blaðið - 21.10.2005, Blaðsíða 18
18 I WEYTEWDUR
FÖSTUDAGUR 21.OKTÓBER 2005 blaðiö
Neytendasamtök krefjast viðbragða við háu matvœlaverði
Formenn flokka svara
ekki bréfum samtakanna
í janúar síðastliðnum sendu
Neytendsamtökin formönnum
flokkanna fyrirspurn um hátt
matvælaverð á fslandi. Einungis
tveir formenn sáu sér fært að
svara þó nú séu liðnir um níu
mánuðir, þrátt fyrir ítrekanir frá
Neytendasamtökunum. Formað-
ur Neytendasamtakanna segir
það ekki nógu gott að formenn
flokkanna hunsi samtökin.
Hagfræðistofnun Háskóla fslands
gaf út skýrslu í fyrra þar sem kom
fram að íslend-
aingar búa við
mun hærra mat-
vælaverð en aðr-
ar Evrópuþjóðir.
Samanburður
var gerður á
matvælaverði
á fslandi, Norð-
Guðjón A. Kristjáns- uHöndunum og
son, formaður Frjáls- nkJum Evrópu-
lynda flokksins sambandsins.
Niðurstöður
sýndu að matvælaverð á fslandi er
allt að 50% hærra en að meðaltali
í öðrum löndum á EES svæðinu. í
kjölfar þess sendu Neytendasamtök-
in formönnum flokkanna bréf þar
sem spurt var hvort þetta ástand
væri ásættanlegt, hver aðalástæðan
fyrir háu matvælaverði væri og hvað
þyrfti að gera til að lækka matvæla-
verð. Auk þess var spurt hvort ætti
að lækka eða fella niður virðisauka-
skatt á matvælum og hvort tollar og
vörugjöld á innlend og innflutt mat-
væli séu réttlætanleg þegar tekið er
tillit til hás matvælaverðs.
Hið opinbera svarar illa bréfum
Einungis Össur Skarphéðinsson,
þáverandi formaður Samfylking-
arinnar, og Steingrimur J. Sigfús-
son, formaður
Vinstri-Græna,
sáu sér fært
um að svara
fyrirspurnum
neytenda. Aðrir
flokksformenn
svöruðu ekki
þrátt fyrir ítrek-
anir af hálfu
Neytendasam-
takanna.Jóhann-
es Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna,
segist álíta að bréfin hafi komist í
hendur formannanna. „Annars er
eitthvað að sem ég geng út frá að
er ekki. Ég verð að segja það alveg
eins og er að mér finnst hið opin-
bera svara alltof illa bréfum, þar á
meðal ráðherrar." Jóhannes bætir
við að íslensk stjörnvöld geta gert
mjög margt til að breyta háu mat-
vælaverði ef vilji er fyrir hendi, þar
á meðal að fella niður tolla og vöru-
gjöld sem eru á matvörum og leggja
af innflutningskvóta.
Formenn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks svara ekki
Aðspurður hvað honum finnist um
dræmar undirtektir segir Jóhann-
es: „Ég hlýt að gagnrýna það mjög
þegar leiðtogar stjórnmálaflokk-
anna sjái ekki ástæðu til að svara
spurningum Neytendasamtakanna.
Það er engan veginn nógu gott að
formenn flokka hunsi á þennan hátt
jafnöflug félagasamtök og Neytenda-
samtökin." Blaðið reyndi að ná sam-
bandi við Geir H. Haarde, formann
Sjálfstæðisflokksins, og Halldór
Ásgrímsson, formann Framsóknar-
flokksins, en það tókst ekki, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Hins vegar
náðist samband
við Guðjón Arn-
ar Kristjánsson,
formann Frjáls-
lynda flokksins,
sem sagðist
muna eftir bréfi
Ney tendasam-
takanna. „ Ég
held ég muni eft-
ir þessu bréfi, ég
er nú ekki með
það hérna fyrir framan mig.“ Þegar
blaðamaður upplýsti Guðjón um að
Neytendasamtökin hefðu ekki feng-
ið svar frá Frjálslynda flokknum var
hann óviss um hvort það hefði ver-
ið sent eða ekki. „Það kann nú bara
að hafa klúðrast,“ sagði Guðjón en
bætti við að hann myndi athuga það
og hringja aftur í blaðamann.
