blaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 8
8 erlent
1
mánudagur, 27. júní 2005 I blaðið
Óháðri rannsókn á
Guantanamo neitað
Ungur maður mótmælir fyrir utan Hvíta
húsið í Washington. Sífellt fleiri krefjast
þess að fangabúðum Bandaríkjamanna
við Guantanamo-flóa á Kúbu verði
lokað.
Hvíta húsið í Bandaríkjunum hefur
sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að
fangabúðir þeirra við Guantanamo-
flóa á Kúbu muni ekki sæta rann-
sókn óháðra aðila. Þess hefur verið
krafist af mannréttindasamtökum
og ijölmörgum aðilum sem gagnrýnt
hafa meðferð Bandaríkjamanna á
þeim sem eru í haldi í Guantanamo.
Scott McClellan, talsmaður Hvíta
hússins, sagði að innra eftirlit með
Guantanamo væri fullnægjandi og
ekki væri nauðsyn á að óháðir aðilar
rannsökuðu meðferð á fóngum þar.
Sagöi hann það ekki vera hagsmuna-
árekstra að Varnarmálaráðuneytið
sæi sjálft um að rannsaka þau mál
sem koma upp í fangelsinu. McClell-
an sagði að Pentagon væri þessa
stundina að rannsaka tíu ólík tilfelli
þar sem fangaverðir eru sakaðir um
pyntingar og misbeitingu á valdi sínu
gagnvart fóngum. í Guantanamo eru
um 540 fangar, en aðeins
ið ákærður fyrir
glæpi og yfir fæst-
um þeirra hefur
verið réttað. ■
14 ára stúlka
lést í hákarlaárás
Sjálfsmorðs-
árásir í Mósúl
ra í r á
14 ára stúlka lét lífið þegar hákarl
réðst á hana úti fyrir strönd á Flórída
um helgina. Stúlkan var að synda á
bretti í sjónum ásamt vinkonu sinni,
tæpa 200 metra frá ströndinni, þeg-
ar hákarlinn réðst á hana og náði
að bíta af henni fótinn. Með hjálp
annarra strandgesta komust vinkon-
urnar í land, en stúlkan lést af sárum
sínum þegar komið var á sjúkrahús.
Vinkonan slapp ómeidd. Ekki er vit-
að með vissu af hvaða tegund hákarl-
inn er en það mun að öllum líkindum
skýrast við krufningu. Að sögn sjónar-
votta var hann þó í stærra lagi og var
afar grimmur. Strandsvæðinu
miðjan dag í gær.
Flórída er með-
al þeirra staða í
heiminum þar sem
flestar hákarlaárásir eiga sér stað.
Árið 2003 urðu 30 manns fyrir há-
karlaárás og í fyrra voru þær 12, sam-
kvæmt Náttúrufræðistofnun Flórída-
fylkis. Þó er sjaldgæft að fólk láti lífið
í slíkum árásum og hafa hákarlar yf-
irleitt lítinn áhuga á fólki. Algengast
er að þeir taki fólk í misgripum fyrir
stóra fiska. ■
r fer vaxandi
karlmanna
Irakskir menn við rústir eftir að árás var gerð á sjúkrahús í Mósúl um helgina.
Að minnsta kosti 35 létu lífið í þrem-
ur sjálfsmorðsárásum í borginni Mó-
súl og í grennd við hana, í írak í gær.
Þar af létust 15 í árás á lögreglustöð
í miðbæ Mósúl. Hinar tvær árásirnar
voru gerðar á sjúkrahús og rétt utan
við herstöð í borginni. Donald Rums-
feld, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, staðfesti við fjölmiðla um
helgina að bandarísk yfirvöld hafi
átt í viðræðum við uppreisnarmenn í
írak, í von um að lægja þá skálmöld
sem ríkt hefur þar í landi.
