Dagsbrún - 01.11.1975, Side 14
C-sveit Dagsbrúnar að vinna A-sveit trésmiða.
A-sveit Trésmiðafélags Reykja-
vikur. 1973 sigraöi A-sveit Dags-
brúnar með glæsibrag, en kepjjn-
in féll niöur árið eftir. Benóný
Benediktsson hefur lengst af verið
á 1. borði fyrir Dagsbrún, en
hann gat ekki tekiö þátt í síðustu
keppni.
Keppni Dagsbrúnar og
Háskólans
I spjalli við Guðmund J. Guð-
mundsson um skák og Dagsbrún-
armenn kom fram, að þeir hefðu
marga hildi háð, og yfirleitt allt-
af farið með sigur af hólmi. Það
vakti mikla athygli þegar Dags-
brún bauð Háskólanum í keppni
á 25 borðum í apríl í fyrra, en
vegna forfalla fór keppnin fram
á 23 borðum. Þarna hitti Dags-
brún fyrir ofjarl sinn, í fyrri um-
ferð (umhugsunartími 1 klst. á
skák) sigraði Háskólinn 15%
gegn 7y2 en í síðari umferð rétti
Dagsbrún mjög hlut sinn og sigr-
aði með 13 v. gegn 10, en heild-
arúrslit urðu 25% gegn 20% Há-
skólanum í vil. Þetta var mjög
skemmtileg keppni, og þarna hittu
margirHáskólamenn gamla vinnu-
félaga. Keppni þessi verður end-
urtekin í vetur að öllu forfalla-
lausu og þá eru Dagsbrúnarmenn
ákveðnir í að sigra.
Skákklúbbur Dagsbrúnar
I vetur stendur til að stofna
skákklúbb Dagsbrúnarmanna og
er ekki að efa að starfsemi klúbbs-
ins verði fjölbreytt og skemmtileg,
þar sem menn á aldrinum 16 til
70-80 ára munu hittast við tafl-
borðiö.
Ef við hverfum aftur til Benó-
nýs Benediktssonar, hins merka
og litríka skákmanns, þá hefur
hann samkvæmt stigatöflu 1. júní
sl. 2320 stig, sem er með hærri
stigatölu íslenskra skákmanna.
Gylfi Magnússon hefur til saman-
burðar 2245 stig og Sigurður
Jónsson 2135 stig. Benóný varð
skákmeistari Reykjavikur 1956,
1962, 1967 og 1974 og hraðskák-
meistari íslands 194B og 1953.
Þá er rétt að rifja upp að ann-
ar frægur maður hefur lengi verið
í Dagsbrún og sá maður er Jón
Guömundsson, sem frægur varð
á mótinu í Buenos Aires árið
1939. Islenska sveitin varð efst í
öðrum flokki og í þeirri keppni
vann Jón allar 10 skákirnar sem
hann tefldi á 3. borði. Jón varð
skákmeistari Islands árið 1932,
1936, 1937 og skákmeistari
Reykjavíkur árin 1935 og 1936.
Jón hætti að tefla opinberlega
skömmu eftir hið fræga mót í
Argentínu, en hann fékkst þó til
þess að keppa einu sinni með A-
sveit Dagsbrúnar á 2. borði í
skákkeppni við Hreyfil og sigraÖi
þá m. a. sterkan meistaraflokks-
mann í 20 leikjum.
Ásmundur Ásgeirsson, sem
einnig var í sveitinni sem fór til
Argentínu var lengi í Dagsbrún.
Hann varð skákmeistari Islands
1931, 1933, 1934, 1944, 1945 og
1946 og skákmeistari Reykjavík-
ur 1931, 1932, 1937 og 1940.
sj.
I skákkeppni verkalýðsfélaga
tefldi Sigurður Jónsson í A-sveit
Dagsbrúnar eftirfarandi skák
gegn Jóni ÞorvarÖarsyni í B-sveit
Dagsbrúnar. Sigurður var með
svart:
1. d4 Rf6 17. BxB DxB
2. Rc3 c5 18. c3 e5
3. Rf3 d5 19. De2 Hfe8
4. Bg5 e6 20. Hfdl f4
5. dxc Bxc 21. Rd2 e4
6. e3 Rc6 22. Dg4 e3
7. a3 Bd7 23. Rf3 Hcd8
8. Bd3 h6 24. Rd4 De5
9. Bh4 Be7 25. fxe Dxef
10. 0—0 Hc8 26. Khl HxR
11. Bg3 O—O 27. cxR f3
12. e4 dxe 28. d5 Bxd5
13. Rxe RxR 29. Hgl fxg2f
14. BxR f5 30. HxP Delf
15. Bxc6 Bxc6 Gefið.
16. Be5 Bf6
14
DAGSBRÚN