Bændablaðið - 06.07.2004, Page 24

Bændablaðið - 06.07.2004, Page 24
24 Þriðjudagur 6. júlí 2004 Fram til þessa hefur framkvæmd söfnun- ar og þjónusta sveitarfélaga við bændur verið með ýmsu móti. Sums staðar er hey- rúlluplast tekið á 7 - 10 daga fresti ásamt sorpi, því ekið á urðunarstað og urðað þar. Annars staðar hafa sveitarfélög samið við verktaka um að sækja plast til bænda árlega eða tvisvar á ári. Sums staðar fer pressubíll milli bæja og þjappar í sig plasti. Annars staðar hafa bændur sett plast í stórsekki undan áburði eða búið til bagga með því að leggja bönd í fiskker, þjappa plasti niður í kerið og hnýta síðan böndin um baggann sem þannig verður til. Einhverjir bændur munu hafa bundið plastið í rúllubagga með eigin bindivélum. Lítilsháttar hefur verið endurunnið af plasti hérlendis og einhverju verið brennt í sorpstöðvum. Úrvinnslusjóður hyggst koma upp fyrirkomulagi sem heldur opnum þeim leið- um sem nú þegar eru í gangi en opnar bænd- um einnig leið til að koma meira að endur- vinnslu heyrúlluplasts en þeir gera nú - ef áhugi er fyrir hendi. Með endurnýtingu heyrúlluplasts er átt við hvers konar endurvinnslu þar sem til verður seljanleg vara, t.d. hráefni fyrir plastframleiðslu, eða brennslu þar sem orkan er nýtt. Ein algeng tegund plasts er "polyethy- len" (PE). Heyrúlluplast er framleitt úr því. Baggabönd og flestir stórsekkir (fyrir áburð) eru úr annarri tegund plasts, "polyprop- hylen" (PP). Sumar plasttegundir eru hæfar til endurvinnslu í þeim skilningi að hægt er að bræða plastið og framleiða úr því nýja vöru, t.d. nýtt heyrúlluplast. Til þess þarf plastið að vera sem hreinast og án að- skotahluta. Heykusk á rúlluplasti er þvegið af hjá endurvinnslufyrirtækjum. Mikilvægt er að blanda ekki saman ólíkum plast- tegundum ef endurvinnsla á að vera möguleg. Í ljósi ofangreinds er haft að leiðarljósi að framkvæmd geti verið með ýmsu móti. Stað- hættir, óskir bænda og vilji sveitarfélags munu hafa áhrif á hvaða leið er farin í hverju héraði. Einnig er haft að leiðarljósi að frágangur plasts hjá bændum skiptir hvað mestu máli um verðmæti plastsins í endurvinnslu. Þannig geta bændur með sínu verklagi og vinnuframlagi haft fjárhagslegan ávinning af fyrirkomulaginu, beint eða óbeint. "Bóndi" er hér notað um aðila þar sem heyrúlluplast fellur til hjá. Heyrúlluplast fellur einnig til hjá t.d. hestaeigendum en til einföldunar á texta kallast þeir hér einnig bændur. "Ráðstöfunaraðili" er sá sem tekur við heyrúlluplasti til endanlegrar endurnýtingar eða förgunar. Hann getur verið t.d. sorp- brennslustöð, innlent eða erlent plast- vinnslufyrirtæki, eða urðunarstaður ef gæði plastsins eru slök. ÚRVINNSLUGJALD OG ÚRVINNSLUSJÓÐUR Í lögum um úrvinnslugjald segir m.a.: "Til að stuðla að úrvinnslu úrgangs skal leggja úrvinnslugjald á vörur, eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum