blaðið - 21.10.2005, Blaðsíða 14
blaði
Otgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
TVÆR ÞJOÐIR
í EINU LANDI
að er löngu orðið tímabært að lækka skatta, ekki síst á þá lægst-
launuðu. Það ber því að fagna hugmyndum ASÍ þar sem gert
er ráð fyrir 14,75% skatti á laun sem eru undir 175 þúsund krón-
um. Staðreyndin er auðvitað sú að það er vart hægt að lifa á mikið
lægri launum - hvað sem Pétur Blöndal segir - það er því sjálfsagt
að ríkið reyni að aðstoða þá sem verst standa fjárhagslega með skatta-
lækkunum. Eina vandamálið er að þetta getur verið ákveðinn hvati
til að halda launum sínum í því hámarki - alla vega borgar sig ekki
að vera með laun sem eru rétt yfir mörkunum ef skattþrepið þar er
tæp 40%. Stökkið milli skattþrepanna gæti því verið of mikið. Það er
hins vegar full ástæða fyrir alþingismenn að fara að skoða skattamál-
in af meiri alvöru en verið hefur - ekki bara tekjuskatt heldur líka
fjármagnstekjuskatt, hátekjuskatt og virðisaukaskatt. Þá þarf að end-
urskoða tekjutengingu ýmissa bóta - ekki síst hjá eldri borgurum og
öryrkjum.
Annað mál þessu tengt. Athyglisvert viðtal birtist í Morgunblað-
inu í gær við Jóhann Ómarsson framkvæmdastjóra hjá íslandsbanka.
Hann segir að um 3500 fjölskyldur eigi meira en 100 milljónir króna í
skuldlausum eignum hér á landi. Gjáin milli þeirra sem eiga eitthvað
og þeirra sem þurfa að lifa á verkamannalaunum breikkar því enn
og er full ástæða til að hafa áhyggjur af þessari þróun. Auðvitað er
það gott ef fólk hefur góð laun en það hlýtur að vera spurning hvort
okkar litla land þolir nýja auðstétt sem lifir í raun í allt öðrum efna-
hagslegum heimi en aðrir þegnar. Þeim sem hafa auðgast, ekki bara á
hlutabréfum heldur líka fasteignabraski og ýmsu öðru, hefur fjölgað
verulega á örfáum árum. Fyrirtæki færast á sífellt færri hendur og svo
er nú komið að flest þeirrra stærstu eru í höndum sömu eða tengdra
aðila. Þetta er ógnvænleg þróun og ráðamenn hafa setið sem lamaðir
hjá án þess að aðhafast nokkuð. Það er ekkert annað en hneyksli að
stjórnmálamenn skuli ekki hafa haft dug til að gæta að almennum
og sanngjörnum leikreglum í okkar litla þjóðfélagi. Kannski er bara
þægilegra og áhættuminna að vera í liði með þeim sem í raun stjórna
landinu - viðskiptajöfrunum. Svari hver alþingismaður fyrir sig.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á f réttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 5103711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
UREN
Laugavegi 40
Sími.5611690
Úrvalaf hlýjum
og notalegum
peysum
14 I ÁLIT
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005 blaöiö
MfJA VATnSMÝRÍM.ca2oi6 |
#iW5TÆ©AHIÍ5
| UÝi r<*e5£rÍNN)
^IIFTld^UGAWliRiLW,
NÝJA RLFTAKES'
HRADÍRAUTnL
(kÝ SjiÍKRAWS
■tK'i gOyGWSTJCR4Bid.l^'
ISS. ÞR^TEKUíl EtfGíMtí
EFrfR hVJ 4P V/í) EÆ»t>UM
HKKí FLuGVÖLLitfW .
Ein lög, en Ölfusið
er undanskilið
Einhversstaðar lengst vestur á fjörð-
um gerðist það í sumar að framtaks-
samur ýtumaður ruddi slóða úr
einni eyðivíkinni ofan í aðra. Mál-
inu var vísað til lögreglu og þykir al-
varlegt ef menn leggja veg með þess-
um hætti án tilskilinna leyfa.
I hlíðum Ingólfsfjalls gerðist það
fyrir nokkrum misserum að fram-
takssamir námumenn lögðu veg
beina leið upp úr námunni sinni í
rótum fjallsins upp á fjallsins egg.
Lögregla var kölluð til en hún neitaði
að hafa afskipti af málinu. Það væri
of pólitískt. Umhverfisráðuneyti og
umhverfisstofnun voru kallaðar til
en þar sögðu menn humm og jæja
og nöguðu blýanta og gera víst enn.
Jarðvöðulsháttur...
Eftir japl, jaml og fuður í heilt ár tók
Skipulagsstofnun svo loks af skarið
og á hrós skilið. Stofnunin kvað upp
úr með að umrætt malarnám og veg-
lagning upp á fjallsins egg hefði ver-
ið ólögleg. Malarnám á fjallsbrún
eins sögufrægasta fjalls Islendinga
var loks stöðvað. Eftir sat sár í hlíð-
inni allt upp á brún og blasir við
hverjum þeim sem fer um héraðið
að efeki sé talað um þá sem þar búa
og hafa jarðvöðulsháttinn daglega
fyrir augum.
