Bændablaðið - 06.07.2004, Qupperneq 35
Þriðjudagur 6. júlí 2004 35
Hjalti Oddsson, starfsmaður Landgræðslu ríkisins, er þúsund þjala
smiður. Hann hefur fundið upp, lagað og breytt ýmsum vélum, tækjum
og tólum fyrir Landgræðsluna. Það nýjasta er sáðvél sem hann kallar
Traðkolínu og þykir mikið þing. Áður voru sáðvélar hafðar aftan í
dráttarvélunum en þá vildu fræin fjúka auk þess sem illgerlegt var að fara
með þær yfir erfitt land. Þá datt Hjalta í hug að búa til vél sem var sett fyrir
framan dráttarvélina. Það líkaði honum ekki heldur og þá kom hugmyndin
að Traðkolínu. Hún er sett fyrir framan afturhjól dráttarvélarinnar og síðan
fer hjólið yfir fræin og pressar þau niður í svörðinn. Aftan á dráttarvélinni
er svo eins og sjá má mikill tankur sem í er áburður sem dreifist yfir
hjólförin þar sem fræin liggja. Með þessari útfærslu er hægt að fara yfir
og sá í ,,tungllandslag" segja menn í Gunnarsholti.
Atlantsolía hefur hafið sölu á
1.300 lítra plasttönkum fyrir
dísilolíu til bænda og smærri
verktaka. Engar skuldbindingar
fylgja kaupum á þessum
tönkum. Þess vegna geta
bændur leitað bestu kjara
hverju sinni óháð innflytjanda
eldsneytis. Miðað við verð á
dísilolíu hjá Atlantsolíu borga
tankarnir sig upp á 6 til 18
mánuðum. Hægt er að velja
milli þess að hafa 220 volta
dælur með eða án mælis en
dælurnar eru útbúnar með
tæplega tveggja metra slöngum.
Það var Eyvindur Jóhannsson,
hjá Vinnulyftum Garðabæ, sem
var fyrsti aðilinn til að taka í
notkun þessa nýju gerð tanka
frá Atlantsolíu. Tankarnir eru
smíðaðir hjá Sæplasti Dalvík og
eru sérstaklega styrktir. Verð á
1300 lítra tanki og ódýrri 230
volta rafmagnsdælu er 66,184
kr. án vsk.
Ef og þegar nýtt
fyrirkomulag verður tekið upp
varðandi dísilolíuna og bændur
verða að nota litaða olíu á
dráttarvélar sínar en ólitaða á
bifreiðarnar eru tankar á borð
við þessa athyglisverður kostur
T.v. Eyvindur en t.h. er
Ólafur Baldursson, sölustjóri
Atlantsolíu.
Plasttankar fyrir dísilolíu
Æðarbændur
athugið
Móttaka æðardúns er hafin, ásamt hreinsun og sölu.
Hækkandi verð.
Mikil eftirspurn.
Frír flutningskostnaður allsstaðar af landinu.
Fyrsta sending fer erlendis í júlí.
Fyrstir koma fyrstir fá.
Sama gamla ódýra hreinsunargjaldið fyrir þá sem hreinsa og
selja í gegnum okkur, kr. 3.500 með vsk. pr hreint kg.
Margra áratuga reynsla í meðferð æðardúns.
Uppl. gefa Þórunn í síma 434-1430 eða 893-3460. Hilmar í síma
434-1588 eða 893-6745
Smíðum sérlega vandaðar bílskúrs- og iðnaðarhurðir eftir málum. Þær eru léttar
og auðveldar í notkun. Einangrun er á öllum köntum. Fáanlegar í mörgum
stærðum og gerðum, með eða án glugga. Einnig fáanlegar með mótordrifi.
Verðdæmi: 3000 mm X 3000 mm = kr. 115.020,- m/VSK
Bílskúra- og
iðnaðarhurðir
Vagnar & þjónusta ehf
Tunguháls 10, 110 Reykjavík
Sími: 567-3440, Fax: 587-9192
Afgreiðslutími hurða
3m hæð, 4 dagar.
Steinefnastampur
Nýjung. Steinefni og vítamín í fötum.
Innihaldið er sérframleitt fyrir FB en uppskriftin er
þróuð af sérfræðingum FB.
Hafðu samband núna.
Stórlækkað verð
Útsölustaðir:
Fóðurblandan, Reykjavík.
FB Búvörur, Selfossi
FB, Búvörur, Hvolsvelli
Bústólpi, AkureyriVerð aðeins kr. 2.585
www.fodur.is
Sími: 570 - 9800