blaðið

Ulloq

blaðið - 27.06.2005, Qupperneq 18

blaðið - 27.06.2005, Qupperneq 18
18 garöar mánudagur, 27. júní 2005 I blaðið þess að ég sé með einhver formleg mæligögn sem sýna slíka hluti.“ í fyrra hurfu geitungamir eins og dögg fyrir sólu og í fyrsta sinn komu upp tvær kynslóðir þeirra á sama sumri. Margir hafa velt fyrir sér ástæðum hvarfsins og reynt að segja fyrir um áhrif þess á vistkerfíð. „Við eigum nú alveg eftir að sjá hvað gerist með geitungana því þeirra tími er fyrst og ffernst í ágúst. Auðvitað spilar þetta allt saman því við erum jú í einu stóru vistkerfi. T.d. er maðkur mikið á ferðinni núna,“ segir Eva og strýkur hendinni yfir út- étið laufblað - eitt af mörgum. „Þetta var ekki í fyrra því maðkastofninn var ekki það stór að hann næði að valda teljanlegum skemmdum á gróðri. Þetta er þó eitthvað sem við Að lifa með höfuðskepnunum Grasagarðurinn í Laugardal er eitt stærsta og víðfeðmasta safn á íslandi en í honum eru um 5.000 plöntuteg- undir og hann er 2,5 hektarar. Hann var stofnaður árið 1961 og hefur þann tilgang að varðveita plöntur. í honum eru níu plöntusöfn. í steinhæðinni, við aðalinngang Grasagarðsins, eru fjallaplöntur ffá öllum heimsálfum sem vaxa í skjóli stórra steina. „Stór meiri hluti Grasagarðsins eru erlendar plöntur," segir Eva G. Þorvaldsdóttir, grasafræðingur og for- stöðumaðurGrasagarðsins. „Eittsafn- ið er flóra íslands en stærstur hluti af safninu eru erlendar plöntur.“ Við stöndum við aðalinngang safns- ins og ffam undan, í miðju þess, sjást Að gæta vistkerfis Reykjavíkurborg rekur garðinn og þar starfa sjö fastráðnir starfsmenn allt árið. „Á sumrin fáum við síðan 10-15 ungmenni til að hjálpa okkur að halda þessu við því það er gríðar- leg vinna sem fer í þetta," segir Eva, sem var sjálf í óðaönn við mokstur þegar blaðamann bar að garði. „Starf- ftrxfei((<(/• fy HELLUSTEYPA JVJ VAGNHÖFÐA 17 SÍMI 587 2222 „Brynnir“ eftir Rúrí. Úr honum kemur ferskt íslenskt vatn. Verkið er umlukið jarð- skjálftanemum þannig að þegar fólk gengur fram hjá fer svalandi vatnsbuna af stað. tvö áberandi listaverk eftir listak- onuna Rúrí. Á vinstri hönd er opið víðlendi sem minnir helst á enskan landslagsgarð. Austan við inngang- inn liggja stígar inn í skuggsælt ijóð- ur, sem vekur, að sögn Evu, jafnan forvitni flestra - að kanna óvissuna. Eva segist ekki eiga neina uppá- haldsplöntu, það fari eftir árstíma, skaplund og vinnu en allar plöntum- ar þurfa aðhlynningu. „Við erum að glíma við svo margþætt vandamál því við söfnum plöntunum undir berum himni. Síðan kemur svona einkenni- legt sumar eins og núna þar sem er afskaplega þurrt. Það þýðir að plönt- ur sem hafa áður lifað við hinar bestu aðstæður eru nú uppþomaðar. Við er- um því alltaf að glíma við náttúmöfl- in - þetta eru jú lifandi safngripir.“ inu er ekki lokið þegar við höfum að gróðursett plöntuna heldur þurfum við líka að merkja hana og síðan þurf- um við að skrá hvert einasta eintak í tölvu. Allar skráningar fara fram í sérstöku skráningarforriti sem hef- ur að geyma allar upplýsingar um hveija einustu plöntu - hvaðan hún kom, hvar henni var safnað og ef ein- hver hefur gefið hana, þá hver. Auk þess skráum við dánarorsakir þeirra, séu þær ljósar." Hafið þið áhyggjur af því að þær erlendu plöntur, sem þið safnið hér í garðinn, dreifi sér út fyrir hann og hafi þannig óæskileg áhrif á vistkerf- ið? „Vissulega þurfa þeir sem starfa í grasagörðum alltaf að hafa þetta í huga - og það er skylda okkar. Við störfum