blaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 22
mánudagur, 27. júní 2005 I blaðið
Serena úr leik
Tenniskempan Serena Williams féll
óvænt úr leik á Wimbledon-mótinu
í tennis sem nú stendur yfir. Jill
Craybas sló Williams út 6:3 og 7:6
í þriðju umferð mótsins. Serena
hefur átt í ökklameiðslum, hún
meiddist illa í maí og neyddist til
að sleppa opna franska meistara-
mótinu. Stóra systir hennar, Venus
Williams, komst aftur á móti áfram
eftir sigur á Danielu Hantuchovu.
........■
Real bauð
í Lampard
Chelsea hafnaði tilboði Real Madr-
id í miðjumanninn Frank Lampard,
sem hljóðaði upp á 20 milljónir
punda, auk Michaeis Owen og
Santiagos Solari. Lampard kom til
Chelsea frá West Ham árið 2001
fyrir 11 milljónir punda. Hann er nú
einn af lykilmönnum hjá Englands-
meisturum Chelsea en talið er að
Real Madrid hefði verið tilbúið að
hækka launin hans upp í um 90
þúsund pund á viku. g
Kvennamet
á AMI
Á AMÍ um helgina synti Sigrún Brá
Sverrisdóttir úr Sunddeild Fjölnis
á nýju íslands- og stúlknameti í
400 m skriðsundi. Sigrún, sem
er aðeins 15 ára, synti greinina í
dag á 4:19,74 og bætti þar með
rúmlega sex ára gamalt met Láru
Hrundar Bjargardóttur um 98/100
úr sekúndu. Glæsiiegur árangur
hjá Sigrúnu en þetta er skv. bestu
heimildum fyrsta íslandsmetið sem
sett er í fullorðinsflokki á AMÍ síðan
1997 þegar Örn Arnarson, Lára
Hrund Bjargardóttir og fleiri voru
upp á sitt besta í unglingaflokkum.
Wenger í sókn
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
segist ætla að fá tvo heimsklassa-
leikmenn til að endurheimta enska
meistaratitlinn. Arsenal endaði 12
stigum á eftir Chelsea á síðasta
tímabili en Wenger segir að sínir
menn muni koma til baka. „Við
komumst aftur á toppinn þegar
ég hrindi af stað áætlunum sem
ég hef unnið að. Það inniheldur
meðal annars að fá tvo heims-
klassaleikmenn til að gera okkur
sterkari." Talið er að þessir tveir
leikmenn séu þeir Alexander Hleb,
sem að öllum líkindum skrifar undir
samning hjá Arsenal á næstu dög-
um, auk brasilíska undrabarnsins
Robinhos, sem Arsenal gerir nú allt
til að krækja í.
Álfukeppnin:
Brasilía og Argentína í úrslit
Það verða heimsmeistarar Brasilíu
og Argentína sem leika til úrslita
í Álfukeppninni á miðvikudaginn.
Brasilía vann Þýskaland á laugar-
daginn en Argentína bar sigurorð af
Mexíkó eftir framlengdan leik og víta-
spymukeppni í gær. Adriano var mað-
ur leiksins í sigri Brasilíu en þessi
magnaði framheiji skoraði tvö mörk
og lagði upp eitt í 3-2 sigrinum. Hann
kom Brasilíu yfir með marki beint úr
aukaspymu en aðeins tveim mínút-
um seinna höfðu Þjóðveijar jafnað.
Sebastian Deisler tók homspymu
sem slapp í gegnum allt og alla þar
til Lukas Podolski skallaði boltann
fram hjá Dida eftir að hafa hrist af
sér vamarmann. Tveimur mínútum
fyrir hálfleikinn, á markamínútunni
sjálfri, var Adriano í baráttunni við
Robert Huth, sem endaði með því að
sá síðamefndi braut af sér og dæmd
var vítaspyma. Ronaldinho skoraði
úr henni fram hjá Jens Lehmann
markmanni, sem var ekki ýkja langt
frá því að veija.