þessum. Leggja skal úrvinnslugjald á vörur hvort sem þær eru fluttar inn til landsins eða framleiddar hér á landi. Úrvinnslugjald skal standa undir kostnaði við meðferð flokkaðs úrgangs á söfnunarstöð, flutning hans frá söfnunarstöð til móttökustöðvar eða endurnýtingarstöðv- ar, enda hafi verið greitt úrvinnslugjald af vörunum. Þá skal gjaldið standa undir endurnýtingu úrgangsins og förgun hans eftir því sem við á…". Lög um úrvinnslugjald eru nr. 162/2002, með síðari breytingum. Reglugerð nr. 227/2003 fjallar nánar um framkvæmd laganna. Úrvinnslusjóður annast fram- kvæmd laganna. Lögin má nálgast á vef Al- þingis: www.althingi.is eða á vef Úr- vinnslusjóðs: www.urvinnslusjodur.is/. Úrvinnslugjaldi, sem innheimt er af inn- fluttu heyrúlluplasti, er ætlað að standa undir kostnaði vegna meðhöndlunar notaðs hey- rúlluplasts og þeim kostnaði sem hlýst af endurnýtingu þess. Úrvinnslusjóður kemur ekki að þessu ferli á annan hátt en að leggja línur í formi skilmála fyrir þá sem hyggjast þjóna sjóðnum við að safna heyrúlluplasti og koma því í endurnýtingu á viðurkenndan hátt. FYRIRKOMULAG Frá því að plast er tekið utan af heyrúllu uns það er endurnýtt í plastvinnslu eða til orkuvinnslu er langur vegur sem saman- stendur af nokkrum þáttum. Fyrstu þættirnir snúa að bóndanum. Mikilvægt er að plastið sé eins hreint og kostur er og laust við aðskotahluti. Mjög skítugt plast eða plast sem illa er frá gengið getur verið óhæft til endurnýtingar og því lent í urðun. Þannig er frágangur bóndans á plasti, sem tekið er utan af heyrúllu, ákvarðandi fyrir hvaða mögu- leikar eru á endurnýtingu plastsins. Flutningur heyrúlluplasts frá bónda til ráðstöfunaraðila getur verið á vegum sveitarfélags, bónda eða verktaka sem er á höttunum eftir plasti. Frágangur á plasti fer eftir því hvernig ráðstöfunaraðilinn hyggst endurnýta plastið. Þessi frágangur getur verið allt frá lauslegri pökkun til stífpressaðra bagga. Böggun get- ur farið fram hjá umboðsaðila erlends ráð- stöfunaraðila, flutningsaðila, þjónustuaðila eða bóndanum sjálfum, allt háð aðstæðum. Ljóst er að af öllum þessum þáttum er tilkostnaður. Bóndinn þarf að hafa fyrir því að halda plastinu sér og geyma það. Sveitar- félögin skulu skv. lögum (55/2003) sjá um að starfræktar séu móttöku- og söfnunar- stöðvar þar sem meðal annars er möguleiki að taka á móti plasti og halda því til haga. Flutningar kosta sitt og greiða þarf fyrir förgun/endurnýtingu, mismikið eftir því hvaða aðferð er notuð. Urðunarstaður þarf t.d. að urða án þess að fá nokkuð til baka og innheimtir því urðunargjald. Sorpbrennsla hefur kostnað af sinni starfsemi en fær þó orku til baka - sorpbrennslur innheimta samt förgunargjald. Plastendurvinnslufyrirtækið hefur kostnað af sinni starfsemi en getur selt sínar afurðir. Plastendurvinnslufyrirtæki innheimta samt