blaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 30
mánudacjútV27': júní 2005 1 blaðið
'VfXATu ...
Kostnaður íhaldssemi
Allir menn eru í eðli sínu íhalds-
samir og forðast þannig breyting-
ar. Það er sama hvert farið er og
hvað er skoðað - alls staðar finnast
dæmi um slíkt. Sérstaklega á þetta
við ef mögulegar breytingar hafa
á einn eða annan hátt neikvæð
áhrif okkur sjálf. Við forðumst að
taka ákvarðanir sem hafa neikvæð
áhrif á stöðu okkar, eða hafa þær
afleiðingar að við missum eitthvað
sem við höfðum áður. Við forðumst
ennfremur að taka ákvarðanir
sem gætu haft neikvæð áhrif fyrir
okkar hönd í framtíðinni. Dæmi
um slíkt er að afar fátítt er að
fólk breyti til og skipti um vinnu,
vitandi að það hafi í fór með sér
launalækkun - og eða meiri vinnu.
Við höldum í okkar - oft blindandi
- teljum okkur hafa unnið of lengi
og of harðvítuglega fyrir þvi sem
við teljum okkar.
Elliheimili stjórnmálamann-
anna
Vandinn er að þetta á ekki bara
við hinar daglegu ákvarðanir sem
hinn almenni borgari tekur. Þetta
á einnig við um þá einstaklinga
- sem augljóslega eru mannlegir
- sem stjóma þessu landi. Dæmi
um að þessir einstaklingar láti
ekki auðveldlega af hendi það sem
þeir hafa náð til sín eru fjölmörg.
Það tók til dæmis óratíma að fá
samþykki fyrir sölu hankanna.
Kannski ekki vegna þess að stjóm-
málamenn og almenningur væm
harðir á því að ríkið ætti að standa
í bankarekstri. Nei, ástæðumar
em því miður líklega mun frekar
að leita í þeirri einföldu ástæðu að
„eftirlaunakerfi" þingmanna lá inn-
an bankanna - þegar stjórnmála-
maður datt út af þingi - eða hrein-
lega nennti ekki lengur að standa í
þessu stappi - þá átti hann ömgga
leið inn í einhvern ríkisbankann.
Líkumar á þægilegri innivinnu
vom ákaflega góðar. Það lítur út
fyrir að stjómmálamenn hafi ekki
getað hugsað sér að sleppa hend-
inni af bönkunum fyrr en í ljós var
komið að þeir gátu tryggt að þeir
gætu valið þá sem myndu kaupa
- með öðmm orðum - þeir gætu
selt sér þóknanlegum mönnum
þá. Þeirra hagur var hvort eð er
tryggður innan utanríkisþjónust-
unnar, sem nú hefur tekið við sem
elliheimili fyrir gamla stjómmála-
Ekki sama Jón og séra Jón
Annað slíkt dæmi er að hér á landi
hefur aldrei verið svo mikið sem
rætt um að setja skatt á dagpen-
ingagreiðslur. Á sama tíma em
hins vegar svokölluð fæðishlunn-
indi skattlögð. Fyrir þá sem þekkja
ekki muninn er rétt að upplýsa að
fæðispeningar em þegar einstak-
lingur, sem vinnur fjarri heimili
sínu-yfirleittalmennurverkamað-
ur - fær útvegað fæði, þarf hann
að greiða skatt af slíku. Þegar
einstaklingur er hins vegar á dag-
peningum - sem er í raun nákvæm-
lega sami hluturinn, nema hvað
dagpeninga þiggja yfirleitt stjóm-
endur og hærra settir ríkisstarfs-
menn (svo sem alþingismenn) og
dagpeningar era hins vegar ekki
skattlagðir. Það er erfitt að finna
raunvemlegan eðlismun á þessum
tveimur hlutum - nema í þeirri
staðreynd að mismunandi hópar
þiggja þessar greiðslur.
Ekki sama hvað er keypt
Það mætti kannski ganga svo langt
að benda á að kaup á eiturlyfjum
hér á landi - sem og víða um heim
- era ólögleg. Kaup á vændi era
það hins vegar ekld - en líklega
er einfaldlega ósmekklegt að setja
þær vangaveltur fram.
Of grannar stjörn
ur í Hollywood
Söngkonan Dido segir að það sé aug-
ljóslega í tísku í Hollywood að vera of
grannur og hún gagnrýnir hve grann-
ar sumar stjömur em. Dido hefur
áhyggjur af því að grannar stjömur
séu fyrimiynd fjölda ungra stúlkna.
