Bændablaðið - 06.07.2004, Blaðsíða 29
Þriðjudagur 6. júlí 2004 29
Töluverð vinna hefur verið
unnin á síðustu árum til þess að
greina hvaða þörfum þarf að sinna
hjá neytendum kindakjöts og til
þess er búið að nota ýmis
verkfæri. Sumarslátrun er eitt
atriði sem mikið hefur verið
skoðað. Með breyttum áherslum í
útflutningi hefur þörf fyrir aukna
sumarslátrun stóraukist. Markaðir
ytra, sem er verið að vinna á og
gefa besta skilaverðið eins og
Bandaríkin, Danmörk, Ítalía o.fl.,
kalla eftir því að fá nýtt kjöt strax í
lok júlí. Þetta hefur hjálpað mikið
til með fá betra verð fyrir kjötið
og koma meiru magni á markað.
Það sama er að gerast hér á
heimamarkaði þar sem vel gengur
að selja ferskt lambakjöt. Það
hefur sýnt sig að lömb sem slátrað
er í júlí og ágúst flokkast þannig
að um betri söluvöru er að ræða en
það sem kemur í slátrun t.d. í
nóvember. Fer þar saman minni
fita og hæfilegur fallþungi. Þetta
er hlutur sem ekki má horfa
framhjá og er nauðsynlegt fyrir
bændur að huga vel að þessu til
þess að hægt sé að selja sem mest
af kjöti strax í sláturtíð sem kemur
öllum aðilum til góða.
Framboð lamba til
sumarslátrunar
Undanfarin ár hefur nokkuð
borið á því að framboð á fé til
slátrunar í ágúst og jafnvel í
byrjun september hefur ekki verið
í takt við möguleika
sláturleyfishafa til að slátra.
Sauðfjárbændur og
sláturleyfishafar verða í
sameiningu að reyna að tryggja að
þannig áststand komi ekki upp nú
í haust.
Özur Lárusson
Flokkun, fallþungi og verð
Á myndinni hér fyrir neðan er stillt upp tilbúnu dæmi um líklegan
fallþunga, gæðaflokkun og tekjur (greiðslur sláturleyfishafa m. v. verð
haustið 2003) miðað við mismunandi slátrunartíma. Upplýsingarnar í
töflunni eru byggðar á tölum frá sláturhúsi Norðlenska haustið 2003.
Útflutningshlutfall sem reiknað er með í töflunni er tilbúnar tölur en eru
þó í takt við það sem líklega verður komandi haust. Taflan sýnir ekki
algildan sannleika um verð, fallþunga og flokkun, en henni er ætlað að
vekja athygli á möguleikum sem felast í sumarslátrun. /MSÞ
Útflutningshlutfall og álagsgreiðslur
Útflutningshlutfall fyrir komandi haustslátrun hefur verið ákveðið og
birt í Stjórnartíðindum (www.stjornartidindi.is) og er sem hér segir:
1. janúar - 22. ágúst 2004 10 %
23. ágúst - 29. ágúst 2004 17 %
30. ágúst - 5. september 2004 24 %
6. september - 12. september 2004 31 %
13. september - 28. nóvember 2004 36-38 % *)
29. nóvember - 28. febrúar 2004 24 %
29. febrúar - 1. mars 2005 10 %
*) verður ákveðið innan þessara marka og tilkynnt fyrir 1. sept nk.
Verð sem slátruleyfishafar greiða fyrir sauðfjárafurðir í haust liggur
ekki fyrir. Álagsgreiðslur ,,Markaðsráðs kindakjöts" verða hinsvegar
óbreyttar frá fyrra ári.
Niðurstaða
1. Dæmin hér að framan sýna að fyrir bændur sem hafa til þess
aðstöðu getur verið góður kostur fjárhagslega að slátra elstu og
þroskamestu lömbunum snemma til þess að hagnýta álagsgreiðslur,
hagstæða flokkun og útflutningshlutfall.
2. Sauðfjárbændur eins og aðrir bændur þurfa eftir því sem þeir
hafa tök á og hagkvæmt reynist að sinna og mæta óskum
markaðarins. Kjötmarkaðurinn skilar stærstum hluta teknanna.
3. Sumarslátrun hefur reynst mikilvægur þáttur í markaðssetningu
dilkakjöts á erlenda markaði og einnig vegna sölu á fersku dilkakjöti
innanlands.
4. Til að ná markmiðum um að slátra snemma og fylgja eftir
markaðsmöguleikum fyrir ferskt dilkakjöt heima og heiman, verða
sauðfjárbændur og þeir aðilar er málið varðar að leitast við að
tryggja að fyrirkomulag haustsmalana hafi nægan sveigjanleika og
verði ekki hindrun í þeirri jákvæðu þróun sem nú á sér stað í
markaðsetningu á dilkakjöti.
Tekjur 09.08.04 23.08.04 30.08.04 06.09.04 13.09.04 04.10.04 29.11.04 13.12.04
Meðalvigt kg 13,0 14,0 14,5 15,0 15,3 15,5 15,0 15,5
Útflutningshlutfall 10% 17,0% 24,0% 31,0% 37,0% 37,0% 24,0% 24,0%
Meðalflokkun R2 R2 R2 R2 R2 R3 R3 R3+
Innanlandsverð 287 287 287 287 287 267 277 232
Útflutningsverð 250 245 220 180 150 150 200 200
Álag afurðastöðvar 8% 7% 5,0% 10
Álag markaðsráðs 600 400 200 100 0 0 15 25
Lambsverð innanlands 3.731 4.018 4.162 4.305 4.391 4.139 4.155 3.596
Lambsverð í útflutningi 3.250 3.430 3.190 2.700 2.295 2.325 3.000 3.100
Álagsgreiðslur samtals 898 681 408 250 0 0 225 388
Meðalverð / lamb 4.548 4.599 4.404 4.154 3.699 3.540 3.716 3.408
Mismunur frá fyrstu viku 51,6 -143,3 -394,0 -848,3 -1007,7 -831,6 -1140,2
Markaðir fyrir dilka-
kjöt heima og heiman
Við förum hvert
á land sem er!
Blásið á
vandann!
Við hjá JF verktökum höfum sérhæft
okkur í háþrýstiþvotti og höfum yfir
öflugum búnaði að ráða og höfum
þekkingu og reynslu til að nýta hann á
skilvirkan hátt.
Háþrýstiþvottur
Votblástur
Sótthreinsun
Upplýsingar í
síma 894-5376. Verðtilboð
Smalamaður á Öxnadalsheiði sl.
haust.
Flagheflar
Vinnslubreidd 2,5 m
Verð kr. 198.000 m. vsk.
H. Hauksson ehf
Suðurlandsbraut 48
108 Reykjavík
Sími 588 1130