Bændablaðið - 06.07.2004, Page 16
16 Þriðjudagur 6. júlí 2004
Nýverið var opnuð afar
sérstæð myndlistarsýning í húsi
Blönduvirkjunar sem mun verða
opin almenningi í sumar. Hér er
um að ræða 365 málverk, 12x17
sentímetrar að stærð, eftir
listamanninn Jón Eiríksson,
bónda á Búrfelli í
Húnavatnssýslu. Viðfangsefni
myndanna eru kýr og hann setti
sér það mark að mála eina mynd
á dag í heilt ár. Jón er ekki bara
góður málari hann er einnig í
hópi betri ljósmyndara landsins
og hafa margar ljósmyndir hans
birst í Bændablaðinu.
Jón var spurður um tilurð
þessarar einstöku
málverkasýningar. Hann sagði að
það væri dálítil saga á bak við
þetta allt saman. ,,Oft er eins og
eitthvert tómarúm myndist á
nýársdag enda er hann dagur sem
er frátekinn til að gera ekki neitt
og þannig var það líka 1. janúar
2003. Ég sagði þá við börnin á
heimilinu að ég ætlaði að sýna
þeim hvernig sjálfsagi virkar og
að ég ætli að mála eina mynd á
dag næstu vikurnar. Ég byrjaði
strax þennan dag en að öðru leyti
var þetta nú óskipulagt hjá mér.
Ég talaði svo sjálfan mig upp í
það að mála og ljúka við eina
mynd á dag allt árið. Í fyrstu fór
ég leynt með þessa ákvörðun
mína en síðan fór þetta á fulla
ferð hjá mér og ég lauk þessu
verki. Og til þess að gera mér
þetta enn erfiðara fyrir sagði ég
krökkunum að það yrði að vera
eitthvað tengt kú á hverri mynd.
Eins og allir vita koma
annríkistímar í búskapnum,
sérstaklega í heyskapnum. Þá var
stundum komið kvöld þegar
maður kom heim og átti mynd
dagsins eftir. Þá fann ég það upp
að mála það sem ég kalla
hraðmyndir af kúm og það sést
greinilega í verkunum hvenær
voru annríkistímar í búskapnum
og ég hafði ekki tíma til að nostra
við myndina. Þannig er nú þessi
myndlistarsýning í
Blönduvirkjun tilkomin," sagði
Jón.
Fulltrúar Landsvirkjunar
komust að því sem Jón var að
gera í gegnum
ferðamálafulltrúann í Húnaþingi
vestra og leist svo vel á
hugmyndina og myndirnar að
þeir vildu setja sýninguna upp.
Hún er þannig upp sett að hver
mánuður myndar eina súlu og ein
vika er á hverri hlið þannig að
sýningargestir geta rakið sig eftir
árinu því súlurnar eru merktar
mánuðunum.
Jón hefur málað í mörg ár og
haldið sýningar. Hann sagði að
þegar hann hafði lokið
búfræðinámi hafi hann farið að
teikna og mála og stundað þá iðju
allar götur síðan.
Málverkasýning Jóns Eiríkssonar í Blönduvirkjun
Málaði eina mynd á dag í heilt ár
Okkur hjá Fasteignakaupum langar
að vekja athygli ykkar á því að frá og
með 1. júlí 2004 eru úr gildi fallin
ákvæði eldri jarðalaga um forkaups-
rétt sveitarfélaga.Við þessa breytingu
opnast ykkur nýir og óvæntir mögu-
leikar til frjálsrar rástöfunar á eignum
ykkar án afskipta opinberra aðila.
Í 1. gr. nýrra jarðalaga nr. 81/2004,
segir að þeim sé ætlað að "stuðla að
skipulegri nýtingu lands í samræmi
við landkosti, fjölþætt hlutverk land-
búnaðar og hagsmuni sveitarfélaga
og íbúa þeirra, svo og að tryggja svo
sem kostur er að land sem vel er
fallið til búvörufram-leiðslu verði
varðveitt til slíkra nota."
Umrædd breyting er til þess fallin að
vekja áhuga manna á því að kanna
möguleika á að nýta land og þau mann-
virki, sem þeim fylgja, í þágu þeirra sem
á landinu búa eða þar vilja búa og starfa.
