blaðið - 27.06.2005, Síða 24
mánudagur, 27. júní 2005 I blaðið
Björgólfar fornaldar í útrás
og alþjóðavæðingu
Saga norræna manna á Grænlandi á bók
.
Kirkjurústirnar í Hvalsey bera menningarstraumum sunnan úr álfu glöggt vitni.
Sögufélagið hefur gefið út bókina „Á
hjara veraldar, sögu norænna manna
á Grænlandi" eftir Guðmund J. Guð-
mundsson sagnfræðing. Bókin er
einkar handhægt og læsilegt yfirlits-
rit um sögu norrænu miðaldabyggðar-
innar á Grænlandi, allt frá landnámi
Eiríks rauða um árið 1000, þar til nor-
rænu byggðirnar eyddust einhvem
tíma eftir miðja 15. öld. „Ég vildi
ekki hafa bókina of langa því hún á
að vera aðgengilegt yfirlit," segir Guð-
mundur. „Eins vildi ég hafa hana í
handhægu broti svo menn gætu haft
hana með í farteskinu ef þeir skyldu
vilja bregða sér yfir til Grænlands, en
ferðir þangað hafa sjálfsagt aldrei ver-
ið auðveldari."
Víða leitað fanga
í bókinni er leitað fanga í rannsókn-
um og kenningum vísindamanna í
fjölmörgum fræðigreinum, svo sem
sagnfræði, bókmenntafræði, fornleifa-
fræði og ýmsum greinum náttúruvís-
inda. Gerð er grein fyrir húsakosti
Grænlendinga, atvinnulífi þeirra,
landbúnaði og veiðum, svo og verslun-
arsamskiptum þeirra við Evrópu og
tengslum við frumbyggja Ameríku.
„Ég tek undir kenningar Helga
Guðmundssonar um hvemig versl-
un með rostungstennur og náhvals-
tennur, sem menn suður í álfú töldu
vera einhymingshorn, hafi verið
dijúg auðlind fyrir Grænlendinga,
en ekki síður íslendinga sem vom
milligöngumenn í Grænlandsverslun-
inni. Þar er fundin ein ástæða fyrir
búsetu manna þarna þótt kostur hafi
að flestu leyti öðm verið þröngur."
Guðmundur segir að þessi Grænland-
svamingur hafi verið afar eftirsótt-
ur og þannig hafi Noregskonungur
jafnan haft forkaupsrétt á honum.
„Hann nýtti hann og notaði mikið í
gjafir til annarra þjóðhöfðingja, enda
um konungsgersemar að ræða,“ segir
Guðmundur. „Alþjóðavæðingin og út-
rásin er þannig ekki jafnný af nálinni
eins sumir virðast halda. Þetta vom
Björgólfar fornaldar."
Endalok samfélags
í síðasta hluta bókarinnar em
svo reifaðar nokkrar af þeim tilgát-
um fræðimanna sem komið hafa
fram um endalok þessa sérstæða og
áhugaverða samfélags. „Það virðist
ekki vera hægt að færa nein rök fyr-
ir þessum skrautlegri kenningum
um hvemig byggðin lognaðist út af,“
segir Guðmundur, en menn hafa sett
fram tilgátur um stríð við skrælingja,
úrkynjun, drepsóttir og fleira. „Það
er einfaldlega sennilegast að menn
hafi bmgðið búi þegar hallærið tók
engan enda svo ámm skipti og sjálf-
sagt hafa menn haldið aftur til ís-
lands, þar sem var töluvert jarðnæði
á lausu í kjölfar mannskæðra sótta."
,Á hjara veraldar“ er fyrsta heftið
í nýrri ritröð Sögufélags. Ritröðin hef-
ur hlotið heitið „Smárit Sögufélags“.
Þar er ætlunin að birta verk af marg-
víslegum toga, frumsamin rit, alþýð-
legar textaútgáfur og þýðingar.
