blaðið - 28.06.2005, Blaðsíða 29
bladiö I þriðjudagur, 28. júní 2005
Fjölmiðlar
Vígbúnaðarkapp-
hlaup í fjölmiðlum
andres.magnusson@vbl.is
Við þekkjum öll hvernig samkeppnin
er, hún blæs mönnum kapp í kinn og
hvetur þá til dáða.
En hún getur líka hvatt þá til
ódæða. Sumir hafa bent á hvernig víg-
búnaðarkapphlaup Kalda stríðsins
hafi öðlast sjálfstætt líf og gríðarleg-
ur kostnaður, beinn sem óbeinn, hafi
hlotist af kapphlaupinu sem aldrei
mátti hlaupa. Við þekkjum sjálfsagt
öll nærtækari dæmi um það hvernig
metingur leiðir menn á gönur og fórn-
arkostnaðurinn verður úr öllu sam-
hengi við mögulegan ávinning annan
en þann að geta sagst hafa gengið
lengra.
Fyrir skömmu hóf Baugur að gefa
út vikuritið Hér og nú, sem augljós-
lega er stefnt gegn Séð og heyrt, sem
Fróði gefur út. Hér og nú er allnokkru
ódýrara og er gefið út á lakari pappír,
en er við fyrstu sýn á svipuðum mið-
um. Ef við leggjum blöðin að jöfnu,
á þeirri forsendu að verð miðað við
gæði sé svipað, á hvaða grundvelli
keppa þá blöðin tvö?
Séð og heyrt hefur löngum gefið sig
út fyrir að veita innsýn í líf þekktari
borgara dvergríkisins, eilítið slúður-
kennt og hefur ekki alltaf farið nógu
varlega þegar um viðkvæm mál er
að ræða. Miðað við hvernig Hér og
nú fer af stað eru það þó hreinustu
smámunir. Þar virðist markmiðið
það að velta sér upp úr einkalífi fólks
og skeyta ekkert um tilfinningar eins
né neins. Kvað svo rammt að þessu
að ýmsir starfsmenn systurmiðla Hér
og nú hafa látið í sér heyra um þetta
— Sigmundur Ernir Rúnarsson í for-
ystugrein Fréttablaðsins og velflestir
dagskrárgerðarmenn Talstöðvarinn-
ar í sérstakri yfirlýsingu. Raunar
vakti athygli að Illugi Jökulsson, fyrr-
verandi ritstjóri DV, var ekki í þeim
hópi og maður efast um að DV-menn
myndu almennt treysta sér til þess
að áfellast Hér og nú fyrir'þessi efn-
istök.
En var við öðru að búast af Hér
og núl Gátu menn ekki sagt sér
það sjálfir að á nákvæmlega þenn-
an hátt myndi það sækja að Séð og
heyrtl Kenningar um samkeppni í
dýraríkinu og viðskiptum bjóða að í
vændum sé stórfenglegt vígbúnaðar-
kapphlaup miðlanna tveggja þar sem
sífellt verður gengið lengra og nær
einkalífi fólks. Það má efast um að
nokkur græði á því.
Það þarf þó ekki að fara þannig og
reyndar held ég að það fari ekki þann-
ig. Hér og nú er nefnilega að gera
sömu grundvallarmistök og DV hef-
ur gert síðan Baugur eignaðist það.
í hvert sinn sem lesendurnir opna
blöðin blasir við þeim verri heimur
en þeir þekkja af eigin raun og miklu
verri heimur en þeir vilja kynnast.
Haldi Séð og heyrt sig við einkunn-
arorð sín þá þarf það ekki að óttast
þessa slæmu samkeppni: Gerum lífið
skemmtilegra!
