blaðið - 21.10.2005, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005 blaðið
Fellibylurinn Wilma stefndi á Yucatan-skagann í gœr:
Mikill viðbúnaður út af Wilmu
Ferðamenn yf jrgefa Playa del Carmen í Mexíkó vegna yfirvofandi hættu af fellibylnum
Wilmu sem stefndi í gær á Yucatan-skagann.
Tugum þúsunda íbúa í Mexíkó, á
Kúbu og á Flórída var skipað að yfir-
gefa heimili sín á svæðum sem talið
er að séu í hættu vegna fellibylsins
Wilmu. Aðeins dró úr krafti felli-
bylsins í gærmorgun og var hann
orðinn að fjórða stigs byl í gær og
vindstyrkur hans um 240 km/klst.
Að minnsta kosti 13 hafa farist í
óveðrinu þar af 11 manns á Haítí þar
sem hann olli miklum flóðum og
aurskriðum. Óttast er að appelsínu-
og sykurreyrsuppskera á Flórída séu
í hættu vegna fellibylsins.
Veðurfræðingar spáðu því að felli-
bylurinn færi yfir Yucatan-skagann
í gær eða í dag en óvíst væri hvert
hann legði síðan leið sína. Meðal
annars er talið að bylurinn muni
skella á hinni vinsælu ferðamanna-
borg Cancun en fellibylurinn Emily
gekk yfir borgina og nágrenni henn-
ar í sumar. Þrátt fyrir að margir hafi
yfirgefið borgina er talið að enn séu
um 70.000 ferðamenn í henni.
Stjórnvöld í viðbragðsstöðu
Stjórnvöld í Hvíta húsinu lofuðu að
fylgjast vel með stöðu mála og von-
uðust til að sagan frá því í haust end-
urtaki sig ekki þegar brugðist var
seint og illa við því neyðarástandi
sem skapaðist í kjölfar fellibylsins
Katrínar. Neyðarvistir eru þegar
til reiðu í nokkrum borgum á Flór-
ída samkvæmt upplýsingum frá
Almannavörnum Bandaríkjanna.
Önnur lönd á svæðinu búast einnig
við hinu versta en víða í Mið-Amer-
íku og í Mexíkó eru menn enn að ná
sér eftir flóð og aurskriður í kjölfar
fellibylsins Stan sem varð yfir 1500
manns að fjörtjóni að því er talið er.
Á tímabili varð styrkur Wilmu
slíkur að hún varð öflugasti fellibyl-
ur sem mælst hefur og Bandaríska
fellibyljamiðstöðin á Miami varaði
við því að hann gæti hugsanlega
haft hörmungar og eyðileggingu í
för með sér. ■
Fuglaflensa
ógnar sjald-
gæfum teg-
undum
Fuglafræðingar hafa áhyggj-
ur af því að sumum sjaldgæf-
ustu fiiglategundum heims
stafi ógn af fuglaflensu. Tahð
er að sjúkdómurinn berist með
farfuglum frá Kína og Síberíu
suður á bóginn. Sérfræðingar
hafa ennfremur lýst yfir áhyggj-
um af því að allar tilraunir til
að farga villtum fuglum sem
grunur leikur á að séu haldnir
veirunni kunni að hafa alvar-
legar afleiðingar í för með sér.
Hætt er við því að hópar fugla
hrekist frá sínum hefðbundnu
svæðum sem leiðir til þess að
veiran dreifist enn víðar. Þá er
betur heima setið enn af stað
farið. Margar þeirra tegunda
sem um ræðir eru þegar í út-
rýmingarhættu og fuglaflensan
eða vanhugsaðar tilraunir til að
hefta útbreiðslu hennar kynnu
að hafa hræðilegar afleiðingar.
Bandaríkjamenn ogAfganar bregðast við sláandi sjónvarpsfrétt:
Rannsókn fyrirskipuð
á vanhelgun á líkum
Hamid Karzai forseti Afganistans segir að ríkisstjórn landsins muni hleypa af stokkun-
um rannsókn á því hvort bandarfskir hermenn hafi sýnt Ifkum tveggja Talibana vanvirð-
ingu.
