blaðið - 21.10.2005, Blaðsíða 31

blaðið - 21.10.2005, Blaðsíða 31
blaðið FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005 ÍPRÓTTIR I 31 Gonzalez fór loks til Liverpool Getraunir afhentu 15,5 milljónir í gær var boðað til fréttamannafundar á Hótel Nordica þar sem íslenskar Get- raunir afhentu sölufélögum fjárhæðir vegna áheita á síðastliðnu ári. Félögin fengu mismikið, eftir því hversu dug- legir menn voru á síðastliðnu ári í get- raunastarfinu. íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík er ennþá það félag sem fær hæstu áheitin og menn þar á bæ eru því duglegastir í getraunastarfinu. Þessir peningar koma sér að sjálfsögðu mjög vel fyrir íþróttafélögin í landinu og ljóst að þeir verða ekki týndir af trjánum eða eins og segir í fréttatil- kynningu Getrauna; „Hér gildir lög- mál Litlu gulu Hænunnar. Þeir sem Giggsþarf íaðgerð Ryan Giggs leikmaðurinn snjalli í liði Manchester United þarf að gangast undir skurðað- gerð vegna brotins kinnbeins. Giggs brotnaði í leik Manchest- er United og Lille í meistara- deild Evrópu á þriðjudagskvöld en leikur liðanna endaði o-o á Old Trafford. Ryan Giggs fékk olnbogaskot frá einum leik- manna franska liðsins með fyrr- greindum afleiðingum. Búist er við að Rayn Giggs verði frá keppni í að minnsta kosti sex vikur vegna þessa. Mikil forfóll eru í liði Manchester United en Quinton Fortune, Wes Brown, Louis Saha, Gabriel Heinze, Gary Neville og Roy Keane eru allir meiddir. Það er því víst að Manchester United bíður erfið- ur leikur við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á morgun. ■ Baptistafráí langan tíma Spænska stórliðið Real Madrid varð fyrir áfalli síðastliðinn miðvikudag þegar brasilíski snillingurinn Julio Baptista meiddist í leik gegn norska liðinu Rosenborg í Meistara- deildinni. Baptista sem var keyptur frá Sevilla síðastliðið sumar á um 1900 milljónir íslenskra króna varð að fara af velli meiddur á hné. I ljós hefur komið að meiðslin eru meiri en búist var við. Baptista tognaði á liðböndum á vinstra hné og ekki er reiknað með að hann spili fótbolta að minnsta kosti næstu 5-6 vikurnar. Þetta er mikið áfall fyrir Real Madrid en liðið vann Rosenborg 4-1 í leiknum á miðvikudag. Það er nokkuð ljóst að hann missir af leiknum í Noregi sem og væntanlega leiknum gegn Lyon í Meistaradeildinni ásamt því að missa úr nokkra leiki í spænsku deildarkeppninni. ■ taka þátt í að baka brauðið, fá sneiðar en hinir ekki“. I gær afhentu fslenskar Getraunir samtals 15,5 milljónir en heildarfjár- hæðin á síðasdiðnu ári var 67 milljón- ir. íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík fékk á síðastliðnu ári 8.377.278 krón- ur frá Getraunum. Brokey kom næst með 6.556.295 og KR-ingar í þriðja sæti með 5.031.621. Þessi þrjú félög standa nokkuð upp úr varðandi áheitapen- inga frá íslenskum Getraunum. Tveir heiðursmenn voru sértaklega heiðraðir af fslenskum Getraunum í gær á Hótel Nordica vegna dugnaðar í getraunum undanfarin ár og áratugi. Rauða ljónið og “Nestor” íþrótta- fréttamanna á íslandi, Bjarni Felixson, fékk viðurkenningu sem og Guðbrand- ur Stígur Ágústsson KR-ingur. Þar með er það foksins ljóst að Mark Gonzalez sem leikið hefur með spænska liðinu Albacete, fer tif enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool. Evr- ópumeistararnir reyndu að fá þenn- an snjalla 21. árs gamla kantmann síðastliðið sumar en það gekk ekki þar sem hann fékk ekki atvinnuleyfi á Engfandi. Ástæðan fyrir þeirri synj- un var sú að landslið Chile sem Gonz- alez leikur með, var að mati ensku vinnumálastofnunarinnar, of neðar- lega á styrkfeikalista FIFA (afþjóða knattspyrnusambandsins). Samkvæmt fréttum í gær á Eng- landi er það nú loks ljóst að Liverpo- ol hefur samið við leikmanninn til fjögurra ára en hann bíður nú eftir grænaljósinuhjávinnumálastofnun- inni og eða að fá evrópskt vegabréf. Gonzalez er nýbúinn að jafna sig eftir að hafa slitið krossband í hné en piltur þykir gríðarlega góður kantmaður og kannski að það vanda- mál rauða hersins sé loks að leysast en Rafa Benitez framkvæmdastjóri Liverpool hefur mikið reynt að fá al- vöru kantmann á Anfield. ■ 3PURninsRÞRTTumnn wEFSJt Splunkunýr spurningaþáttur um fótbolta, fótbolta og meiri fótbolta. SPARK er óhefðbundinn spurningaþáttur um fótbolta sem stjórnaö er af Stefáni Pálssyni sem jafnframt er höfundur spurninga. Honum til aðstoöar er stuðboltinn Þórhallur Dan, knattspyrnukappi meö meiru. Frumsýndur á SKJÁE/A/L/M og Enska Boltanum í kvöld, 21. október, kl. 20.00. EnSHÍ% B O LT I N /VfHr © SKJÁR EINN Laugardaga kl. 22.30 • Sunnudaga kl. 22.30 • Föstudaga kl. 19.30

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.