Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 6. júlí 2004 15
Glæsilegur
dýragarður
í Slakka í
Laugarási
Þessi fjallmyndarlegi páfagaukur vekur jafnan mikla athygli í Slakka.
Dýragarðurinn í Slakka í Laug-
arási, Biskupstungum hefur náð
miklum vinsældum enda er
umhverfið fallegt og garðurinn
einstaklega snyrtilegur. Auk
dýragarðsins er þarna að finna
veitingastofu,
mínigolfvöll, pútt-
völl og billjardborð
sem eru í fyrrum
gróðurhúsi. Í dýra-
garðinum er að
finna öll íslensku
dýrin auk
nokkurra tegunda
af kanínum, kal-
kúna, endur, hæn-
ur, svín og fjóra stóra páfa-
gauka. Það er Helgi Svein-
björnsson og fjölskylda hans
sem á og rekur garðinn og segir
hann aðsóknina fara vaxandi ár
frá ári. Hann nefnir sem dæmi
að helgina 19. og 20. júní sl. hafi
komið 1300 gestir í garðinn.
Mestur hefur fjöldinn orðið 800
manns á einum degi.
Áratugur er liðinn síðan Helgi
og fjölskylda hans hófu að byggja
dýragarðinn upp,, stækka hann og
bæta. ,,Ef við hefðum vitað hversu
erfitt það hefur verið að byggja
þetta allt upp þá efast ég um að við
hefðum lagt út í þetta. Vonandi er
þetta nú að komast á beinu braut-
ina hjá okkur sem alvöru fyrir-
tæki," sagði Helgi Sveinbjörnsson.
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
Vara- og
aukahlutir
fyrir dráttarvélar
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
Heyvinnuvéladekk
og slöngur
Dekk og slanga
saman í setti
15x600-6-4P-T510
16x650-8-4P-T510
350x6-4P-T510S
350x6-4P-T513S
350x8-4P-T510S
350x8-4P-T513S
400x12-4P-T443S
400x4-4P-T510S
400x4-4P-T513S
400x8-4P-T510S
400x8-4P-T513S
Öll dekkin eru 4ra strigalaga
T510 er slétt mynstur
T513 er langmynstur
me› hrygg í mi›ju
Heyvinnuvélatindar,
hnífar og festingar
áratuga reynsla
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
Húnvetningar og Skagfirðingar
stofnuðu með sér veiðifélag
Auðkúlu- og Eyvindastaðaheiða
í vor. Jóhann Guðmundsson,
oddviti í Holti í
Svínavatnshreppi, sagði í
samtali við Bændablaðið að
þarna væri um að ræða
vatnasvæði sem áður tilheyrði
veiðifélagi Blöndu og Svartár.
Það eru fjögur sveitarfélög sem
standa að stofnun veiðifélagsins.
Vegna Auðkúluheiðar eru það
Svínavatns- og
Torfalækjarhreppar, vegna
Eyvindastaðarheiðar eru það
Bólstaðahlíðarhreppur og
sveitarfélagið Skagafjörður.
Með tilkomu Blönduvirkjunar
og stíflu við hana var gert ráð fyrir
breytingum á vatnsrennsli og
fiskigöngu í lokasamningi við
Landsvirkjun. Þá var ákveðið að
stofna veiðifélag um Blöndulón og
allar ár og þverár sem í það renna.
Þar með varð til þetta veiðifélag
Auðkúlu- og Eyvindastaðaheiða
sem var formlega stofnað í vor.
Áður en Blönduvirkjun var
byggð gekk sjóbirtingur og bleikja
upp í Seyðisá og lax veiddist í
Haugakvísl á Eyvindastaðaheiði.
Með Blönduvirkjun var lokað fyrir
þetta allt saman og eftir er því bara
staðbundinn silungur í ánum.
Jóhann segir að það munu án vafa
verða breytingar á þessu svæði
sem tíminn einn mun leiða í ljós
hvernig verða.
Hann segir að þetta nýja
veiðifélag muni í framtíðinni selja
veiðileyfi bæði í Blöndulón og
árnar sem í það renna. Hann segir
að það sé góð færð fyrir fólksbíla
upp á heiðarnar. Kjalvegur liggur
um Auðkúluheiði og síðan er
ágætir vegir sem liggja um
Eyvindastaðaheiði fram fyrir
Ströngukvísl. Þarna uppi eru
skálar sem hægt er að fá að gista í
og skálaverðir í þeim á sumrin.
Jóhann segir að búið sé að
leigja Seyðisá út næstu þrjú árin en
síðan er gert ráð fyrir að útbúin
verði veiðileyfi og þau seld hjá
staðarhöldurum í skálunum en frá
þessu hefur ekki verið gengið enn.
Stofnað hefur verið
veiðifélag Auðkúlu-og
Eyvindastaðaheiða
31.ágúst
Útgáfudagur næsta
Bændablaðs. Þarftu að
auglýsa? Þú nærð okkur
í síma eftir 16. ágúst.