Dido segir einnig að stúlkur megi
ekki svelta sig til að líta vef út og að
hún muni alls ekki nota líkama sinn
til að selja plötur - ekki það að hún
þurfi þess. „Ef þessar stjömur vilja
svelta sig þá er það þeirra val en ég
fíla það ekki og það er ekki gott for-
dæmi fyrir unglingsstúlkur sem auð-
velt er að hafa áhrif á.“ Stjaman vina-
lega segist verða niðurdregin ef hún
borði ekki. „Ég dýrka mat of mikið.
Ég reyni alltaf að láta fólk einbeita
sér að tónlist minni, þess vegna geng
ég ekki um í brjóstahaldara og þokka-
fullum stuttbuxum."
Oprah Winfrey verður
fyrir kynþáttafordómum
Opruh Winfrey var vísað frá er hún
reyndi að versla í Hermes í París. Ga-
yle King, vinur Opmh sagði: J>að var
fólk í versluninni að versla. Oprah var
við innganginn en var ekki hleypt inn
í búðina." Sjálf segir Oprah að þetta
hafi verið mjög niðurlægjandi stund
og að hún versli aðeins þar sem fólk
meti viðskipti hennar og Hermes sé
augljóslega ekki ein þeirra verslana.
Versluninni hafði reyndar verið lokað
en það em yfirleitt gerðar undantekn-
ingar fyrir stórstjömur. Talsmenn
Hermes hafa sent út tilkynningu og
afsökunarbeiðni þar sem fram kemur
að Hermes iðrist sárlega að hafa vís-
að Opruh frá. Talsmaður Harpo, fram-
leiðslufyrirtækis Opmh, talaði um
að Oprah hyggðist ræða þetta atvik
í nýjustu þáttaröð sinni, sem verður
tekin til sýningar í september. Tals-
maður kallaði atvikið „Crash", sem
er tilvísun í myndina Crash sem tek-
ur á kynþáttafordómum. Óstaðfestar
heimildir herma að Oprah hafi ekki
verið hleypt inn vegna þess að „þeir
höfðu átt í vandræðum með blökku-
menn undanfarið." Þar sem Oprah
var ógreidd þekktu starfsmennimir
hana ekki.
Erfið ákvörðun að
skilja við Charlie
Denise Richards segir að ákvörð-
un hennar um að skilja við Charlie
Sheen hafi verið erfiðasta ákvörðun
sem hún hafi tekið. „Ég bjóst aldrei
nokkum tímann við að ég yrði í þeirri
aðstöðu sem ég er í núna, en lífið er
eins og það er. Ég verð að gera það
besta úr því.“ Denise sótti um skiln-
að í mars eftir þriggja ára hjónaband.
Þrátt fyrir að hún gefi ekki upp ástæð-
ur sambandsslitanna tekur hún fram
að Charlie hafi verið viðstaddur fæð-
ingu Lolu, dóttur þeirra, sem fæddist
fyrir þremur vikum. Parið hefur einn-
ig sést saman við önnur tækifæri en
Denise hafnar því algjörlega að þau
séu að taka saman á ný. „Það kem-
ur oft fyrir að ég er ekki hugrökk en
heima fyrir þarf ég að einbeita mér
að tveimur stelpum. Ég verð að vera
hugrökk. Ég verð að annast þær, vera
hamingjusöm og halda jákvæðu við-
horfi. Það er mjög mikilvægt." Denise
mun leika í nýrri þáttaröð sem hefur
göngu sína vestra í haust og ber nafn-
ið „Sex, Lies & Secrets", en núna ætl-
ar hún einungis að einbeita sér að því
að vera góð móðir.
Hvað segja stjörnurnar
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
$ Vinnufélagar eru að biðja um aðstoð en í
dag er ekki dagur til að hliðra til fyrir aðra. Vertu
hjálpsamur seinna og einbeittu þér að þínum
verkefnum i dag.
V Það er óþarfi að vera alltaf að velta sér
upp úr peningaleysi. Þú getur skemmt þér vel
án peninga. _ ___________________
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
$ Byrjaðu vikuna á því að dekra við sjálfan
)ig. Taktu langt matarhlé og njóttu þín. Keyptu
)ér eitthvað fallegt eða hittu vin á góðu veitinga-
túsi. Mundu að vinnan er ekki líf þitt, settu sjalf-
an þig í fyrsta sæti.
V Sambandið er stór hluti af lífi þínu en þú
þarft líka tíma fyrir sjálfan þig. Náðu aftur sam-
bandi við þig. Þú ert þetri ástmaður ef þú þekkir
sjálfan þig.