Þegar þijár mínútur vom komnar
fram yfir venjulegan leiktíma í fyrri
hálfleik jöfnuðu Þjóðveijar metin úr
annarri vítaspjmu. Emerson braut
á Michael Ballack, fyrirliða Þýska-
lands, sem skoraði sjálfur úr spym-
unni, sinni þriðju á mótinu, en Adri-
ano skoraði svo sigurmarkið á 76.
mínútu þegar hann stakk Huth af
og skoraði með fínu skoti í fjærhorn-
ið. Tvær góðar markvörslur frá Leh-
mann í lok leiks komu í veg fyrir enn
stærra tap Þjóðverja, sem spila um
þriðja sætið við Mexíkó í mótinu.
Argentína áfram
Argentína vann svo Mexíkó í hundleið-
inlegum leik liðanna í gær. Leikurinn
var markalaus fram á 104. mínútu
þegar Carlos Salcido kom Mexíkó yf-
ir en sex mínútum síðar jafnaði Luci-
ano Figueroa fyrir Argentínu. Bæði
liðin vom orðin pirrnð og enduðu
leikinn með 10 menn á vellinum eft-
ir að Rafael Marquez og Javier Savi-
ola fengu rauð spjöld. Grípa þurfti
til vítaspymukeppni en þar skoruðu
leikmenn beggja liða úr fimm fyrstu
spymunum og því þurfti að grípa til
bráðabana. German Lux varði þar
spyrnu Ricardos Osorio og því gat
Esteban Cambiasso tryggt Argentínu
sigurinn, sem hann og gerði.
Stórleikur
Leikur Suður-Ameríkurisanna verð-
ur á miðvikdagskvöldið en þessi lið
mættust nýverið í frábæmm leik í
undankeppni HM. Þar fóm Argent-
ínumenn með sigur af hólmi. Heman
Crespo kom Argentínu yfir í upphafi
leiks og Juan Roman Riquelme bætti
við öðra marki með fallegu skoti.
Crespo kom Argentínu í 3-0 fyrir
leikhlé en Roberto Carlos minnkaði
muninn í síðari hálfleik. Adriano átti
svo stangarskot skömmu fyrir leiks-
lok en lengra komust Brasilíumenn
ekki. Því má búast við hörkuleik á
miðvikudaginn og er ljóst að enginn
knattspymuunnandi má missa af
leiknum! ■
Þrefaldur sigur FH í frjálsum
FH sigraði þrefalt í bikarkeppni
Frjálsíþróttasambands íslands um
helgina og er þetta 12. árið í röð sem
FH sigrar í keppninni. FH, með Silju
Úlfarsdóttur og J ón Amar Magnússon
í fararbroddi, hlaut 195 stig í keppn-
inni sem fram fór á Laugardalsvelli
á fóstudag og laugardag. FH sigraði
einnig í heildarkeppni karla með 105
stig og í heildarkeppni kvenna með 90
stig. I öðm sæti í samanlögðu kom ÍR
með 153 stig, í þriðja sæti var UMSS
með 131 stig, Breiðablik varð í fjórða
sæti með 128 stig og í fimmta sæti
var Ármann/Fjölnir með 122 stig. Ár-
mann/Fjölnir fellur þó ekki niður í 2.
deild þar sem Vesturland hætti við
þátttöku. 2. deildin fór einnig fram
um helgina og var hún á Sauðárkróki
í umsjá USAH. Þar sigraði HSÞ með
69 stig, HSK/Umf. Selfoss var í öðm
sæti með 66 stig. í 3.-4. sæti vom svo
USAH/USVH og UMSE/UFA.
Loeb sigraði í Akrópólís-rallinu
Sebastien Loeb, núverandi heims-
meistari í rallakstri, sigraði í Akrópól-
ís-rallinu í Grikklandi um helgina.