22.00 Tíufréttir 22.20 Rannsókn málsins VI (1:2) (Trial And Retribution, Ser. 6) Bresk sakamálamynd frá 2002 þar sem lögreglan fær til rannsóknar sérlega snú- ið sakamál. Leikstjóri er Ferdinand Fair- fax og meðal leikenda eru Kate Buffery, David Hayman, Jacqueline Tong og Tim Mclnnemy. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. Seinni hlutinn verður sýndur að viku liðinni. 00.00 Kastljósið Endursýndur þáttur frá því fyrr um kvöldið. 00.30 Dagskrárlok
20.45 Las Vegas 2 (24:24) (Centennial) 21.30 Shield (10:13) (Sérsveitin 4) The Shield gerist í Los Angeles og fjall- ar um sveit lögreglumanna sem virðist hafa nokkuð frjálsar hendur. Vic er ekki lengur aðalmaðurinn og verður að lúta stjórn nýja yfirmannsins, Mon- icu Rawling. Stranglega bönnuð börn- um. 22.15 Navy NCIS (15:23) (Glæpadeiid sjóhersins) Bönnuð börnum. 23.00 Twenty Four 4 (23:24) (24) Aöalhlutverkið leikur Kiefer Sutherland sem hefur sópað til sín við- urkenningum fyrir frammistöðu sína í myndaflokknum. Stranglega bönnuð börnum. 23.45 Cold Case 2 (21:23) (Óupplýst mál) Bönnuð börnum. 00.30 Twelve Monkeys (12 apar) Leyndardómurinn um apana 12 liggur á mörkum fortíðar og framtíð- ar, skynsemi og geðveiki, og draums og veruleika. Þetta er framtíðarsaga sem gerist árið 2035. Aðalhlutverk: Bruce Willis, Madeleine Stowe, Brad Pitt. Leik- stjóri erTerry Gilliam. 1995. Stranglega bönnuð börnum. 02.35 Fréttir og ísland í dag 03.55 ísland í bítið 05.55 Tónlistarmyndbönd frá PoppTíví
21.00 Brúðkaupsþátturinn Já Sjötta sumariö í röð fylgist Elín María Björnsdóttir með fólki sem hyggst ganga í hjónaband. 22.00 CSI: Miami 22.45 Jay Leno 23.30 The Contender (e) Sylvester Stallone og Sugar Ray Leon- ard eru meðframleiðendur þáttanna. 00.15 Cheers(e) 00.40 Boston Public 01.20 John Doe 01.35 Óstöðvandi tónlist
21.00 Joan Of Arcadia (1:23) 22.00 Kvöldþáttur Aðalþáttastjórnandi er Guðmundur Steingrimsson og honum til aðstoðar eru þaer Halldóra Rut Bjarnadóttir og Sigriður Pétursdóttir. 22.45 David Letterman 23.30 Miami Uncovered Miami er vinsæll áfangastaður, enda gleðin þar við völd allan sólarhringinn. Bönnuð bömum. 00.20 Friends (2:24) 00.45 Kvöldþáttur Aðalþáttastjórnarndi er Guðmundur Steingrímsson og honum til aðstoðar eru þær Halldóra Rut Bjarnadóttir og Sigriður Pétursdóttir. 01.30 Seinfeld (2:5)
21:00 Toyota-mótaröðin í golfi (Ostamótið) 22.00 Olíssport 22.30 David Letterman 23.15 US PGA 2005 - Monthly Hvað gerðist í bandarisku mótaröðinni í síðasta mánuði? Upprifjun á eftirminni- legum augnablikum á golfvellinum.
22.00 Strange Planet (Undarleg veröld) Rómantísk gamanmynd. Hér segir frá þremur konum sem búa saman í Sydney en þær eru allar nýkomnar úr vonlausum samböndum. Sagan segir lika frá þremur vinum og fyrir liggur að leiðir fólksins eiga eftir að liggja saman. 00.00 The Shrink Is In (Sáli er mættur) Aðalhlutverk: Courtney Cox, David Arquette. Leikstjóri er Ricard Benjam- in. 2000. Bönnuð bömum. 02.00 The Musketeer (Skyttan) Stórskemmtileg ævintýra- og hasar- mynd.Bönnuð bömum. 04.00 Strange Planet (Undarleg veröld) Bönnuð börnum.
Komdu og taktu með,
borðaðu á staðnum
eðafáðu sent heim
Vl« r.ondum heim:
109,110,111,112,113
5777000
I HiZZO. Pepporone, taukur, avcpptr, I
| ferskur hvitlaukur, jalepeno, sv. pipar
” Naples: Skinka, pepperone, sveppir, sv. ÓIMur, hvitlnukur. grœnn pipar, parmesan esg r-**-. I I
Toscana: Pepperone, jalapenos, rjómaostur.
onanas, sv. ólifur, hvitlaukur, sveppir, krydd
Hver er uppáhaldssjónvarpsmaðurinn eða -konan?
Kristinn ðrn Barkason
„Pétur Jóhann Sigfússon."
Baldur Ármann Stefáns-
son
„Sveppi, hann er svo
fyndinn."
Kristjana Jensdóttir
„Sveppi og Hemmi Gunn.
Þeir eru báðir svo hressir og
skemmtilegir."
Jenný Gunnarsdóttir
„Hemmi Gunn. Það geislaeaf
honum."
Sigurður Sveinsson
„Enginn sérstakur."
Erla Björnsdóttir
„Hálfdán Steinþórsson. Hann
er nefnilega maðurinn minn.“