®Hrútur
(21. mars-19. aprfl)
$ Varkárni þín kemur sér vel. Haltu því
áfram til að íorðast vandamál. Hugsaðu þig
tvisvar um áður en þú skrifar undir eitthvað.
V Hvað sem þú ert að gera þá virkar það.
Það Iftur allt þetur út. Ýmislegt gerist I dag en
það er ekkert sem þú hefðir getað gert til að
koma í veg fyrir það. Auk þess er það ekki þér
að kenna svo ekki hafa áhyggjur.
©Naut
(20. apríl-20. maQ
$ Það gæti virst æskilegt að segja engum
frá góðu hugmyndinni en stundum er betra að
vinna með einhverjum sem hugsar eins og þú.
Saman gætuð þiö skaþað eitthvað mikilfeng-
legt.
V Þú ert þrjóskur og vilt gera allt eftir þinu
höfði en það er ekkert gaman án félagsskaps.
Talaðu við vini þína, þú getur sannfært þá um að
vera með.
©Tvíburar
(21. maí-21. júmj
S Ef þú ert eirðarlaus þá er tilvalið að fara
að hugsa sér til hreyfings. (dag er ekki dagurinn
en einbeittu þér að framtíðinni.
V Rómantikin er í loftinu og þú hef-
ur gaman af lífinu. Passaðu þig þó á per-
sónu sem sýnir þér óvenju mikinn áhuga.
©Krabbi
(22. júní-22. júli)
S Ekki loka þig inni í allan dag. Farðu og
hittu fólk í eigin persónu. Það er frábær leið til
að eyða deginum. Göngutúr gerir kraftaverk.
V Ekki fara hefðbundnar leiðir í dag. Gerðu
eitthvað öðruvísi í ástarlifinu. Það er aldrei að
vita hvað kemur út úr þvl.
®Ljón
(23. júlí- 22. égúst)
S Það er kominn tími til að sleppa takinu
á einhverju ákveðnu verkefni. Með því að leyfa
öðrum að taka stjórnina ertu að sýna gott for-
dæmi. Vertu stoltur af því að sýna þann styrk
sem þarfnast til að deila ábyrgð.
V Ef eitthvað er of gott til að vera satt þá er
það sennilega raunin. Farðu varlega í tilfinninga-
málum og ef þú ert óviss þá skaltu ekki taka
afdrifarjkar ákvarðanir.
Meyja
W (23. ágúst-22. september)
S Það er lítið um að vera I vinnunni. Notaðu
tímann til að endurskipuleggja vinnuna. Heim-
sæktu viðskiptafélaga, samböndin verða að
vera tii staðar.
V Stundum verðið þið skötuhjúin að vera
sammála um að vera ósammála. Ekki gera úlf-
alda úr mýflugu. Virtu skoðanir ástvina þinna og
þeir munu virða þlnar.
Vog
(23. september-23. október)
S Ekki vera svo upptekinn I vinnunni að þú
gleymir að njóta félagsskaparins I vinnunni. Stutt-
ar samræður geta verið orkuríkar og skemmtileg-
ar.
V Það er alltof mikið að gera hjá þér til að þú
getir veitt einhverjum öðrum athygli. Bíddu þar til
það hægist I lífi þínu áður en þú ferö I nýtt samband.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
S Þú hefur náð mörgum af markmiðum þín-
um I vinnunni. Margir gamlir draumar hafa orðið
að veruleika. Nú er tími til að setja ný markmið
og finna nýja drauma.
V Sköpunargáfa þln er sterk I dag og því er
tími til að ýta undir rómantlkina með einhverju
sem aðeins þér gæti dottið I hug. Þú hefur svo
maraa leynda hæfileika sem þurfa að komast út
I sviðsljósið._____________________________
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
$ Skipulagið I vinnunni hefur farið I algjört
rugl eftir slðustu annasömu vikur. Nú skaltu
skipuleggja þig svo þú getir unnið vinnuna þína
betur.
V Þú hefur enga orku I dag svo þú skalt
gera sem minnst. Ekki vera reiður við þig vegna
þess. Þrátt fyrir að það llti út fyrir að vera leti að
liggja í sófanum þá ertu að hugsa heilmikið.
©Steingeit
(22. desember-19. janúar)
$ Enpinn gerir hlutina eins og þú og sköpun-
argleði þin er áberandi. Aðstoð við vinnufelaga
I nokkra tíma gæti reynst gagnleg til að heilla
yfirmenn.
V Sýndu þína listrænu hlið. Semdu Ijóð, mál-
aðu málverk eða búðu til smásögu. Gerðu allt
sem þú getur gert til að aögreina þig frá öðrum.