Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 28
28 Þriðjudagur 6. júlí 2004 Á að flýta haustsmölun - og slátra snemma? Hér verður fjallað um nokkur atriði ervarða tíðarfarið, gróandann, sumar- oghaustslátrun, dilkakjötsmarkaðinn ogverð fyrir dilkakjöt. Tilgangurinn er aðvekja athygli sauðfjárbænda á þessum þáttum, - benda á möguleika og tækifæri sem í þeim geta falist fyrir einhverja sauðfjárbændur. Annars vegar fyrir þeirra eigin rekstur og tekjumöguleika og hins vegar fyrir dilkakjötsmarkaðinn bæði heima og heiman. Ljóst er að það eiga ekki allir sauð- fjárbændur þess kost né hafa til þess aðstöðu að ná fé snemma heim á haustin. Fyrir þá sem hafa aðstöðu til þess er vert að þeir hugleiði þennan valkost. Tíðarfarið: Síðastliðið vor og sumar voru óvenjuleg að því er veðurfar og árgæsku snerti. Gróður var snemma á ferð- inni, grös þroskuðust fyrr en venjulega og sölnuðu einnig fyrr þrátt fyrir mikil hlýindi síðsumars. Þroski lamba var óvenju mikill og allstór hluti þeirra orðin sláturhæfur áður en hefðbundin slátrunartími hófst. Í ár eru aðstæður í veðurfari og gróðurfari að ýmsu leyti áþekkar. Samkvæmt vikulegum mælingum á þroska túngrasa á nokkrum stöðum á landinu í vor virðist t. a. m. mega ráða að þroski þeirra í ár sé eða verði nokkru fyrr á ferðinni en á sömu stöðum vorið 2003. Þótt ávallt sé erfitt að spá, og einkum um framtíðina, er full ástæða til að gefa þessu gaum og við getum því reiknað með að aðstæður verði mjög áþekkar á komandi hausti. Þegar gróðurfar og árferði er með þessum hætti og fóðurgildi beitargróðurs fer að falla tiltölulega snemma og prótín fer að verða takmarkandi þáttur í fóðri lamba aukast líkur á að þau fari í auknum mæli að safna fitu. Almennt má segja að markaðurinn vilji síður feitt kjöt og gildir það ekki síst um markaðinn fyrir ferskt kjöt. Punktar vegna sumarslátrunar sauðfjár Hjá Sölufélagi Austur-Húnvetninga fer sumarslátrun fram frá júlíbyrjun fram í miðjan september. Verð til bænda tekur mið af þessu og er þeim greitt betur fyrir þau lömb sem slátrað er á þessum tíma heldur en þau sem síðar er slátrað. Hvaða rök mæla með sumarslátrun? ·Hjá SAH á Blönduósi hafa dilkar flokkast betur í sumarslátrun en haustslátrun undanfarin ár. ·Fallþungi er í samræmi við óskir markaðarins en meðalþyngd dilka sem slátrað var í ágúst 2003 var 14,5 kg. Meirihluti þeirra flokkaðist í gæðaflokk R2 ·Slátrun síðsumars eða snemma hausts gefur sláturleyfishafanum aukna möguleika á að finna markaði fyrir ferskt dilkakjöt, m.a. þar sem framboð af dilkakjöti frá öðrum löndum t.d. Nýja Sjálandi er í lágmarki í júlí og ágúst. Þarna er því ,,markaðssmuga" sem vænlegt er að reyna að nýta. ·Ein af forsendum þess að hægt sé að ná hærra verði fyrir dilakjöt á erlendum mörkuðum er að flytja það út ferskt en til þess þurfum við að ná því á markaðinn í júlí og ágúst. ·Sumarslátrun gefur einnig möguleika á að þróa íslenska kjötmarkaðinn og beina honum meira í ferskt lambakjöt. ·Kjötgæði eru a.m.k. þau sömu og í haustslátrun en því miður finnst okkur að slíkt eigi síður við um kjötgæði þegar líða tekur að jólum. Margir bændur hafa fullyrt við okkur að innlegg þeirra í ágúst skili þeim bestum heildartekjum enda eru það sömu bændurnir sem koma aftur og aftur með fé sitt á þessum tíma. Sigurður Jóhannesson Verðmæti dilka - heildarinnlegg 4.113 4.190 3.998 3.478 3.333 3.359 3.540 3.354 3.364 3.348 3.242 0 500 1.000 1.500 2.000 2.500 3.000 3.500 4.000 4.500 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 K r . d i l k Verð til bænda Í töflunni hér að ofan er meðalverð fyrir dilk í hverri viku sumarið og haustið 2003. Þetta eru greiðslu sem koma frá sláturleyfishafa, þ.e. verð sláturleyfishafa, og áhrif útflutningsskyldu. Greiðslur Markaðsráðs eru EKKI inni í þessum tölum. Verðlagning sláturleyfishafa

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.