Bændablaðið - 06.07.2004, Qupperneq 14

Bændablaðið - 06.07.2004, Qupperneq 14
14 Þriðjudagur 6. júlí 2004 ,,Mér líst bæði vel og illa á þessa þróun. Í sveitarfélagi þar sem eru kannski tveir mjög stórir kúabændur en aðrir í einhverju öðru hlýtur að verða öðru vísi sam- félag en þegar 15 til 20 minni kúa- bú voru í sveitarfélaginu. Sam- koman hjá kúabændum verður að minnsta kosti ekki mjög fjölmenn. Í sumum tilfellum getur þetta leitt til hagræðingar. Heyskapartækni nútímans er bæði dýr og mjög af- kastamikil. Hún kostar jafn mikið hvort sem verið er að heyja fyrir 20 eða 100 kýr. Þar í liggur hag- kvæmni stóru búanna. Mjalta- búnaðurinn er líka dýr hvort sem um er að ræða mjaltagryfjur eða mjaltaþjóna og þá er hagkvæmt að vera með fleiri kýr en færri. Síðan er það spurningin hvað fjölskyldan vill því hún er býsna bundin þegar komnar eru 60 til 80 kýr í fjósið. Þá er ekki hægt að láta hvern sem er annast það þannig að helgarfríin verða ekki mörg," segir Þorfinnur. Hann bendir líka á að þegar menn eru komnir með tvo mjalta- þjóna og ef til vill 140 til 150 kýr séu skuldirnar óhjákvæmilega miklar. Þá gefi það augaleið að búin verði afar viðkvæm fyrir hvers konar áföllum sem geta komið víða að. Vextir geta hækkað fyrirvaralaust, verð á mjólk getur lækkað, grasspretta getur brugðist því ekki er útilokað að kal komi í tún og fleira getur komið til. Þor- finnur segir að áföllin verði erfið- ari þegar búin eru orðin svona stór því þau séu mun viðkvæmari fyrir þeim en minni búin. Máli sínu til stuðning bendir hann á hin stóru svína- og kjúklingabú og þá erfiðleika sem þau hafa lent í síðustu misserin. Hann var spurður um endurnýjunina í kúabúskap þegar búin eru orðin svona stór og mjólkurkvótinn jafn dýr og raun ber vitni. Hver getur keypt þessi bú? ,,Í gegnum tíðina höfum við elt Dani í mörgu varðandi búskap en verið töluvert á eftir þeim. Ég var í Danmörku þegar ég var ungur og ég tók eftir því að margt sem þá var við lýði í Danmörku kom til Ís- lands 20 árum síðar. Í allmörg ár hafa verið 100 til 150 mjólkurkýr á stóru búunum í Danmörku og nú er þetta að koma hingað. Í Dan- mörku eru þessi stóru kúabú fjár- mögnuð af bönkunum eins og hver önnur fyrirtæki og verða að reka sig eins og þau. Ungt fólk í Dan- mörku sem tekur við svona stórum búum fer út í stórrekstur sem bank- inn fjármagnar til að byrja með. Þannig hlýtur endurnýjunin líka að verða hér á landi. Það getur ekkert ungt fólk keypt bú upp á 100 - 200 milljónir króna og lagt meiri- hlutann fram. Það væri heldur ekki eðlilegt." Þorfinnur segir að fyrir ekki mjög mörgum árum hafi það verið algeng stærð á búum á Suðurlandi að vera með svo sem 15 kýr og 200 til 300 ær. Nú hafi mjög dregið úr sauðfjárbúskap en þó séu eftir nokkur sauðfjárbú og dæmi um sauðfjárbú með um 800 fjár á Suðurlandi. Hins vegar hafi hrossabúum fjölgað mjög hin síðari ár og gangi vel. Svo hefur fólk til sveita tekjur af ýmsu öðru en búskap. Hann nefnir sem dæmi lax og silungsveiði, þjónustu við þéttbýlisbúa, ferðaþjónustu sem er orðin mjög stór liður hjá mörgum bændum í uppsveitum Árnessýslu og víðar á landinu. Þorfinnur segir að ferðaþjónusta bænda hafi orðið til þess að halda jörðum í byggð og líka haldið uppi verðgildi eigna. Þorfinnur var spurður hvort íslenskir bændur væru undir það búnir að keppa við taumlausan innflutning á landbúnaðarafurðum innan fárra ára ef WTO samningurinn fellur á þann veg eins og útlit er fyrir. ,,Mér finnst bændur loka nokkuð á þetta og telji þetta vera eitthvað sem þeir þurfi ekki að taka tillit til strax. Það komi bara þegar það kemur en vona að það komi ekki. Að mínum dómi liggur þarna mesta hættan fyrir íslenska bændur í framtíðinni. Við getum ráðið við kal eða aðra óáran en þetta verður erfitt viðureignar. Erfiðast held ég að þetta verði fyrir þá sem fjárfesta mest og skulda eins og við ræddum um áðan. Menn virðast vera bjartsýnir á að þetta komi ekki yfir okkur í náinni framtíð. Þeir ræða allt annað sín í milli jafnvel þótt nýbúið sé að ganga frá nýjum mjólkursamningi sem er með fyrirvörum um að þetta geti gerst," segir Þorfinnur Þórarinsson. Eins og fram kom í Bændablaðinu fyrir skömmutók sala á mjaltabásum og mjaltaþjónum mikinnkipp eftir að nýi mjólkursamningurinn leitdagsins ljós. Það kom líka fram að í nokkrumtilfellum eru bændur komnir með tvo mjaltaþjóna og allt bendir þetta til þess að búin séu að stækka mjög mikið því mjaltaþjónn annar um 70 kúm. Þorfinnur Þórarinsson, bóndi