Svo leið misseri. Þá sótti námu-
eigandinn um það til hreppsins að
mega nú enn fara á fjallsins brún og
ýta þar niður nokkrum malarhlöss-
um sem var hvort sem er búið að
ryðja upp í hrúgu og hreppsyfirvöld
sem sitja á sveitarenda ofan í Þorláks-
höfn gátu ekki verið að hafa á móti
því. Enginn hefur síðan gáð hvaða
malarhlössum var ýtt niður enda
flest möl eins þegar ofan á jörð kem-
ur. Enn var farið upp hlíðina og ekki
bara notaðir vegirnir sem Skipulags-
stofnun úrskurðaði fyrir ári að væru
ólöglegir heldur lagðir aðrir, nýir og
betri. Enda þurfti nú að koma upp
með ýtunni olíutanki stórum. Við
sem súpum vatn úr lindum fjallsins,
neðan undir þessum tanki treystum
á að hann sé ekki mjög ryðgaður.
Bjarni Haröarson
Betra er að brjóta lögin...
Á meðan jarðýtan hamast á fjallsins
egg mallar í farvatninu ógnarlega
flókin skýrsla um mat á umhverfis-
áhrifum. Af pappírum þar um má
sjá að meðal annars er tekist á um
hvort ýta eigi mölinni allri niður
um eitt skarð eins og gert var í fyrra
eða hvort nota megi tvö. Og sjáan-
legt að enginn pappírsglámurinn
hefur haft fyrir að gá að því hvað ýtt
er niður um mörg skörð í dag!
Það er ennfremur greinilegt af
þeim bréfum sem fara milli Skipu-
lagsstofnunar og framkvæmdaaðila
að engum dettur í hug að bera fram-
kvæmdir framtíðarinnar saman við
þá fjallshlíð sem væri ef aldrei hefði
verið ruðst ólöglega upp fjallsins
hlíð. Það flókna og handónýta skrif-
ræðiskerfi skipulagsmála sem byggt
hefur verið upp gerir semsagt ráð
fyrir að sá sem framkvæmir fyrst
og spyr svo standi betur að vígi en
aulinn sem fer í að spyrja áður en
framkvæmt er.
Ölfusið er of nálægt
Það ku vera tugir blýantsmanna sem
fást við svokölluð umhverfismál og
enda búið að telja hverja holtasóley
á Eyjabökkum og hverja skel í aust-
firskum fjörðum.
En stundum dettur mér í hug að
Ölfusið sé of nálægt þessu fólki til að
það telji sér koma við hvað gerist þar.
Eða hvað varð af náttúruverndar-
hugsuninni þegar Alfreð og félagar
ákváðu að setja steinsteypuklumpa
ofan á öll græn og rauð hveraaugu
Hellisheiðarinnar, leggja þar vegi
þvers og kruss að ekki sé talað um
hjákátlega veglagningu Vegagerðar
ríkisins þvert yfir sjálft Kristnitöku-
hraunið eins og þar sé bara einhver
venjulegur mói engum til gagns.
Bjarni Harðarson
Klippt & skorið
klipptogskorid@vbl.is
„Hápunktur siOunnar er þó ósvífnir dálkar
undir gamla Þjóðviljaheitinu Klipp-og-skorið.
Þeireru oftmergjaðirog svíðurundan fjand-
ans saltinu sem þar er daglega stráð i svöður
stjórnmálamanna."
Össur Skarphéoinsson skrifar um þennan DALK A
HEIMASlÐU SINNI, OSSUR.HEXIA.NET, 20.10. 2005.
■ ■
Ossur fjallar um íslensku blöðin á
heimasíðu sinni í gær, en hann er
enn ástriðufullur blaðamaður og
blaðalesandi. Klipp-
ari tekur þessum
athugasemdum sem
hrósi, en Ijóst er að
Össur heldur mest
upp á skoðanasíður
blaðanna og hrósar
Blaðinu sérstaklega
fyrir forystugreinar um viðskiptaleg málefni,
enda þótt honum finnist það lengra til hægri
en hann kysi. Hann spáirþví jafnframt að Blað-
ið og Morgunblaðið renni saman áður en yfir
lýkur. Sagan er góð, en Klippari skilur ekki al-
veg hvað blöðin tvö ættu að græða á því.
Steinunn V. Óskarsdóttir borgar-
stjóri ereitthvað sérlega óheppin þeg-
ar kemur að kvenréttindaumræðu,
sem menn hefðu þó
haldið að væru hennar
aðal. Ekki er langt sfðan
hún lét afar óheppileg
ummæli falla um at-
vinnulausarkonurvegna
manneklu á ieikskólum
og í skólaseljum borgar-
innar og nú er hún komin
f vond mál vegna kvennafrídagsins. Steinunn
sendi tilmæli til stjórnenda á vinnustöðum
borgarinnar um að bregðast vel við óskum
kvenna um að leggja niður störf á mánudag,
en auðvitað þannig að þjónusta yrði ekki skert.
Finnst konum hjá borginni sem borgarstjóri lít-
ilsvirði störf sín fyrst hún telji að hægðarleikur
sé að halda uppi fullri þjónustu þó konur leggi
niður störf. Stefán Jón Hafstein samherji
hennar og keppinautur þótti á hinn bóginn
bregðast við af karlmennsku og jafnréttisanda
í senn þegar hann skoraði á kynbræður sína að
sýna ábyrgð á börnum f leik- og grunnskólum
á kvennafrídaginn.
Island fékk á þríðjudag hæstu einkunn
hjá Transparancy International, en það
er alþjóðleg stofnun, sem kortleggur
opinbera spillingu vftt og breitt á jarðkúlunni.
Þessi niðurstaða þarf þó ekki endilega að auka
hróður lands og þjóðar. I gær greindi Philadelp-
hia Daily News til dæmis frá rannsókninni und-
irfyrlrsögninni: Hverju erað stela á fslandi?