Bréf frá Frjálslyndum misfórst
Stuttu síðar fengust þau svör frá
Guðjóni að bréfið hefði verið ritað
Össur J. Skarphéð-
insson, fyrrverandi
formaður Samfylk-
inqarinnar
Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður
Vinstri-Grænna
í febrúar 2005. „Við höfum samið
svar við spurningum Neytendasam-
takanna í febrúar 2005 og ég er með
það hérna fyrir framan mig. Það
er best að henda þessu á Neytenda-
samtökin ef það hefur misfarist ein-
hvern veginn, ég veit ekki hvernig
það hefur misfarist. Að öðru leyti
er þetta bara alveg klárt, við höfum
svarað þessu bréfi en ég skal ekkert
segja um hvers vegna þeim hefur
ekki borist það eða hvort við höfum
ekki sent það.“
svanhvit@vbl.is
Ráðgjafarstofa eykur þjónustu
Fjárhagsaðstoð
í gegnum netið
Ráðgjafarstofa um fjármál heim-
ilanna hefur bætt netspjalli við
þjónustu sína. Með netspjallinu
er unnt að komast í beint netsam-
band við starfsmenn Ráðgjafar-
stofu á opnunartíma stofunnar.
Notendur fara inn á heimasíðu
Ráðgjafarstofunnar, www.rad.
is, og fá beint samband við starfs-
mann.
Ráðgjafarstofa um fjármál
heimilanna aðstoðar einstaklinga
og fjölskyldur við að leysa úr
greiðsluerfiðleikum sínum með
því að veita ráðgjöf og almenna
fræðslu um fjármál heimilanna.
Auk netspjallsins er símaráðgjöf
á sama tíma og unnt er að senda
fyrirspurn á tölvupósti á netfang-
ið rad@rad.is. Ráðgjafarstofan
Netspjalliö auðveldar vonandi fólki aö
leita sér aðstoðar.
vonast til að Netspjallið auðveldi
fólki að stíga fyrstu skrefin til að
leita sér aðstoðar og að þetta auki
þjónustu við einstaklinga og fjöl-
skyldur á landsbyggðinni. ■
Þrektæki
Crass Tralner
Infiniti ST 655
Cmss Tralner
Infiniti ST 900
49.900 kr.
59.900 kr.
Hlaupabraut
Entire ET-2800
mótorl.5hp
hlaupaflötur 45x130 sm
hraði: 0.8-16 km
97.900 kr.
www.gap.ts
fardu inn á gap.is og skodadu tilboðin.
4 skoðaðu únialið á
^ ____... ic
Hlaupaabraut
Entire
mótor 1.5 hp
hlaupaflötur 45x130 sm
hraði: 0.8-16 km
Róðravél
Infiniti
65.900 kr.
Þrekhjóll
Infiniti JT 950
64.900 kr.
Hlaupabraut
Entire ET-3000
mótor3hp
hlaupaflötur 55x165 sm
hraði: 1-19 km/h
266.900 kr.
Þrekhjóll JT 95D
Infiniti Recumbent
69.900 kr.
Lyftlngagrirflur
1.990 kr.
20 kg. Pioner handlóðasett að
verðmæti 8.900 kr. fylgir öllum
þrektækjum og hlaupabrautum
FJALLAHJOLABUÐIN FAXAFENI 7
r AA/s r\ xv n.Á.i rAr 1/*'' A j n ...» •i.l.j/i A
S: 5200 200