blaðið - 27.06.2005, Síða 4

blaðið - 27.06.2005, Síða 4
Njóttu lífsins með heilbrigðum Viðurkenndir bókarar - Réttindanám fyrir bókara Símennt Háskólans í Reykjavík býður einnar annar nám fyrir bókara. Um er að ræða réttindanám samkvæmt reglugerð nr. 473/2001 um námskeið og próf fyrir viðurkennda bókara sem skiptist í þrjá hluta: • Upplýsingamiðlun og upplýsingakerfi (24 klst.) • Skattskil (40 klst.) • Reikningshald (40 klst.) Verð kr. 239.000. Próftökugjöld innifalin. Námið er einkum ætlað: Starfsfólki bókhaldsstofa, fjármála- og hagdeilda fyrirtækja. Námið er fagnám og er mjög umfangsmikið. Ágæt reynsla og þekking á bókhaldi, reikningshaldi og skattalegum atriðum er nauðsynleg. Að loknu námi hljóta útskrifaðir þátttakendur titilinn „Viðurkenndir bókarar", sbr. 43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald. Námið hefst 2. september n.k. og lýkur í desember. Próf verða haldin eftir hvern hluta. Umsóknarfrestur er til 15. júlf 2005. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Undirbúningsnámskeið í bókhaldi og Excel hefst 15. ágúst. Verð 15.000 kr. - Tímalengd 16 klst. Frekari upplýsingar veitir Þór Clausen Beinn sími: 599 6288 Skiptiborð: 599 6200 thorc@ru.is www.ru.is/simennt HÁSKÓLINN I REYKJAVlK REYKJAVlK UNIVERSITY Kynnum Nýjan 2006 Mercedes Benz ML 350 Leðurinnrétting, 7 þrepa sjólfskipting, Topplúga, Xenon Ijós, "Sound System" ofl. Okkar veró 6.390 þús. Skúlagötu 17 Sími: 577 3344 www.sparibill.is ________________________ f mánudagur, 27. júní 2005 I blaðið Umboðsmaður barna áhyggjufullur Ingibjörg Rafnar, umboðsmaður barna, segir það áhyggjuefni hversu lengi íslensk börn dvelja á leikskóla yfir daginn. „Þetta er langur vinnu- dagur fyrir lítil börn og samverutími fjölskyldunnar er ekki nægur. Þetta helst í hendur við langan vinnudag foreldra. Það er ekki ólíklegt að svona löng vistun geti haft áhrif síð- ar meir en ég tek það fram að ég er ekki fagmaður í þeim efnum." Vistun- artími barna á leikskólum tvöfaldað- ist á milli áranna 1998 og 2004. Árið 1998 voru 2.743 börn á leikskóla i níu klukkustundir eða lengur en ár- ið 2004 voru þau orðin 5.544. Aukn- ingin er mest hjá 0-2 ára börnum en árið 1998 var 531 börn á leikskóla í níu klst eða lengur á dag en árið 2004 voru þau orðin 1.463. Blaðið ræddi við nokkra leikskólakennara og voru þeir allir sammála um að þetta væri mjög löng viðvera fyrir ung börn, og þessi aukning væri því slæm þróun. Það er of mikið lagt á börn að vinnudagur þeirra sé lengri en leikskólakennara. Ingibjörg seg- ir að það megi þó ekki gleymast að þrátt fyrir mikinn hávaða og áreiti sé leikskólinn öruggur staður, enda séu íslenskir leikskólar góðir. Samt þarf að huga að starfsmannaveltu. „Við megum þó ekki bara búa til sam- viskubit hjá ungum konum. Við þurf- um öll að huga að þessu vandamáli - foreldrar og vinnumarkaðurinn. Það verður dýrara að leysa úr þessu síðar meir.“ Blekkingar viðhafðar við kaup Búnaðar- bankans Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við viðskiptadeild Háskóla íslands, held- ur því fram að þáverandi eigendur Búnaðarbankans hafi verið blekkt- ir þegar bankinn var seldur. Þetta sagði Vilhjálmur í viðtali við frétta- stofu Ríkisútvarpsins í gærkvöld. Hann kvað þýska bankann Hauck und Aufháuser aldrei hafa átt hlut þann í Búnaðarbankanum, sem hann var sagður eiga, heldur hefði S-hóp- urinn svonefndi, einn aðalkaupandi bankans af ríkinu, verið raunveruleg- ur eigandi. Á sínum tíma var þýski bankinn sagður eiga hlut í Búnaðarbankan- um með hlut sínum í eignarhalds- félaginu Eglu, sem var einn hinna formlegu kaupenda. Fyrir skömmu keyptu hins vegar íslenskir fjárfest- ar þennan eignarhlut aftur af Þjóð- verjunum, samkvæmt fréttum. Vil- hjálmur sagðist hafa glaðst innilega yfir því þegar Búnaðarbankinn var seldur haustið 2002 því þá hefði virst sem loksins væri kominn erlendur banki inn á íslenskan bankamarkað. Raunin hafi verið önnur. Vilhjálmur sagði í kvöldfréttum RÚV að þetta væri athugavert því á verðbréfamarkaði væri ætlast til þess að upplýsingar væru gefnar um eigendur stórra hluta. Eignarhald þessa hlutar hafi hins vegar verið afar óljóst. Hafi eignarhaldið alltaf verið Eglu eða annarra innan S-hóps- ins hefði það átt að koma fram í upp- hafi. Vilhjálmur sagði margt fleira at- hugavert við sölu Búnaðarbankans. Eins og fram hafi komið í skýrslu ríkisendurskoðanda um sölu ríkis- fyrirtækja 1998-2003 hafi S-hópur- inn fengið greiðslufrest hjá ríkinu á hluta kaupverðsins og að selt hafi verið á óeðlilega lágu gengi. Til sýnis að Skúlagötu 17 __________________________J Megadeth á Nasa í kvöld Þungarokksgoðin í Megadeth, með Dave Mustaine í broddi fylk- ingar, komu til landsins í gærdag, en hljómsveit- in heldur tónleika á skemmtistaðn- um Nasa ____ í kvöld. Það er vita- skuld sveit- in Drýsill uppvakin sem hitar upp fyrir Megadeth. Ljós- myndari Blaðsins hitti gítarleikarann, Glen Drover, á leið í kvöld- verð og kvað hann band- ið ánægt með að vera loksins komið til lands elds og ísa. Hét hann því að annaðkvöld myndi miðbærinn nötra und- an þyngsta klúbbkons- ert sem Reykja- vík hefði kynnst. Blaðiö / Steinar Hugi íslandsdeild Amnesty International sviðsetti í gær pyntingar og harðræði á alþjóðleg- um stuðningsdegi Sameinuðu þjóðanna með fórnarlömbum pyntinga, en í síðustu ársskýrslu samtakanna kom fram að pyntingar eru stundaðar í 104 ríkjum heims. Blaðið / Steinar Hugi Auglýsingadeild 510-3744 blaðiðL

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.