Loeb, sem ekur á Citroén, sigraði í
öllum sérleiðunum á laugardaginn og
lagði þar með gmnninn að sigrinum
en hann hefur nú unnið síðustu fimm
keppnimar í Heimsmeistarakeppn-
inni. Loeb var 1,36 mínútu á undan
Toni Gardemeister en hann ekur
á Ford. Spánverjinn Carlos Sainz
endaði svo í þriðja sæti en hann hef-
ur nú ekið í tveimur keppnum í röð
fyrir Citroén vegna meiðsla Francois
Duval. Sainz ætlar þó að hætta eftir
þessa keppni en hann var í raun hætt-
ur áður en hann var beðinn um að
aka fyrir Citroén í þessum tveimur
keppnum. í stigakeppni ökumanna
hefur Loeb nú 23 stiga forskot á Peter
Solberg en Norðmaðurinn átti í vand-
ræðum með Subaru-bíl sinn í Grikk-
landi um helgina og náði aðeins ní-
unda sæti. í keppni bílaframleiðanda
er Citroén í efsta sæti með 84 stig en
Peugeot er í öðm sæti með 79 stig.
ísland í góðum
Um helgina var dregið í riðla fyrir
EM í handbolta karla, sem fram fer
í Sviss í janúar og febrúar á næsta
ári. ísland var í fjórða ogneðsta styrk-
leikaflokki í drættinum en ekki er
hægt að segja annað en liðið hafi ver-
ið heppið með dráttinn. ísland dróst
í C-riðil meö Danmörku, Serbíu og
Svartfjallalandi og Ungveijalandi. B-
riðillinn er væntanlega sá sterkasti á
mótinu en þar era Spánn, Frakkland,
Þýskaland og Slóvakía. Það sem vek-
ur mesta athygli í kringum mótið er
að Svíar verða ekki með. Þar í landi
er að koma ný kynslóð af leikmönn-
um sem hreinlega hafa ekki burði til
að taka við af gömlu kempunum sem
hafa verið með eitt betra handbolta-
landslið í heiminum undanfarin ár.
Viggó þokkalega sáttur
Blaðið hafði samband við Viggó og
spurði hvort hann væri sáttur við
dráttinn. „Ég er þokkalega sáttur.
Það var ljóst að við fengjum mjög erf-
ið lið. Þetta er ekki verra en hvað ann-
að, það sem við fengum, þannig að
maður verður bara að vera sáttur.“
Við spurðum Viggó út í hvemig hann
meti möguleikana og hann sagði:
„Það er ljóst að allir leikimir í riðlin-
um verða úrslitaleikir þannig að það
er voðalega erfitt að meta einhveija
möguleika. Það ræðst af því hvernig
við komum undirbúnir, hvort allir
menn séu heilir, og þá emm við að
mínu mati með mjög gott lið og getum
náð mjög góðum árangri." Én hver
em sterkustu liðin í riðlinum að mati
Viggós? „Ég sé Serba og Dani sem
álíka sterkar þjóðir, báðar frábærlega
vel mannaðar. Við vitum það alveg
að þetta em allt frábærar handbolta-
þjóðir. Það er engin létt þjóð. Það em
kannski helst Ungveijar sem maður
myndi telja veikasta af þeim.“
Nú er um það bil hálft ár í mótið
og við spurðum Viggó að því hvemig
undirbúningi liðsins yrði háttað fyrir
það. „Við fóram núna á nokkur mót í
haust, tvö mót a.m.k. Síðan er þetta
hefðbundið, við hittumst í janúar og
höfum hann allan, svo það er hefð-
bundinn undirbúningur. Við fómm
a.m.k. á mót í Póllandi og síðan fórum
við væntanlega á mót í Noregi, sem er
ekki frágengið. Síðan fáum við leiki
hér heima í janúar. Það getur verið
að Norðmenn séu að koma en það er
allt á undirbúningsstigi. Við höfum
aðeins haldið að okkur höndum til að
sjá á móti hvaða þjóðum við myndum
dragast áður en við færum endanlega
að ákveða þetta.”
A-Riðill B-Riðill C-Riðill D-Riðill
Sviss Spánn Danmörk Króatía
Slóvenía Frakkland Serbía/Svartfjallaland Rússland
Pólland Þýskaland Ungverjaland Noregur
Úkraína Slóvakía ísland Portúgal
Fjármöqnun í takt við þínar þarfir
Suðurlandsbraut 22
108 Roykjavík
Sími 540 1500 Fax 540 1505
www.lqstng.is