blaðið - 21.10.2005, Blaðsíða 32

blaðið - 21.10.2005, Blaðsíða 32
32 I AFPREYING FðSTUDAGUR 21.OKTÓBER blaðiö SVAÐALEG ÚTGÁFA Innflytjendur tölvuleikja mirna vart aðra eins tíð í útgáfu tölvu- leikja eins og verið hefur þessa vikuna. I gær var sagt frá titlum sem komu út þann daginn en í dag heldur ævintýrið áfram þeg- ar sjö nýir leikir koma sér fyrir í hillum verslana. Þar af teljast íjórir þeirra til stórra leikja. Fimmti leikur Pro Evolution Soccer seríunnar kemur í dag fyrir PlayStation 2 og XBox en þetta er hugsanlega það eina sem getur ógnað FIFA veldi Electronic Arts. Þeir sem hafa áhuga á fótbolta, en eru ekki tilbúnir að taka á sig ábyrgð- ina sem fylgir því að stjórna leikmönnunum, geta gripið Football Manager 2006 fyrir PC. 1 honum er hellingur af nýjungum og má þar helstar telja, betra þjálfunarkerfi, öflugri ijölmiðla, meiri val- möguleika og fínstilltari spilun samkvæmt framleiðenda. Þeir sem minni áhuga hafa á að skjóta bolta en meiri á að skjóta mann og annan geta hlakkað til að sjá íjórða leik Quake ser- íunnar fyrir PC sem einnig fylg- ir með í sendingunni sem tekin verður upp í dag. Leikurinn tekur við þar sem frá var horfið í Quake II og er aðaláherslan lögð á að spila einn þótt vel sé mögulegt að spila gegn öðrum í netspili. Þá er von á slags- málaleiknum Warriors íyrir PlayStation 2 og XBox en hann er frá Rockstar sem einnig framleiða Grand Iheft Auto seríuna svo nóg ætti að vera af blóðinu. Leikurinn er byggður á samnefndri bíómynd frá 1979. Aðrir leikir sem koma í búðir í dag eru hernaðarleikurinn Shattered Union fyrir PC og XBox, Doom 3 Resurrection of Evil fyrir XBox og Mark Ecko’s Getting Up: Contest Under Pressure. Leikur með svona langt nafn hlýtur að vera góður. SU DOKU talnaþraut nr. 76 Leiðbeiningar Su Doku þrautin snýst um aó raða tölunum írá 1-9 lárétt og lóörétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aöeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 2 7 1 3 6 5 1 3 4 9 5 8 4 8 4 7 1 1 6 9 2 5 2 4 9 5 2 9 5 3 Lausn á 76. þraut veróur aö finna í blaöinu á morgun Lausn á 75. gátu 7 5 6 9 8 3 2 1 4 8 3 4 2 1 7 9 6 5 9 1 2 5 4 6 8 7 3 1 4 8 6 2 5 7 3 9 5 9 7 1 3 4 6 8 2 2 6 3 7 9 8 4 5 1 4 2 5 8 6 1 3 9 7 3 8 1 4 7 9 5 2 6 6 7 9 3 5 2 1 4 8 Wý könnun sam- taka tölvuleikja- framleiðenda hefur leitt í ljós að rúmlega 8o% þeirra sem vinna að gerð tölvu- leikja eru hvítir. 7,5% eru asískir, 2,0% eru svartir og 2,5% af Suður-Amer- ískum uppruna - restin er blanda af því besta. ac-Man og félagar hans, draugarnir Binky, Inky, Pinky og Clyde, snúa aftur 1 nýjum leik. Namco ætlar að fagna 25 ára afmæli stórstjörnunnar Pac-Man með útgáfu Pac-Man World 3 á haustmánuðum. Það er greinilegt að eitthvað hafa lýtalæknar fengið að krukka í þessum siunga draugabana því hann lítur út fyrir að vera yngri og hressari en nokkru sinni fyrr. Spilarar munu að öllum líkindum þurfa smástund til að kynnast nýju útliti gula mannsins en framleiðendur lofa betri leik en nokkru sinni fyrr. Til dæmis verður í fyrsta skipti hægt að kynnast hinni hliðinni á Pac-Man heimum og stjórna draugunum Pinky og Clyde gegn aðalhetjunni sjálfri. Þá fær Pac-Man aukið frelsi en hann verður frelsaður úr viðjum völundarhússins og 1í tær Fac-Man aukio trelsi en hann verður trelsaður ur viðjum volundarhussins og lænr að klifra, hoppa og lemja - svo eitthvað sé nefnt. Þeir sem eiga erfitt með að sætta sig við nýja útlitið geta kætt sig með því að upphaflegi Pac-Man spilakassaleikurinn fylgir með i pakkanum. Þrátt fyrir 25 ár í Pac-Man var hinn fullkomni leikur ekki kláraður fyrr en 1999. Billy Mitchell Flórídabúi kláraði öll 256 borð leiksins og náði í öll möguleg stig - 3.333.360 tals- ins. Pac-Man hreyfist 20% hraðar á auðum svæðum þegar einungis eitt líf er eftir. • Smurþjónusta • ■ Peruskipti • • Rafgeymar* FRAMLENGJUM i NOKKRA DAGA \ - Betri verð! JSZaZ7 Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110 Hvað „Heima hjá mér er hvort sem er aldrei neinn ... það nennir enginn að vera heima afþvt það er svo leiðinlegt... við erum löngu hætt að borða kvöldmat saman. Égnenni ekki að éta... égpíni í migsmá svofer ég inn (herbergi ogœli draslinu ílitlaplastpoka sem égfel inni ífataskápnum mínum. Égsafnaþeim í nokkra daga svo hendi égþeim þegar enginn sér til... égþarf ekkert að borða ... égdrekk magic ogþræla í migsamlokum stundum. Egsprautaði migeinu sinni... eða kærastinn minn gerði það... mérfannst það ógeðslega vont fyrst ... en kikkið var geðveikt... ég lá ígólfinu með lappirnar upp í loft ogþá fóru Ijósaperurnar að breytast ístjörnur og égfékkgeðveikt lagá heilann..." Úr leikritinu„hvað EF" sem var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu í gær. 540 Gólf leikhús og SÁÁ í samvinnu við Hafnarfjarðarleikhúsið standa að sýningunni en henni er beint til ungmenna og hafa fyrirtæki verið ötul við að bjóða nemendum skóla á sýningarnar og má sem dæmi nefna að Actavis hefur keypt upp fimm sýningar fyrir skóla í Hafnarfirði og Vífilfell hefur að sama skapi keypt aðgang fyrir nemendur skóla i nágrenni fyrirtækisins.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.