Sverðberinn
seldur til
Danmerkur
og Noregs
S verðberinn, unglingasaga Ragnheið-
ar Gestsdóttur, var í vikunni seld
til Danmerkur og Noregs. Ragnheið-
ur hlaut sem kunnugt er Norrænu
bamabókaverðlaunin 2005 fyrir bók-
ina og höfundarverk sitt. Hún veitir
verðlaununum viðtöku næstkomandi
miðvikudag, 29. júní.
Það var danska forlagið Sesam
sem tryggði sér útgáfuréttinn þar í
landi, en þeir eru hluti af Aschehoug
Dansk Forlag. í Noregi mun Sverð-
berinn koma út hjá N.W. Damm &
Spn AS. Forlagið mun á næstu dög-
um einnig gefa út Njálu eftir Bryn-
hildi Þórarinsdóttur og Margréti E.
Laxness, sem kom út hjá Máli og
menningu 2002.
Karl Marx. Er í fyrsta sæti í kosningu um mesta heimspeking sögunnar.
Karl Marx
í fyrsta sæti
Breska útvarpið BBC stendur þessa
dagana fyrir kosningu meöal hlust-
enda sinna um mesta heimspeking
sögunnar. Úrslit verða tilkynnt eftir
rúma viku en eins og staðan er núna
bendir allt til að Karl Marx vinni
kosninguna. Wittgenstein er í öðm
sæti, Hume í því þriðja og þar á eftir
koma Plató og Kant.
Höfundur nýrrar ævisögu Marx,
Francis Wheen, segist fagna fari svo
að Marx sigri. „Hann var fjölhæfari
en aðrir sem em á listanum," segir
Wheen um höfund Kommúnista-
ávarpsins. Ekki em allir á sama máli
og benda á að kommúnisminn hafi
nokkum veginn sungið sitt síðasta,
nema í löndum eins og Kúbu og Norð-
ur-Kóreu.
Sumir halda því fram að Marx hafi
ekki verið heimspekingur. „Fólk kýs
hann vegna þess að það sér hann
sem gamlan mann með hvítt skegg
og í huga þeirra lítur hann út eins
og heimspekingur," segir breskur pró-
fessor í endurreisnartímabilinu.
Melvyn Bragg, umsjónarmaður
útvarpsþáttarins, In Our Time, sem
stendur fyrir kosningunni, furðar sig
á forystu Marx. Hann segist sjálfur
kjósa Kant.
Sumartónleikar
í Skálholtskirkju
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
hefja 31. starfsár sitt laugardaginn
2. júlí kl. 14. Efnisskrá hátíðarinnar
verður að mestu leyti byggð á bar-
okk- og samtímatónlist.
Staðartónskáld í sumar verða
fimm talsins: Jórunn Viðar, Anna
S. Þorvaldsdóttir, Gunnar A. Krist-
insson, Hugi Guðmundsson og Þóra
Marteinsdóttir en fjögur síðasttöldu
eru öll af yngstu kynslóð tónskálda.
Sönghópurinn Hljómeyki flytur dag-
skrá með verkum Jórunnar Viðar
aðra tónleikahelgi, 9. júlí.
Þá munu flytjendur allra tónleika-
helga sumarsins frumflytja stólvers
(alls fimm talsins) byggð á sálmum
íslenskra 17. aldar skálda. Lögin við
sálmana eru sótt úr íslenskum hand-
ritum og verða útfærð af ungu tón-
skáldunum en einnig verða frumflutt
eftir þau ný verk fyrir sellóoktett síð-
ustu tónleikahelgi Sumartónleika.
Sumar Boccherinis
ítalska tónskáldið Luigi Boccherini
verður áberandi á efnisskrám sum-
arsins en á þessu ári eru 200 ár liðin
frá því hann lést. Fjórðu og fimmtu
tónleikahelgi (29. júlí-1. ágúst og 6.-
7. ágúst) verða flutt ýmis sjaldheyrð
verk eftir hann.
Fyrirlestrar fara fram í Skálholts-
skóla kl. 14 alla laugardaga meðan á
Sumartónleikum stendur og tengjast
tónleikum dagsins.
Boccherini. Verður áberandi á efnisskrá
sumartónleika í Skálholti.
