Bændablaðið - 06.07.2004, Síða 39
Þriðjudagur 6. júlí 2004 39
Efnagreiningar á heyi 2004
Fyrirkomulag og framkvæmd heyefnagreininga haustið 2004
Fyrirkomulag og framkvæmd á efnagreiningaþjónustu fyrir bændur verður með sama
hætti og á síðastliðnu ári. Rannsóknastofnun landbúnaðarins (RALA),
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri (LBH) og Ráðunautaþjónusta á Norðausturlandi (RN)
munu vinna verkið sameiginlega.
Vinnuferillinn verður því óbreyttur frá síðasta ári. Sýnin skulu öll send að Hvanneyri þar
sem þau verða skráð og hluti mælingavinnu fer fram. Undanskilin eru sýni af
Norðausturlandi (RN) þau skal senda að Búgarði, Akureyri eins og verið hefur. Niðurstöður
verða sendar út frá RALA, og einnig frá Búgarði fyrir þau sýni sem tilheyra starfssvæði RN.
Ábyrgðarmenn eru :
Björn Þorsteinsson, Hvanneyri, sími 4330000, fax 4330001
Guðmundur Helgi Gunnarsson, Búgarði, sími 4604477, fax 4604478
Tryggvi Eiríksson, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, sími 5911500, fax 5911501
Fjós eru okkar fag
Landstólpi ehf.
Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eiríksson
s: 4370023 / 8694275 s: 4865656 / 8989190
Skipulag fjósa, hönnun og ráðgjöf
- Nýbyggingar, viðbyggingar, breytingar
- Hafið samband - við mætum á staðinn
Weelink - fóðrunarkerfi
Ametrac - innréttingar í fjós
Promat og AgriProm - dýnur
Zeus og Appel - steinbitar
Dairypower - flórsköfukerfi
PropyDos - súrdoðabrjóturinn
Urban - kjarnf.básar, kálfafóstrur
Uno Borgstrand - loftræsting
Ivar Haahr - opinn mænir
Lynx - eftirlitsmyndavélar
Carfed - plastgrindur í gólf
Austurvegi 69 - Selfossi - Sími 4 800 400
Jötunn Vélar
- Sterkur félagi -
buvelar.is
Mikið úrval
orginal varahluta í
Claas og Kuhn
HAGSTÆTT VERÐ!
Sérhæft
hreinsifyrirtæki
JF verktakar hafa sérhæft sig í
háþrýstiþvotti og hafa yfir öflug-
um búnaði að ráða. Í frétta-
tilkynningu kemur fram að þeir
hreinsi burt gamla málningu af
húsum og húsþökum með há-
þrýstiþvotti. Þá bjóða JF verktakar
upp á votblástur en þá er vatni og
sandi blandað saman, til að losna
við ryk sem fylgir hefðbundum
sandblæstri. Þetta er árangursrík
aðferð til alhreinsunar á öllu járni
og hentar vel innanhúss t.d. á
loftbita og milligerði. Fyrirtækið
hefur rösklega fimm ára reynslu
við þvott og sótthreinsun í gripa-
húsum og hefur m.a. þvegið fjósin
á Hrafnagili og Garðsá svo dæmi
séu tekin.
JF verktakar eru tilbúnir til að
fara hvert á land sem er en há-
þrýstidælu JF verktaka er komið
fyrir á bíl sem er sérútbúinn til
þessara nota. Í bílnum eru einnig
stórir vatnstankar, svo vatns-
skortur á ekki að hamla fram-
kvæmdum. Vinnupalla og aðra
aukahluti og búnað sem á þarf að
halda er einnig að finna í bílnum.
Þessi sérútbúni bíll gerir JF verk-
tökum auðvelt fyrir að taka að sér
verk hvar sem er á landinu.
Upplýsingar og verðtilboð í síma
894-5376. - Úr fréttatilkynningu.
Úrslit úr verðlaunagetraun á
100 ára afmæli Nautgripa-
ræktarfélags Gnúpverja.
Verðlaunahafar urðu fimm talsins.
Enginn var með öll svörin alveg rétt enda
spurningar erfiðar en margir fóru
glettilega nálægt réttu svari. Má þar
nefna að einungis munaði einum
sentimetra á brjóstummáli stærstu
kýrinnar og einu kílói munaði á þyngd
kálfsins. Gaman er að geta þess að tveir
verðlaunahafar eru einungis tíu ára,
áhugasamt og athugult fólk það!
Mjólkurbú Flóamanna gefur verðlaunin
sem eru glæsilegar ostakörfur og bolir
fyrir yngra fólkið.
Þeir sem hljóta verðlaunin eru:
Guðjón Vigfússon Húsatóftum.
Ingimunda Guðrún Þorvaldsdóttir
Selfossi.
Helga Höeg Sigurðardóttir Hæli
Lísa Margrét Jónsdóttir,
Bólsstaðahlíð 52, Rvk.
Kristinn Högnason Laxárdal .
Rétt svör eru:
1. Grönótti kálfurinn(frá Ásum) var 86 kg.
2. Stærsta kýrin mælist 201 cm.
3. Tennur í fullvaxta kú eru 32 ( 8 í neðri
framgóm, 6 í hverjum kjálka).
Fendt fer fremstur
Vélfang efh. hefur frá og með
fyrsta júlí s.l. tekið við sölu- og
þjónustuumboði, þar með talinni
varahlutaþjónustu, fyrir Fendt
dráttarvélar á Íslandi. Í
fréttatilkynningunni frá Vélfangi
ehf. segir ennfremur að Fendt
dráttarvélar séu með eina lægstu
bilanatíðni sem um getur og séu
yfirleitt seldar háu verði í
endursölu. Hvort heldur ætlunin er
að fjárfesta í hefðbundnum fjöl-
nota landbúnaðartraktor, sérbúinni
vél til verktöku, gangstéttargengri
vél eða háþróaðri dráttarvél með
Fendt Vario skiptingu, þá munu
bændur, sveitarfélög, verktakar og
aðrir finna í Fendt dráttarvélum þá
vél sem uppfyllir kröfur þeirra og
væntingar. Starfsfólk Vélfangs
ehf. veitir allar nánari upplýsingar
og ráðgjöf við val á búnaði, sniðn-
um að þörfum hvers og eins, í
síma 580-8200.
Úr fréttatilkynningu.
Girðingar
við
Biskups-
tungnabraut
Eigendur jarða við Biskups-
tungnabraut eru minntir á
viðhald á girðingum meðfram
veginum. Mikil umferð er um
Biskupstungnabrautina á
sumrin og talsverð slysahætta
er af sauðfé þar. Viðhald
girðinga greiðist að jöfnu af
veghaldara og landeiganda og
er miðað við að
viðhaldskostnaður nemi 4% af
stofnkostnaði girðinga. Þannig
greiðir Vegagerðin 2% af þeim
stofnkostnaði. Þegar land-
eigandi hefur lokið árlegu
viðhaldi girðinga með
stofnvegum og tengivegum
skal hann tilkynna það til
sveitarstjórnar. Umsókn um
nýjar girðingar þar sem þeirra
er þörf liggur fyrir hjá Vega-
gerðinni sem vonandi fer í þá
vinnu næsta sumar. Þetta
kemur fram á heimasíðu
Grímsnes- og Grafningshrepps.