móttökugjald til að standa straum af miklum kostnaði við hreinsun og þurrkun. Enn sem komið er hefur ekki fundist aðili/aðferð sem greitt getur fyrir heyrúlluplast heldur þarf að borga með því. Til einföldunar mun Úrvinnslusjóður ein- göngu greiða einum aðila fyrir hverja einingu af plasti sem fargað er [kr/kg]. Þjónustuaðili (eða bóndi) skilar plasti til ráðstöfunaraðila og fær hjá honum kvittun fyrir móttöku á heyrúllu- plasti. Gegn framvísun kvittunarinnar fær hann greitt frá Úrvinnslusjóði eftir gjaldskrá sjóðsins, [kr/kg]. Þessi aðili greiðir síðan öðrum aðilum fyrir þeirra verkþátt og heldur eftir hluta fyrir sinn þátt. Að neðan eru settar fram 3 mismunandi leiðir sem heyrúlluplast getur ratað á leið frá bónda til ráðstöfunaraðila. LEIÐ 1 BÓNDI GENGUR FRÁ SÍNU PLASTI OG KEMUR ÞVÍ TIL ENDUR- NÝTINGARAÐILA Bændur (eða samtök þeirra, búnaðarfé- lög, búnaðarsambönd) geta skilað heyrúllu- plasti beint til ráðstöfunaraðila. Bóndinn semur við ráðstöfunaraðilann um fyrir- komulag. Plastið fer um LEIÐ 1 á myndinni. Bóndinn og ráðstöfunaraðilinn koma sér saman um frágang á plastinu, svo sem leyft magn aðskotahluta, baggabanda o.s.frv. og hvort plastinu skuli innpakkað í rúllubagga, ferkantaðan bagga eða t.d. í áburðarpoka. Bóndinn sér um allt ferlið frá því plastið fellur til uns það er komið til ráðstöfunar- aðila (eða umboðsaðili hans), sem gefur úr móttökukvittun og vigtarnótu (VOG 2). Úr- vinnslusjóður greiðir bóndanum, en bóndinn greiðir fyrir flutning, vigtun og ráðstöfun. Ekkert mælir á móti því að tveir eða fleiri bændur taki sig saman undir nafni eins þeirra en þeir skipta þá kostnaði og greiðsl- um sín á milli án aðkomu Úrvinnslusjóðs. Hafa skal þó í huga reglur um smithættu (sjá að aftan). Ekki er ólíklegt að erlend plastendur- nýtingarfyrirtæki hafi í framtíðinni umboðs- aðila hérlendis sem myndu þá þjóna sama hlutverki gangvart bónda og Úrvinnslusjóði og ráðstöfunaraðilinn sjálfur. LEIÐ 2 VERKTAKAR SAFNA PLASTI AF BÆJUM, LÍKT OG VÍÐA ER GERT NÚ Þjónustuaðila er heimilt að sækja hey- rúlluplast beint til einstakra bænda. Hugsanlega vill sveitarfélag bjóða bændum þá þjónustu að heyrúlluplast verði sótt til þeirra t.d. tvisvar eða þrisvar á ári. Ekkert mælir á móti því að sveitarfélagið semji við þjónustuaðila um eitthvert fyrir- komulag þar sem þjónustuaðilinn endar á að skila plastinu til ráðstöfunaraðila gegn mót- tökukvittun. Þjónustuaðillinn fær þá greitt frá Úrvinnslusjóði en að auki hugsanlega þjónustugjald frá sveitarfélaginu. Þannig nýtist greiðsla Úrvinnslusjóðs sveitarfé- laginu til að viðhalda mikilli þjónustu við SÖFNUNARSTÖÐ STARFRÆKT AF SVEITARFÉLAGI ÞJÓNUSTUAÐILI: - MEÐ SAMNING VIÐ SVEITARFÉLAG - Á EIGIN VEGUM - MEÐ SAMNING VIÐ BÆNDUR, SEM GANGA SJÁLFIR FRÁ PLASTI TIL ENDURVINNSLU RÁÐSTÖFUNARAÐILAR: - FLYTJA PLASTIÐ ÚT - ENDURVINNA TIL PLASTVINNSLU - VINNA