eins og aðrir grasagarðar í heiminum og emm með ákveðinn sátt- mála okkar á milli. Við fáum t.d. fræ frá öðrum grasagörðum, fræ sem við megum eingöngu nota til varðveislu, rannsókna og fræðslu. Við megum ekki gefa þau eða dreifa þeim. Þess- ar vinnureglur em byggðar á reynslu því það hefur komið ýmislegt í grasa- garða víða um heim sem er óæski- legt. Auðvitað, og sem betur fer, em hér plöntur í stómm meirihluta sem við þurfum ekki að hafa áhyggjur af - en okkur ber þó skylda til að vera stöðugt á varðbergi gagnvart þessum vanda.“ Allir velkomnir „Garðurinn er að sjálfsögðu opinn almenningi," segir Eva og bætir því við að það þurfi ekki sérfræðing til að njóta garðsins. „Við skipuleggjum sumardagskrá fyrir almenning, sem er öll ókeypis. Við leggjum áherslu á fræðslu um þær plöntur sem í garð- inum eru. Við emm einnig með tón- leikahald og fuglaskoðun og endum allar okkar fræðsluferðir á því að bjóða upp ó jurtate, unnið úr piparm- intu sem við ræktum héma í garðin- um. Við eram einnig að byija með námskeið í september til kenna fólki að rækta mat- og kryddjurtir heima hjá sér. í byrjun september verður svo uppskemhátíð í nytjajurtagarð- inum.“ í norðausturhluta garðsins er svæði sem er notað undir sáningu. Þar em ræktuð lítil blómaengi frá Svíþjóð, hvít- og rauðsmáratún sem hægt er að nota í staðinn fyrir gras. Þar vaxa einnig bygg og hafrar og margar tegundir af grasi. „Þetta er til að sýna fólki hvað margt er hægt að gera við íslenskar aðstæður," segir Eva. í nytjajurtagarðinum er almenn- ingi kennt hvemig hægt er, á litlu svæði, að rækta ógrynni nytjajurta til einkaneyslu en þar em lítil beð full af salati, kóli og kryddjurtum, sem all- ir geta ræktað í eigin garði sé viljinn fyrir hendi. Hitinn og vistkerfið Hafið þið tekið eftir áhrifum lofts- lags- og hitastigsbreytinga á plöntu- lífið hér í garðinum? „Nei, þær em ekki það miklar enn sem komið er. Hlýnunin þyrfti að standa yfir í einhver ár. Síðustu fimm árin finnst mér þó hafa verið heitara, sérstaklega því ég sé meiri blómgun í plöntum. Eg get því aðeins greint þessar loftslagsbreytingar á þeim án „Fyssa“ eftir Rúrí - táknar ísland og sýn- ir nákvæmlega sömu sprungustefnu og er í jarðskorpunni. ræktunarfólk þurfum að lifa við - það eru ávallt miklar breytingar milli ára og það er ekki óeðlilegt að stofn geit- unga, sem em ný landnemadýr, breyt- ist á milli tímabila." Eva segir það stefnu Grasagarðsins að nota eins lítið af eitri eða plöntu- vamarefni og hugsast getur. „í garðskálanum, þar sem við er- um með erlendar plöntur sem þrífast ekki utandyra, búum við í rauninni til kjörloftslag fyrir þær en sköpum jafnframt umhverfi fyrir aðrar lífver- ur, t.d. lýs, ranabjöllur og ýmis mein- dýr. Fyrir fjórum árum tókum við þá steínu að hætta að nota plöntuvamar- efni og flytjum þess í stað inn dýr til þess að vinna á þessum meindýrum. Stefnan hjá okkur er því sú að halda niðri meindýrastofninum því við get- pm aldrei útrýmt þessum dýmm heldur verðum við að sætta okkur við þau. Við höldum þeim því niðri með nytjadýrunum, auk þess sem við not- um lífræna sápu.“ Grasagarðurinn vinnur í samstarfi við Náttúmfræðistofnun og Lysti- garð Akureyrar að vemdun íslenskra plantna sem eru á válista, en þær eru nú 54 talsins. Flestir kannast við blóðbergið en í Grasa- garöinum vaxa hlið við hlið tvö afbrigði, hið hefðbundna sem skartar rauðum blómum og albinóa-afbrigði sem nefnist hvítblómablóðberg.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.