Bændablaðið - 06.07.2004, Síða 13
Þriðjudagur 6. júlí 2004 13
Rúlluplast
M
R
/
jú
ní
2
00
4
/ 0
6
Korngarðar 5 • 104 Reykjavík
Símar: 540 1100 • Fax: 540 1101
Rétta plastið tryggir gæðin
MR selur
umbúðir fyrir
hey í hæsta
gæðaflokki
frá Hollenska
fyrirtækinu
VISSCHER
HOLLAND.
Umbúðir fyrir hey Magn Þyngd Verð Verð
pr. pall. pr. Rúllu án vsk m.vsk
Rúlluplast:
Grænt 75 cm 30 rl 29 kg 5.995,- 7.464,-
Hvítt 75 cm 30 rl 29 kg 5.995,- 7.464,-
Rúllunet 12gr x 3000m 47 kg 13.900,- 17.306,-
Garn (2 rl í pakka) 9 kg 1.990,- 2.478,-
Auglýsing
um útflutningshlutfall
kindakjöts 2004 - 2005.
1. gr.
Landbúnaðarráðherra hefur að fengnum tillögum Bændasamtaka
Íslands, ákveðið að útflutningshlutfall kindakjöts af fé sem slátrað
verður árin 2004 - 2005, verði sem hér segi:
Dilkakjöt:
Tímabil: Útflutningshlutfall:
1. júlí 2004 - 22. ágúst 2004 10%
23. ágúst 2004 - 29. ágúst 2004 17%
30. ágúst 2004 - 5. september 2004 24%
6. sept. 2004 - 12. september 2004 31%
13. sept. 2004 - 28. nóvember 2004 36 - 38% *
29. nóv. 2004 - 28. febrúar 2005 24%
1. mars 2005 - 10%
*) Hlutfall fyrir tímabilið 13. september til 28. nóvember 2004, verði nánar
ákveðið innan þessara marka og auglýst fyrir 1. september n.k.
2. gr.
Fyrir sömu tímabil og um getur í 1. gr. er útflutningshlutfall af kjöti af
fullorðnu fé ákveðið 0%.
3. gr.
Auglýsing þessi er sett í samræmi við reglugerð nr. 524/1998 um
útflutning á kindakjöti með síðari breytingum og með heimild í 4.
mgr. 29. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu
á búvörum, með síðari breytingum og öðlast gildi 1. júlí 2004.
Jafnframt er felld úr gildi auglýsing nr. 619/2003 um
útflutningshlutfall kindakjöts.
Landbúnaðarráðuneytinu, 25. júní 2004.
F.h.r.
Ólafur Friðriksson.
_______________________
Atli Már Ingólfsson.
Lokað vegna sumarleyfa
Skrifstofur Bændasamtaka Íslands verða lokaðar vegna
sumarleyfis starfsmanna dagana 19. til 30. júlí.
Vegna sumarlokunar
hjá Bændasamtökum
Íslands verða
tilkynningar um
breytingar á
handhöfum
beingreiðslna sem taka
eiga gildi 1. ágúst n.k.
að berast í síðasta lagi
10. júlí n.k.
Landgræðsla ríkisins hefur sáð
miklu af lúpínu á söndunum í
nágrenni Þorlákshafnar. Nú
herjar maðkur sem heitir
brandygla á ungar lúpínuplönt-
ur en veldur litlum skaða á
hinum eldri. Menn voru ekki
vissir í byrjun hvaða maðkur
þetta væri en Erling Ólafsson
skordýrafræðingur hefur stað-
fest við Bændablaðið að um
brandyglu sé að ræða sem er
fiðrildalifra.
Björn Barkarson, sviðsstjóri
landverndarsviðs Landgræðslu
ríkisins, segir að brandygla sé
þekkt hér á landi bæði í kartöflum
og rófum. Varðandi lúpínuna þá
virðist maðkurinn éta rætur ungra
plantna og plantan visnar, fær á sig
gulan lit og drepst síðan. Maðk-
urinn virðist ekki hafa teljandi
áhrif á fullorðna lúpínu en kemur í
veg fyrir að hún dreifi sér.
Sendin svæði eins og í ná-
grenni Þorlákshafnar virðast vera
kjörsvæði fyrir þennan maðk því
hann grefur sig niður í sandinn og
því þarf hann að vera mjög laus til
þess að það takist. Maðkurinn
leggst ekki á melgresið á þessu
sama svæði en aftur á móti er
fjöruarfi á svæðinu mjög illa
farinn sem og fleiri tvíkím-
blöðungar.
Sigurgeir Ólafsson, forstöðu-
maður plöntueftirlits RALA,
segist hafa fundið brandyglu í
kartöflugörðum vorið 1987 þar
sem maðkurinn át kartöflugrösin.
Sömuleiðis segist hann hafa
fundið hana í rófugarði þar sem
hún nagaði sundur rótarhálsinn á
ungum plötum svo þær visnuðu.
Það var vorið 1980. Hann segir að
ekkert sé við þessu að gera. Flest
árin verði menn lítið varir við
brandygluna en svo komi ár þar
sem mikið er um hana. Þetta ræðst
af stofnsveiflum alveg eins og með
grasmaðk. Þessi skordýr eru alltaf
fyrir hendi en síðan þegar fjöldinn
er kominn upp fyrir ákveðin mörk
fara þau að valda tjóni og síðan
dregur úr þessu aftur.
Maðkur
herjar á lúpínu
í Þorlákshöfn