ORKU ÚR PLASTINU BÆNDUR, HESTAMANNAFÉLÖG VOG 1 LEIÐ 3 BÓNDI SKILAR HEYRÚLLUPLASTI Í SÖFNUNARSTÖÐ SVEITARFÉLAGS ÚRVINNSLUJÓÐUR VOG 2 UPPLÝSINGAR FRÁ ÞJÓNUSTUAÐILUM ÁSAMT STAÐFESTINGU Á MAGNI HEYRÚLLUPLASTS ERU GRUNDVÖLLUR GREIÐSLU TIL SVEITARFÉLAGA ÚR ÚRVINNSLUSJÓÐI. ÞJÓNUSTUAÐILAR GERA SAMNINGA RÁÐSTÖFUNARAÐILA. ÞEIR GERA EINNIG SAMNING VIÐ ÚRVINNSLUSJÓÐ UM ÞJÓNUSTU VIÐ SÖFNUNARSTÖÐVAR Á ÁKVEÐNU LANDSSVÆÐI. BÆNDUR MEGA SKILA TIL ÞJÓNUSTUAÐILA. GEGN MÓTTÖKUSTAÐFESTINGU RÁÐSTÖFUNARAÐILA FÆR ÞJÓNNUSTUAÐILA GREIÐSLU FRÁ ÚRVINNSLUSJÓÐI. ÞJÓNUSTUAÐILI GERIR UPP VIÐ RÁÐSTÖFUNARAÐILA. LEIÐ 3 GEIÐSLA [ KR/KG ] GEIÐSLA [ KR/KG ] MÓTTÖKUSTAÐFESTING [ KG ] JÚNÍ 2004 SÖFNUNARSTÖÐ STARFRÆKT AF SVEITARFÉLAGI ÞJÓNUSTUAÐILI: - MEÐ SAMNING VIÐ SVEITARFÉLAG - Á EIGIN VEGUM - MEÐ SAMNING VIÐ BÆNDUR, SEM GANGA SJÁLFIR FRÁ PLASTI TIL ENDURVINNSLU RÁÐSTÖFUNARAÐILAR: - FLYTJA PLASTIÐ ÚT - ENDURVINNA TIL PLASTVINNSLU - VINNA ORKU ÚR PLASTINU BÆNDUR, HESTAMANNAFÉLÖG ÚRVINNSLUJÓÐUR VOG 2 STAÐFESTING RÁÐSTÖFUNARAÐILA Á MAGNI MÓTTEKINS HEYRÚLLUPLASTS ERU GRUNDVÖLLUR GREIÐSLU ÚR ÚRVINNSLUSJÓÐI. GREIÐSLUR FRÁ ÚRVINNSLUSJÓÐI ERU BEINT TIL BÓNDA. BÓNDINN GERIR UPP VIÐ RÁÐSTÖFUNARAÐILA OG HUGSANLEGA FLUTNINGAÐILA, EN HELDUR HLUTA EFTIR FYRIR SINN ÞÁTT. LEIÐ 1 GEIÐSLA [ KR/KG ] MÓTTÖKUSTAÐFESTING [ KG ] JÚNÍ 2004 LEIÐ 1 BÓNDI SKILAR HEYRÚLLUPLASTI TIL RÁÐSTÖFUNARAÐILA EÐA UMBOÐSMANNS HANS UMBOÐSAÐILI: - EF FLYTJA Á PLASTIÐ ÚT ER EKKI ÓLÍKLEGT AÐ UMBOÐSAÐILI VÆRI Á ÍSLANDI JÚNÍ 2004 MÓTTÖKUSTAÐFESTING [ KG ] GEIÐSLA [ KR/KG ] LEIÐ 2 ÞJÓNUSTUAÐILAR GERA SAMNINGA RÁÐSTÖFUNARAÐILA. ÞEIR GERA EINNIG SAMNING VIÐ ÚRVINNSLUSJÓÐ UM ÞJÓNUSTU VIÐ SÖFNUNARSTÖÐVAR Á ÁKVEÐNU LASDSSVÆÐI. GREIÐSLUR FRÁ ÚRVINNSLUSJÓÐI ERU TIL ÞJÓNNUSTUAÐILA. ÞJÓNUSTUAÐILI GERIR UPP VIÐ RÁÐSTÖFUNARAÐILA. UPPLÝSINGAR FRÁ ÞJÓNUSTUAÐILUM ÁSAMT STAÐFESTINGU Á MAGNI HEYRÚLLUPLASTS ERU GRUNDVÖLLUR GREIÐSLU TIL SVEITARFÉLAGA ÚR ÚRVINNSLUSJÓÐI. VOG 2 ÚRVINNSLUJÓÐUR VOG 1 BÆNDUR, HESTAMANNAFÉLÖG RÁÐSTÖFUNARAÐILAR: - FLYTJA PLASTIÐ ÚT - ENDURVINNA TIL PLASTVINNSLU - VINNA ORKU ÚR PLASTINU ÞJÓNUSTUAÐILI: - MEÐ SAMNING VIÐ SVEITARFÉLAG - Á EIGIN VEGUM - MEÐ SAMNING VIÐ BÆNDUR, SEM GANGA SJÁLFIR FRÁ PLASTI TIL ENDURVINNSLU SÖFNUNARSTÖÐ STARFRÆKT AF SVEITARFÉLAGI LEIÐ 2 ÞJÓNUSTUAÐILI SÆKIR PLAST TIL BÆNDA EÐA BÓNDI VELUR AÐ SKILA TIL ÞJÓNUSTUAÐILA ÚRVINNSLUSJÓÐS SÖFNUN OG ENDURNÝTING HEYRÚLLUPLASTS KYNNING Á FYRIRKOMULAGI Til Íslands eru árlega flutt 1600-1800 tonn af heyrúlluplasti. Hingað til hefur því ekki verið safnað skipulega. Megninu hefur verið hent á sorphauga eða verið brennt. Urðun plasts eða brennsla heima á bæjum er nú með öllu óheimil samkvæmt mengunarvarnareglugerð. Til að standa undir kostnaði við skipulega söfnun og endurnýtingu heyrúlluplasts hefur verið lagt á sérstakt úrvinnslugjald.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.