Rannsókn hefur verið fyrirskipuð
á því hvort bandarískir hermenn í
Afganistan hafi sýnt líkum tveggja
stríðsmanna Talibana vanvirðingu
með því að kveikja í þeim. Banda-
ríski herinn og ríkisstjórn Afganist-
ans lýstu þessu yfir í gær og brugð-
ust þar með við sjónvarpsfrétt sem
sýnd var í sjónvarpi í Ástralíu á
dögunum. f sjónvarpsfréttinni sá-
ust bandarískir hermenn brenna
lík meintra Talibana rétt fyrir utan
þorpið Gonbaz, ekki langt frá borg-
inni Kandahar sem var eitt sinn höf-
uðvígi Talibana. „Sá verknaður sem
við erum vændir um er í mótsögn
við gildi okkar,“ sagði fulltrúi Banda-
ríkjahers sem hefur hafið rannsókn
á því sem gerðist.
Atburðurinn kann að
draga dilk á eftir sér
fslamskir klerkar vöruðu við því að
mótmæli kynnu að brjótast út í kjöl-
far atburðarins en ekki höfðu þó bor-
ist fregnir af neinni ólgu síðdegis í
gær. Mótmæli gegn Bandaríkjunum
brutust síðast út í maí og þá létu 15
manns lífið. „Þetta er andstætt fs-
lam. Þessar fréttir munu ganga fram
af Afgönum. Svo niðurlægjandi er
þetta,“ sagði Faiz Mohammed, leið-
togi múslíma sem spáir því að at-
burðurinn kunni að hafa alvarlegar
afleiðingar í för með sér.
„Við fordæmum harðlega alla van-
virðingu við lík hvort sem þau eru
af vinum okkar eða óvinum,“ sagði
talsmaður Hamid Karzai, forseta
Afganistans um leið og hann lýsti
því yfir að ríkisstjórnin hyggðist
hleypa af stokkunum eigin rann-
sókn á málinu. ■
DeLay fyr-
ir rétt
Tom DeLay,
þingmaður
Repúblikana-
flokksins á
Bandaríkja-
þingi, á að
mætafynrréttTomD
í Texas 1 fyrsta þingmaöur
sinn í dag. Repúblikana
Gefin hefur
verið út handtökuskipun á
hendur honum í tengslum við
rannsókn á meintum lögbrot-
um þingmannsins sem var
leiðtogi meirihluta Repúblik-
anaflokksins á þingi. Honum
er gert að sök að hafa brotið
lög um fjármögnun kosninga-
baráttu en hann neitar sök.
Fulltrúar DeLays gera lítið úr
handtökuskipuninni og segja
hana aðeins vera formsatriði.
Suzuki Ignis 4x4
Öflugur smájepplingur, snarpur og eyðslugrannur
&SUZUKI
...er lífsstíll!
SUZUKI BILAR HF.
Skeifunni 17. Sími 568 5100.
www.suzukibilar.is
Verð kr.1.740.000
eða 18.180 á mánuði*
Milljónafrímerki
Fjögur sjaldgæf frímerki seld-
ust á nærri þrjár milljónir
Bandaríkjadala (tæpar 180
milljónir íslenskra króna) á uppboði
í New York í fyrradag. Frímerkin
sem eru frá árinu 1918 skarta mynd
af Curtiss JN-4H-flugvélinni og eru
þau fyrstu flugpóstsfrímerkin sem
gefin voru út í Bandaríkjunum. Það
sem gerir þessi tilteknu merki sér-
stök er að þau eru gölluð en á þeim
er myndin af flugvélinni öfug. Að-
eins var ein hundrað frímerkja örk
af gölluðu merkjunum seld á sínum
tíma. William Robey keypti örkina
sama ár og hún var gefin út á 24 dali
en seldi hana viku síðar fyrir 15.000
dali eftir að fréttir af mistökunum
höfðu borist út. Síðan þá hefur örk-
inni verið skipt upp og einstaka frí-
merki selst á allt að 500.000 dali.