bjornbragi@vbl.is
Ófrjósemi fer í auknum mæli að
verða vandamál meðal karlmanna,
frekar en kvenna, samkvæmt niður-
stöðum rannsókna sem nýlega voru
gerðar í Danmörku. Af ófrjósemistil-
fellum hingað til hafa um 40% tilfella
verið rakin til karlmanna og 40% til
kvenna, en 20% til sameiginlegra
vandamála. Nokkrir samverkandi
þættir, m.a. minnkandi gæði sæðis
karlmanna sökum eiturefna í um-
hverfinu, hafa hins vegar valdið því
að sífellt fleiri tilfelli ófrjósemi eru nú
rakin til karlmanna. Inn í þetta spilar
að karlmenn reyna í auknum mæli að
eignast börn síðar á ævinni en áður.
Notkun á lyfjum og læknismeðferðum
vegna ófrjósemi karlmanna fer sífellt
vaxandi. Niðurstöður rannsóknanna
komu frá 24 löndum Evrópu.
SUMARIÐ ER TIMINN
Einn heimur
Einn draumur
Slagorð Ólympíuleikanna árið 2008,
sem fram fara í Peking í Kína, var
tilkynnt í gær og verður: „Einn heim-
ur - einn draumur”, en yfir 200.000
hugmyndir bárust í samkeppni sem
kínversk stjórnvöld stóðu fyrir.
Mikið sjónarspil var í kringum opin-
berunina, sem minnti einna helst á
opnunarhátið leikanna þar sem tón-
list, dans og flugeldar skörtuðu sínu
fegursta. ■
•M
ÞAKMALUN
S: 697 3592/844 1011
Vélbyssa Guðs
lýkur störfum
-landsins mesta úrval
J Tjaldalandi við G/æs
SimejrCi
bjornbragi@vbl.is
Bandaríski predikíuinn Billy Gra-
ham lauk síðustu krossferð sinni í
New York í gær og endaði þar með
farsælan feril sinn, en Graham hefur
síðustu áratugi predikað fyrir hundr-
uð milljónir manna í yfir 180 löndum.
Graham hefur löngum verið kallaður
„Predikari Bandaríkjanna" en gaf
sjálfum sér á sínum tíma viðurnefnið
„vélbyssa Guðs“. Graham predikaði
fyrir tugþúsundir á laugardags- og
sunnudagskvöld og var fyrrverandi
forseti Bandaríkjanna, Bill Clinton,
á meðal áhorfenda. Clinton lét hafa
eftir sér að Graham væri „maður sem
hann elskaði". Predikarinn ástsæli
hefur sjálfur ekki gefið það út opinber-
lega að hann ætli að hætta, en Frankl-
in, sonur hans, sem er með honum í
fór hefur sagt fólki að þetta sé hans
síðasta fór. Auk þess er hinn 86 ára
gamli Graham orðinn afar þrotinn
að kröftum, þjáður af parkinson og
krabbameini, og hefur átt erfitt með
að flytja ávörp sín síðustu ár.
SimejrCoho
2ja manna
Einfalt og skemmtilegt
göngutjald. \ ÍK.
Þyngd 2,6 kg
Verð 12.990*,
Lítil stúlka
lést í þurrkara
Þriggja ára stúlka fannst látin í
þurrkara á heimili sínu í Bretlandi
um helgina, en hún mun hafa dáið af
köfnun. Talið er víst að um slys hafi
verið að ræða en afi stúlkunnar sagði
að dyrnar á þurrkaranum hefðu lok-
ast eftir að stúlkan skreið inn í hann.
„Þetta var hörmulegt slys og fjölskyld-
an er í losti," lét afinn hafa eftir sér.
Málið er í rannsókn lögreglu og telst
ekki enn upplýst. ■
UTILIF
| 9' k
%
r Y
' /
**
SMÁRALIND SlMI 545 1550 O GLÆSIBÆ SlMI 545 1500 O KRINGLUNNI SlMI 545 1580
Billy Graham.
Karlfyrirsæta sýnir vor- og sumarhönn-
un Vivienne Westwood í herrafatnaði í
Mílanó á Ítalíu í gær.