutun úr sjóðnum er að viðkomandi umsækjandi sýni fram á mótframlag til verkefnisins a.m.k. 50%. Auglýst yrði eftir umsóknum eigi sjaldnar en árlega. Stefnumótun og samningsdrög voru nánast tilbúin til undirskriftar af hálfu sveitarfélaganna á Vesturlandi og menntamálaráðuneytisins á haustdögum 2002 en fv. menntamálaráðherra taldi ekki möguleika á að setja fjármagn til samningsins við gerð fjárlaga ársins 2003 og 2004 vegna fjárskorts. Við undirbúning samningsins horfðu Vestlendingar til sambærilegs samnings á Austurlandi sem í gildi hefur verið í nokkur ár. Það er ekki nokkur vafi á að þar hefur samningurinn virkað mjög vel á mannlífið, stuðlað að markvissu uppbyggingarstarfi menningarmála og öll sú framkvæmd verið heimamönnum þar til sóma. Undanfarin misseri hefur gríðarlegum fjármunum verið varið til menningarmála á landinu öllu. Það er hluti af lífsgæðum Íslendinga að hafa öflugt menningarlíf og nauðsynlegt að ríkið styðji við menninguna með myndarlegum hætti. Við borgum öll okkar skatta til samfélagsins hvar á landinu sem við erum. Það vekur því óneitanlega athygli hversu mikil mismunun virðist vera í úthlutun fjármagns til menningarmála eftir landshlutum. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og vinnuhópur um menningarsamning setti mikla og faglega vinnu í undirbúning stefnumótunar og samnings fyrir Vesturland. Við gerum jafnframt kröfu um fagmennsku frá öðrum þeim er að þessum málum koma. Forsvarsmenn sveitarfélaga á Vesturlandi binda miklar vonir við að nýr menntamálaráðherra taki þessi mál til ítarlegrar skoðunar. Við treystum því að á árinu 2005 verði kominn til framkvæmda menningarsamningur við Vesturland og honum fylgi fjármagn í ekki minna mæli en runnið hefur til annarra landshluta. Helga Halldórsdóttir, formaður Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi Mikil hefð er fyrir kórsöng á Íslandi og ekki síst í hinum dreifðu byggðum. Þessar lands- byggðarkonur sungu við upphaf búnaðarþins fyrir nokkrum árum. Hvað er menningar- samningur?

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.