Við hjá Fasteignakaupum teljum því að
hér hafi skapast ný tækifæri til þess að
þróa ýmiskonar atvinnustarfsemi vítt og
breytt um landið.
Við höfum áhuga á að stuðla að
þessu markmiði laganna og
hagsmunum ykkar með því að hafa
milligöngu um viðskipti með
fasteignir hvar sem er á landinu og
erum ykkur til þjónustu reiðubúin.
Hjá okkur er ennfremur að finna
ýmsar gerðir fasteigna á
höfuðborgarsvæðinu og væri okkur
sönn ánægja að aðstoða ykkur við
hvers konar fasteignakaup ef þið
óskuðuð þess.
JARÐEIGENDUR OG AÐRIR LANDEIGENDUR
VINSAMLEGA HAFIÐ SAMBAND VIÐ:
ÞORBJÖRN Þ.
PÁLSSON
GUÐMUNDUR
VALTÝSSON
SIGRÍÐUR
BIRGISDÓTTIR
PÁLL
HÖSKULDSSON
SANDRA GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
ERNA
VALSDÓTTIR
BJÖRGVIN
IBSEN
SIGRÍÐUR
SIGMUNDSDÓTTIR
,,Erum nokkuð
sátt við út-
komuna af
fóstur-
talningunni"
,,Samkvæmt þeim svörum sem
við höfum fengið frá þeim
bændum sem við töldum hjá
virðist algengast að hlutfall þess
sem rétt var talið sé 83-94% í
fósturtalningunni. Þessi tala á við
um ærnar en í gemlingum var
skekkjan mun minni og hlutfall
nánast alls staðar á bilinu 95-
100%. Það voru einkum
þrílemburnar sem við fundum
ekki sem mynda mestu skekkjuna
en það kom okkur svo sem ekki á
óvart því "John", sá norski, sem
kenndi okkur var búinn að segja
að við mættum búast við því á
fyrstu tveimur árunum," sagði
Gunnar Björnsson, bóndi á
Sandfelli í Öxarfirði. Gunnar og
kona hans, Anna Englund,
fjárfestu í ómsjá í byrjun árs og
fóru um Norður- og Austurland
sl. vetur og töldu fóstur í sauðfé.
Alls töldu þau hjón á um 100
bæjum á tímabilinu 15. febrúar til
30. mars, um 28 þúsund fjár. Í vor
sendu þau ölllum þessum bændum
bréf þar sem þau óskuðu eftir
upplýsingum um hver árangur af
talningunni hefði orðið. Að sögn
Gunnars voru tæplega 30 búnir að
svara um síðustu mánaðamót.
Hann vildi hvetja þá sem eftir eiga
að senda upplýsingar um
fangskoðunina að gera það sem
fyrst. Þær upplýsingar sem fást
um niðurstöðurnar munu nýtast
vel. Gunnar sagðist telja að
bændurnir hefðu almennt verið
nokkuð ánægðir og talið sig hafa
a.m.k. einhvern vinnusparnað og
þægindi út úr þessu. Hann hefði
hins vegar reynt að gera öllum
ljóst fyrirfram að um talsverða
skekkju gæti orðið í talningunni
meðan þau væru að læra á tækið
og menn hefðu því vonandi verið
undir það búnir. Ef þessi hlutföll
sem komin eru breyttust ekki
mikið til hins verra væru þau mjög
sátt með útkomuna af talningunni.
"Svo er bara að standa sig betur
næsta vetur!" sagði Gunnar að
lokum. /ÖÞ.
Gunnar og Anna við talningu sl.
vetur. Bændablaðið/Örn
Frétt um afnám
flutningsjöfnunar-
gjalds af sementi
Í umfjöllun um afnám flutnings-
jöfnunargjalds af sementi í
síðasta tölublaði Bændablaðsins
var meinleg villa. Sagt var að
gert væri ráð fyrir 350 kg af
sementi í hvern rúmmetra
hússins sem verið væri að
steypa. Eins og menn hafa
eflaust séð átti hér að standa að
350 kg. af sementi þyrfti í hvern
rúmmetra af steypu. Eru les-
endur blaðsins beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Eitt af verkum Jóns. Þetta varð til 8. maí.
Fasteignakaup Ármúla 15 - 108 Reykjavík - Sími 515-0500 - Fax 515 0509
Heimasíða: www.fasteignakaup.is Netfang: fasteignakaup@fasteignakaup.is