Bændablaðið - 06.07.2004, Qupperneq 34

Bændablaðið - 06.07.2004, Qupperneq 34
34 Þriðjudagur 6. júlí 2004 Fendt fer fremstur Vélfang ehf. hefur tekið við umboði fyrir Fendt dráttarvélar á Íslandi V E R K I N T A L A Gylfaflöt 24-30 • 112 Reykajavík • Sími 580 8200 • Fax 580 8210 • velfang@velfang.is Við kynnum: • Fendt 200S, 65-95 hö. • Fendt 300C, 80-105 hö. • Fendt 400 Vario 86-128 hö. • Fendt 700 Vario, 115-175 hö. Í vetur er leið féll snjóflóð á Stíflurétt í Fljótum og eyðilagði hana. Gunnar Steingrímsson og Jón Númason, sem báðir eru í fjall- skilanefnd Austur-Fljóta, ræddu nýverið við landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins Skagafjarðar um fjallskilamál og þá sérstaklega um byggingu nýrrar skilaréttar. Fram kom hjá Gunnari fjall- skilastjóra að bændur á svæðinu eru sammála um að byggja skila- rétt í landi Nýræktar og er þegar hafinn undirbúningur með lagn- ingu vegar og að undirstöðum. Menn eru líka sammála um að koma þurfi upp aðstöðu til sundur- dráttar þar sem gamla Stífluréttin stóð. Hún var aðal skilaréttin fyrir bændur á þessu svæði og er þess vegna á vegum sveitarfélagsins. Tveir bæir eru í byggð inn af Stíflunni og gert er ráð fyrir að þeir geti tekið sitt fé úr safninu við Stíflurétt en afgangurinn yrði síðan rekinn í nýju réttina. Gunnar sagði í samtali við Bændablaðið að Stíflurétt hafi verið byggð 1959 og hafi verið steinsteypt. Hann segir að réttin sé svo til alveg ónýt eftir snjóflóðið en þó eigi að reyna að lagfæra eina fimm dilka. Bændur bjóðast til að annast þá lagfæringu gegn því að sveitarfélagið byggi nýju réttina. Gert er ráð fyrir að hún verði byggð úr timbri og hún verður að vera tilbúin í haust því engin önnur rétt er á þessum slóðum. Nýja réttin sem til stendur að byggja í landi Nýræktar er nærri vegamótunum Siglufjörð- ur/Ólafsfjörður þegar komið er frá Hofsósi. Við það að reisa rétt í landi Nýræktar mun gangna- fyrirkomulag og smölun breytast þannig að megnið af því fé sem smalað var í Stíflurétt verður rekið niður í nýju réttina. Með tilkomu hennar minnkar akstur með fé því bændur, sem búa neðar í sveitinni og hafa til þessa orðið að aka sínu fé frá Stíflurétt, geta nú rekið það heim. Í Austur- Fljótum var um 2.800 fjár á fóðrum í vetur. Stíflurétt í Fljótum eyðilagðist í snjóflóði í vetur Ætla að byggja nýja rétt Samningur um kaup á greiðslumarki í mjólkurframleiðslu Í nýrri reglugerð landbúnaðarráðuneytisins um greiðslumark mjólkur á lögbýlum fyrir verðlagsárið 2004-2005 (523/2004), er kveðið á um að tilkynningu um aðilaskipti að greiðslumarki þurfi að fylgja samningur þar sem fram komi nöfn samningsaðila, kennitala, heimili, og lögbýlisnúmer, dagsetning samnings og gildistaka, kaupverð, verð á lítra mjólkur og heildarmagn, undirskrift kaupenda og seljenda ásamt staðfestingu vitundarvotta. Bændasamtök Íslands hafa útbúið form að slíkum samningi sem auk þess inniheldur ýmis atriði úr samningsformi fyrir kaup að greiðslumarki sem aðgengilegt hefur verið á heimasíðu LK og í Handbók bænda. Samningsform þetta er aðgengilegt á heimasíðu BÍ, www.bondi.is. Athygli er vakin á að samningur sem uppfyllir ofantal- inn skilyrði þarf að fylgja öllum tilkynningum um aðilaskipti að greiðslumarki sem taka eiga gildi frá 1. september n.k. Byggðarráð Skagafjarðar samþykkti bókun þar sem segir að ráðið mótmæli "þeim mismun að krefja landsmótshaldara um greiðslu fyrir löggæslukostnað í tengslum við Landsmót UMFÍ og unglingalandsmót gagnvart smærri sveitarfélögum og ungmennasamböndum á landsbyggðinni, samanborið við íþróttafélög og stærri sveitarfélög sem þurfa ekki að bera slíkan kostnað vegna viðburða á þeirra vegum. Byggðarráð telur að gera þurfi skýran greinarmun á Landsmóti UMFÍ og unglingalandsmóti sem er þáttur í forvarnarstarfi og t.d. þeim útihátíðum sem víða eru haldnar um verslunarmannahelgi." Byggðaráð Skagafjarðar mótmælir greiðslu á löggæslukostnaði á Landsmóti UMFÍ Landsmót UMFÍ hefst 8. júlí Landsmót Ungmennafélags Íslands, hið 24. í röðinni, verður haldið á Sauðárkróki dagana 8. til 11. júlí nk. Landsmót UMFÍ er fjölmennasta íþróttamót sem haldið er á Íslandi. Fyrsta mótið var haldið árið 1909, en síðan 1940 hefur það verið haldið þriðja hvert ár. Á þessu móti er keppt í flestum greinum íþrótta sem stundaðar eru hér á landi auk ýmissa starfsíþrótta eins og dráttarvélarakstri, starfshlaupi, línubeitingu auk annarra greina. Fjöldi keppenda er um 2000 og þeir sem koma og fylgjast með eru frá 12 til 20.000, en hefur mest farið upp í 25.000 manns árið 1965. Það sem gerir mót þetta að stórviðburði á Íslandi er hinn mikli fjöldi keppenda og áhorfenda auk mikillar fjölbreytni í keppnisgreinum. Unglingalandsmót UMFÍ verður einnig haldið á Sauðárkróki. Það fer fram um verslunarmannahelgina, hefst föstudaginn 30. júlí og stendur til sunnudagsins 1. ágúst. Getum bætt við okkur verkefnum Erum á Suðurlandi Grafa Jarðýta Vörubílar

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.