Tónlistarsmiðja unga fólksins
í sumar verður í fyrsta sinn boðið
upp á tónlistarsmiðju unga fólksins.
Þær Þórdís Heiða Kristjánsdóttir og
Hildur Guðný Þórhallsdóttir munu
leiðbeina bömum í skapandi tónlist-
arvinnu hvern laugardag meðan á
Sumartónleikum stendur, frá kl.
14.55 þar til seinni tónleikum lýkur.
Tónlistarsmiðjan ætti að vekja áhuga
yngri kynslóðarinnar á að slást með í
fór á Sumartónleika í Skálholtskirkju
'og glíma við spennandi verkefni við
sitt hæfi.
Sem fyrr er ókeypis aðgangur að
öllum tónleikum og fyrirlestrum á
sumartónleikum í Skálholtskirkju. ■
Fræðimenn
í Húsi Jóns
Ellefu fræðimenn fá afnot af fræði-
mannsíbúð í Húsi Jóns Sigurðsson-
ar í Kaupmannahöfn á komandi
vetri. Bergljót S. Kristjánsdóttir
fær afnot af íbúðinni en hún er að
rannsaka Gerplu og dróttkvæðar-
vísur, Dagný Kristjánsdóttir til
að rannsaka einkenni barnabóka,
Gunnlaugur A. Jónsson til að kanna
upphaf sögulegra biblíurannsókna á
íslandi 1890-1920, í ljósi danskra og
skandinavískra áhrifa, Halldór Guð-
mundsson til að undirbúa rit um líf
tveggja skálda, Gunnars Gunnarsson-
ar og Þorbergs Þórðarsonar. Halldóra
Jónsdóttir fær íbúðina til að vinna við
íslensk-danska skólaorðabók, Hrafn-
hildur Schram til að kanna verk Júlí-
önu Sveinsdóttur listmálara, Krist-
ján Jóhann Jónsson til að afla efnis í
rit um Grím Thomsen — þjóðskáld og
heimsborgara, Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir til að rannsaka ævi og
störf Ólafíu Jóhannsdóttur, Sigríður
Matthíasdóttir til að rannsaka gögn
um þjóðernishugmyndir Jóns Aðils
sagnfræðings, Þorleifur Hauksson
til að undirbúa útgáfu Sverrissögu
og að lokum Þorsteinn Helgason til
að rannsaka gögn um Tyrkjaránið.
Fræðimennimir munu dvelja tíma-
bundið í íbúðinni á tímabilinu frá 1.
september 2005 til 31. ágúst 2006. í
úthlutunarnefndinni eiga sæti Hall-
dór Blöndal, forseti Alþingis, Þor-
steinn Pálsson, sendiherra Islands í
Kaupmannahöfn, og dr. Jakob Yngva-
son prófessor.
Oktett
Ragnheiðar Gröndal
Garðbæingar og aðrir íbúar í ná-
grannasveitarfélögum geta tekið frá
miðvikudagskvöldið 29. júní nk. en
þá verða haldnir djasstónleikar á
Garðatorgi í Garðabæ. Þar leitur Ok-
tett Ragnheiðar Gröndal söngkonu
sígildar djassperlur og blús í nýjum
útsetningum eftir Hauk Gröndal.
Hljómsveitina skipar úrval íslenskra
djassleikara en það em þeir Haukur
Gröndal á altósaxófón og klarínett,
Jóel Pálsson á tenórsaxófón, Ólafur
Jónsson á tenórsaxófón, Sigurður
Flosason á barítónsaxófón og þver-
flautu og Ásgeir Ásgeirsson á gítar.
Á kontrabassa leikur hinn kanadíski
Graig Earle og Svíinn Erik Qvick leik-
ur á trommur. Sveitin mun í júlíbyij-
un koma fram á „Copenhagen Jazz
Festival", auk þess að spila á nokkr-
um vel völdum stöðum á íslandi.
Einnig er áætlað að gera upptökur
með útgáfu í huga síðar. Tónleikarn-
ir heíjast klukkan níu en þeir eru
haldnir í samstarfi við menningar- og
safnanefnd Garðabæjar. Aðgangur er
ókeypis.