blaðið - 27.06.2005, Síða 17

blaðið - 27.06.2005, Síða 17
blaðið I mánudagur, 27. júní 2005 33 Karrý krydd- blöndur Þráinn Lárusson Orðið karrí er almennt notað á Vest- urlöndum sem samheiti yfir tegundir kryddblandna sem eiga rætur sínar að rekja til ákveðinnar matargerðar á Indlandi. Það eru Bretar sem eiga heiðurinn af karríkryddblöndum, en meðan þeir réðu ríkjum á Indlandi hrifust þeir mjög af þessari tegund matargerðar. Gerð karrírétta getur verið nokkuð flókin, enda innihalda réttirnir oft marg- ar tegundir af kryddi, sem geta verið tuttugu talsins og sum nokkuð framandi. Því létu Bretar gera karr- íkryddblöndur til að auð- velda sér aðgang að þessum eftirsóknarverðu réttum. Kryddblöndur Orðið karrí eða kari kem- ur úr máli Tamíla á Suður- Indlandi og merkir sósa. Þótt karrí hafi skipað sér sess í matargerð um allan heim eru Indland og Tæ- land þau lönd þar sem karrí er í hvað mestum metum. Indverskt karrí er sam- heiti yfir íjölda rétta þar sem samspil hinna ýmsu krydda er í aðalhlutverki. Þótt nánast öll krydd Indlands geti komið fyrir í karríi eru nokkur krydd algengari en önnur og má þar nefna engifer, kóríander, eldpaprikur, svart- an pipar, kúmen og síðast en ekki síst túrmerík, sem oft er notað til að gefa karrígulan lit. Innihald réttanna gef- ur verið mjög breytilegt, enda fer það eftir hráefni, einstaklingum, land- svæðum og jafnvel trúmálum, hvaða krydd eru notuð. Ekki endilega sterkt Mikils misskilnings gætir oft með- al fólks á Vesturlöndum um að ind- verskt karrí sé voðalega bragðmikið, en svo þarf ekki að vera. Indverskt karrí getur verið mjög milt en að sjálf- sögðu líka sterkt og meira að segja mjög sterkt. Yfirleitt eru réttir frá Suður-Ind- landi mun bragðsterkari en réttir frá Norður-Indlandi. Madras er höfuð- borg Tamíla á Suður-Indlandi og eru Madras-karrí oft mjög sterk. Styrk- ur karrírétta fer að mestu eftir því hversu mikið af eldpapriku er notað. Tælenskt karrý Tælenskt karrí er mjög frábrugð- ið indversku karrí hvað varðar innihald og að- ferð. Þótt tælenskt karrí innihaldi skiljanlega oft krydd sem eru uppistað- an £ indverskum karr- íréttum, meðal annars kóríander, kúmen og að sjálfsögðu eldpaprik- ur, eru aðrar kryddteg- undir mjög ráðandi hjá Tælendingum. Má þar nefna galangal, sítrónu- gras, kaffír-læmu hýði og stjörnuanís. Hvað varðar lögun karrírétta eru Tælend- ingar einnig mjög frá- brugðnir Indverjum en þeir nota fyrirframlag- aða karríblöndu. Hún inniheldur nær undan- tekningalaust rækju- mauk, sem gerir blönduna að leðju eða mauki, enda eru tælenskar karr- íblöndur kallaðar karrímauk. Ólíkt indverskum karríréttum þurfa tælenskir karríréttir mjög stutta eldun, eða aðeins nokkrar mín- útur, en indverskt karrí getur tekið klukkustundir í undirbúningi og eldun. Tælensk karrí eru líka mun þynnri og líkjast einna helst súpum. Þau eru nánast undantekningalaust mjög bragðsterk. Algeng tælensk karrí eru grænt karrí, rautt karrí, gult karrí, massa- MAN-karrí og PANANG-karrí, svo ein- hver séu nefnd. Tilbúin tælensk karr- ímauk eru fáanleg í sérverslunum með kryddvörur. M-------- Indverskt karrí er samheiti yfir fjölda rétta þar sem sam- spil hinna ýmsu krydda er í aðalhlut- verki. © Mazda 3 0,32:03 fullkominn ferðafélagi Mazda3, 4 dyra sedan, l'>6 I Mazda erjapanskur bfll, framleiddur í Japan sem vermir nú toppsætið samkvæmt stærstu gæðakönnun Evrópu og skarar fram úr hvað varðar endingu og lóga bilanatfðni. Komdu,reynsluaktu og gerðu verðsamanburð. Gæðin eru augljós. Opið fró kl. 9-18 alla virka daga RÆSIR HF Skúlagötu 59, sími 540 5400 www.raesir.is Söluumboð: Bíléssf., flkranesi - BSfl, flkureyri Betri bílasalan, Selfossi - SG Bílar, Reykjanesbæ

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.