blaðið - 21.10.2005, Page 13
blaðið FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005
FRÉTTASKÝRING 113
I-
•■V
Lára Margrét Ragnarsdóttir sat
á alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
tólf ár en hlaut ekki náð fyrir augum
kjósenda í síðustu kosningum. Hún
þarf þó ekkert að leita til félagsmála-
yfirvalda eftir framfærslu, enda
starfar hún sem sérfræðingur hjá
utanríkisráðuneytinu í sérverkefn-
um, án þess að sú staða sé útskýrð
nánar. Svanfríður Jónasdóttir sat á
þingi í ein átta ár fyrir Þjóðvaka og
Samfylkinguna. Hún ákvað að gefa
ekki kost á sér í síðustu alþingiskosn-
ingum en hefur þó ekki setið auðum
höndum síðan. Hún á í dag sæti í
Útvarpsráði fyrir hönd Samfylking-
ar, situr í stjórn íslenskra orkurann-
sókna (ÍSÓR) sem er ríkisstofnun og
stjórnarmenn þar skipaðir beint af
iðnaðarráðherra, er varaformaður
Evrópusamtakanna og situr í nefnd
um flutning raforku.
Þjóðin situr uppi með reikninginn
Þeir fyrrum þingmenn og ráðherrar
sem skoðaðir voru í þessari úttekt
virðast ekki hafa verið taldir óheppi-
legir starfsmenn þegar að þeir snéru
aftur til baka á hinn almenna vinnu-
markað eftir langa setu á þinginu.
Þvert á móti virðist þeim eiginlega
öllum vegna nokkuð vel og eru flest-
ir í fleiri en einni vinnu. Því er erfitt
að sjá að þeir þurfi á auknum lífeyr-
isréttindum að halda fram yfir það
sem almennt tíðkast hjá þjóðinni. Á
sínum tíma lét Bjarni Benediktsson,
formaður allsherjarnefndar, Talna-
könnun framkvæma mat á möguleg-
um kostnaðarauka sem frumvarpið
myndi hafa í för með sér. Þær niður-
stöður áætluðu að kostnaður ríkis-
sjóðs vegna nýju laganna gætu orðið
frá 7 milljóna lækkun upp í 439 millj-
óna króna hækkun. Davíð Oddsson,
Bryndís Hlöðversdóttir
Svanfríður Jónasdóttir
fsólfur Gylfi Pálmason
Lára Margrét Ragnarsdóttir
þáverandi forsætisráðherra, sagði
reyndar í umræðum um frumvarp-
ið á sínum tíma að gera mætti ráð
fyrir því að útgjöld ríkisins á ár-
inu 2004 myndu einungis aukast
um tíu til 12 milljónir króna ef allt
væri með talið við þessi nýju lög.
Raunin virðist samt sem áður vera
víðs fjarri þessum áætlunum, eða
650 milljóna króna aukning. Því er
ljóst að kostnaður skattborgaranna
vegna þessa hefur keyrt fram úr
svartsýnustu spám. Ekki hefur þing-
mannaflóran endurnýjast síðan þá,
fyrrverandi þingmenn og ráðherrar
virðast ekki í miklum vandræðum
með að fá vinnur og áhyggjur um
óeðlileg vinnubrögð við ráðningu
í opinberar stöður eru fjarri því að
vera horfnar. Því virðast forsendur
eftirlaunalaganna brostnar en skatt-
greiðendur sitja samt sem áður uppi
með reikning upp á hundruð millj-
ónir króna.
t.juliusson@vbl.is
Finnur Ingólfsson
Svavar Gestsson
Guðmundur Árni Stefánsson
Davíð Oddsson
Friðrik Sophusson
Harpa Sjöfn
heitir nú Flligger litir
Endurbættar verslanir • Gott vöruval • Tilboð • Skemmtileg getraun
Opnunarhátíð
21. október!
Góð tilboð • Kaffi á könnunni
www.flugger.is
4-