á Spóastöðum og formaður Búnaðarsambands Suðurlands, segir að þróunin hafi verið sú í nokkur ár að kúabúum fækki og að þau sem eftir eru stækki. Hann segist ekki sjá nein merki þess að þetta sé að breytast og að menn séu uppi með hugmyndir um enn stærri kúabú upp á eitt hundrað kýr eða meira. Formaður Búnaðarsambands Suðurlands Fækkun og stækkun kúabúa hefur bæði kosti og galla Landssam- band kúa- bænda Greiðslumarkið aukið Þann 16. júní sl. var sett reglugerð um mjólk og mjólkurvörur fyrir næsta verðlagsár. Sá góði árangur náðist að auka greiðslumarkið um 1 milljón lítra, eða um tæpt 1%. Eins og kúabændur vita var ekki útlit fyrir aukningu framan af árinu en góð sala undanfarið er grundvöllur þessarar aukningar. Jafnframt fór landbúnaðarráðherra að tillögum LK um að auka framleiðsluskyldu úr 85% í 90%. Einna mestar breytingar á reglu- gerðinni verða þó í tengslum við aðilaskipti með greiðslumark mjólkur, eins og vísað er til í hinum nýja mjólkursamningi og í viljayfirlýsingu BÍ. Í reglugerðinni segir: "Tilkynningu um aðilaskipti skal fylgja undirritaður samningur þar um, þar sem m.a. skal koma fram nafn samningsaðila, dagsetning samnings, kaupverð, verð á lítra mjólkur og heildarmagn. Einnig skal fylgja staðfesting um eignarhald að lögbýlinu. Þá skal seljandi leggja fram þinglýsingar- vottorð fyrir það lögbýli sem greiðslumark er selt frá og skriflegt samþykki allra veðhafa fyrir sölunni. Tilkynningar um aðilaskipti að greiðslumarki, fyrir verðlagsárið 2004-2005, ásamt fylgigögnum skulu hafa borist Bændasamtökum Íslands í síðasta lagi fyrir 20. júní 2005 til að þau taki gildi á verðlagsárinu. Aðilaskiptin taka fyrst gildi þegar staðfesting Bænda- samtaka Íslands liggur fyrir. Bænda- samtökum Íslands er heimilt að birta yfirlit yfir viðskipti með greiðslu- mark. Upplýsingar sem þannig eru birtar skal ekki vera hægt að rekja til einstakra aðila." Markaðsmál nautakjöts Samkvæmt nýju yfirliti um fram- leiðslu og slátrun nautgripa var 13,5% minni nautgripakjötssala í maí 2004 miðað við sama mánuð 2003. Sömu sögu má segja um sölu á 12 mánaða tímabili, frá 1. júní 2003 til 31. maí 2004 hefur nautgripakjötssala dregist saman um 18.1 tonn miðað við sama tímabil árið áður. Nýverið voru birtar upplýsingar um kjötframleiðsluna í heiminum árið 2003 og kemur þar fram að hún jókst verulega. Árið 2003 nam heildarframleiðsla á kjöti í heiminum um 253,5 milljón tonnum og var það aukning um 2,3% frá fyrra ári eða um 5,8 milljón tonn. Aukningin nemur um 230-faldri heildarkjötframleiðslu Íslendinga. Mesta aukning var á framleiðslu svínakjöts eða um 3,1%. Hlutföll á milli búgreina haldast óbreytt á milli ára og er svínakjöt mest framleidda kjöttegundin í heiminum með um 39% hlutdeild, þá alífuglakjöt með 26% og nautakjöt með 23%. Nánari upplýsingar á vef LK: www.naut.is. Sumarleyfi Skrifstofa LK verður lokuð á mánudögum frá miðjum júlí til ágústloka. Annars er opnunar- /viðverutími hefðbundinn. Skrifstofa LK Sími: 433 7077, fax: 433 7078. Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri LK Nýlega kom út árleg skýrsla OECD um landbúnaðarstefnuna og þróun hennar í aðildarlöndunum. Í skýrslunni kemur fram að stuðningur við landbúnað (mældur sem PSE - tekjuígildi stuðnings við framleiðendur) hefur dregist saman í flestum löndunum frá árunum 1986-1988. Það er helst í löndum Austur-Evrópu og Tyrklandi sem stuðningur hefur aukist en er þó lágur í samanburði við meðaltal OECD ríkja. PSE er mælikvarði á beinar greiðslur til framleiðenda og tekjur framleiðenda af því að verð á afurðum er hærra en ef engin innflutningsvernd væri. Hins vegar er það ekki mælikvarði á útgjöld ríkisins eða neytenda vegna landbúnaðarstefnunnar. Sem fyrr er Ísland í hópi þeirra 5 landa sem PSE% er hvað hæst. Þetta hlutfall hefur þó lækkað á síðustu árum. Þær búgreinar sem PSE% hefur lækkað hvað mest fyrir frá árunum 1986-1988 eru kindakjöt (úr 74% í 55%) og svínakjöt (úr 84% í 37%). /EB 0 10 20 30 40 50 60 70 80 K a n a d a J a p a n N o r e g u r S v is s 1986-88 2001-2003 Skýrsla OECD um landbúnaðarmál Tekjuígildi stuðnings við framleiðendur (PSE) sem hlutfall af heildartekjum bænda (PSE%). PSE er mælikvarði á beinar greiðslur til framleiðenda og tekjur framleiðenda af því að verð á afurðum er hærra en ef engin innflutningsvernd væri. “Ég er að gera hreint fyrir mínum dyrum,” sagði Þorfinnur þegar ljós- myndarinn tók myndina

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.