blaðið - 27.06.2005, Qupperneq 23
ann<
VC m ir\eKnncrr
v ,-.n»
. ^
ÍA steinlá á
Skaganum
ÍA eru úr
leik í Inter-
toto-keppninni eftir skelfilega útreið
á Akranesvelli í gær. Ólafur Þórð-
arson neyddist til að stilla upp hálf-
gerðu varaliði þar sem margir leik-
menn voru tæpir vegna meiðsla og
meðal annars sátu Dean Martin og
Gunnlaugur Jónsson á tréverkinu.
Skagamenn byrjuðu leikinn þó af
miklum krafti en tókst ekki að skapa
sér afgerandi marktækifæri. Botn-
inn datt nánast úr leik Skagamanna
eftir að Inter Turku komst yfir á 25.
mínútu með þrumuskoti. Hvorugt lið-
ið sýndi neina snilldartakta það sem
eftir lifði fyrri hálfleiksins og staðan
í leikhléi 0-1 fyrir finnska liðinu. Eft-
ir að gestirnir komust svo í 0-2 á 65.
mínútu hættu Skagamenn gjörsam-
lega að hafa trú á því að þeir gætu
komist áfram. Andleysið var algjört
og greinilega ekki mikill áhugi fyrir
því að fara alla leið til Króatíu í aðra
umferðina, sem væri ansi dýrt ferða-
lag fyrir fjárhagssvelta Skagamenn.
Finnarnir voru mun líklegri í síð-
ari hálfleiknum, bættu við tveimur
mörkum og fengu auk þess fleiri færi
til að skora. ÍA mætir IBV á miðviku-
daginn og er líklegt að vegna erfiðr-
ar stöðu í deildinni hafi Skagamenn
hreinlega ákveðið að einbeita sér að
Landsbankadeildinni í stað þess að
leggja ofuráherslu á Intertoto-keppn-
Bistro garðhúsgagnasett Borð og tveir stólar kr. 12.900,- Oxford garðhúsgagnasett. Borð og fjórir stólar kr. 18.900.-
Windsor garðhúsgagnasett Borð og sex stólar kr. 59.900,- London garðhúsgagnasett Borð og fjórir stólar kr. 118.900,-
Stórleikur |,kvöld:KR
“ISLANDS MALNING
TEKNOS
í kvöld mætast Valur og KR í sann-
kölluðum stórleik að Hlíðarenda
klukkan 20:00. Valsmenn hafa tap-
að tveimur leikjum í röð eftir góða
byrjun í mótinu en þeir þurfa nauð-
synlega að koma sér aftur á skrið
til að missa FH ekki of langt fram
úr sér í baráttunni um íslandsmeist-
aratitilinn. KR vann Þrótt í síðustu
umferð og er það mikið gleðiefni fyrir
þá að Grétar Ólafur Hjartarson virð-
ist hafa fundið §ölina en hann er nú
búinn að skora f tveimur leikjum í
röð, gegn Þrótti og Leikni, í VISA bik-
arnum. Leikurinn verður án efa æsi-
spennandi, enda bæði lið vel mönnuð
og ætla sér sigur í þessum mikilvæga
leik. Willum Þór Þórsson fær þarna
sína gömlu lærisveina í heimsókn en
hann tók við Val fyrir tímabilið eftir
að hann fór frá KR.
“Skrýtin tilfinning”
Guðmundur Benediktsson kom líkt og
Willum frá KR fyrir tímabilið og hefur
verið einn besti leikmaður liðsins og
lagt upp sæg af mörkum. Guðmundur
er kominn í hörku form eftir að hafa
átt í nokkrum erfiðleikum vegna
meiðsla en hefur sýnt það og sannað
að hann er meðal bestu leikmanna
Landsbankadeildarinnar. “Leikurinn
leggst mjög vel í mig og þetta
verður örugglega mjög skemmtilegt
verkefni” sagðu Guðmundur þegar
Blaðið hafði samband við hann í gær.
Eins go áður sagði hafa Valsmenn
tapað tveimur leikjum í röð, fyrir
FH og svo gegn ÍBV í Eyjum. “Já við
stefnum auðvitað á að rífa okkur upp
eftir þetta. Við eigum heimaleik og
spiluðum eins og asnar úti í Eyjum
þannig að við ætlum að rífa okkur
upp. En er tilhlökkum í Guðmundi að
spila gegn sínum gömlu félögum? “Já
og nei. Þetta veðrur svolítið skrýtin
tilfinning. Ég spilaði auðvitað með
KR í einhver 10 og það verður eflaust
skrýtin tilfinning að mæta þeim á
vellinum á morgun.”
Fimm úr leikmannahópum Vals og
KR hafa leikið með báðum félögum
í efstu deild. Ágúst Þór Gylfason og
Gunnar Einarsson leika með KR en
Árni Ingi Pjetursson, Guðmundur
Benediktsson og Sigþór Júlíusson
með Val. Sextán aðrir leikmenn
hafa leikið með báðum félögum í
efstu deild: Arnar Arnarson, Atli
Eðvaldsson, Besim Haxhiajdini,
Eiður Smári Guðjohnsen, Einar Örn
Birgisson, Guðmundur Hreiðarsson,
Hálfdán Örlygsson, Izudin Daði
Dervic, James Bett, Salih
Heimir Porca, Stefán
Arnarson, Steinar Dagur
Adolfsson, Vilhjálmur Ragnar
Vilhjálmsson, Þorfinnur
Hjaltason, Þórhallur
Örn Hinriksson og Örn
Guðmundsson. Fjórir hafa
þjálfað bæði félög í efstu deild:
Willum Þór Þórsson, Ian Ross
og bræðurnir Guðbjörn og Óli
B. Jónssynir.
Fagna Valsmenn i kvöld?
Woodex vörurnar.Woodex viðarvarnarolía glær og græn (pallar).Woodex hálfþekjandi viðarvörn (allir litir).
Woodex þekjandi viðarvarnarmálning (allir litir).Tilboð á innimálningu gljástig 3,7,12,20 frá kr. 299.- líterinn.
Teknos útimálning, 50% þurrefnisinnihald, tilboð á 20 lítrum.Teknos þakmálning, slitsterk og veðurþolin, tilboð á 20 lítmm.
Fagleg ráðgjöf Gæðastöðluð málning Góð þekja.
afsláttur
af öllum málningarvörum
v