blaðið - 21.10.2005, Blaðsíða 20
20 I VEIÐI
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005 bla6Í6
Notum
Hlað-skot
OG BORÐUM
RJÚPUR Á
JÓLUNUM
RJÚPNAVEIÐI A AUSTURLANDI!
Bjóðum rjúpnaveiði í Breiðdal og
víðará Austurlandi. Glæsileg
gisting í veiðihúsinu Eyjarmeð
morgunverði, nestispakka og
kvöldverði.
Nýtt met i Skógá
www. hlad.is
Hlað ehf. • Bíldshöfða 12 • Sími 567 5333
Veiðiþjónustan Strengir
Símar 567 5204 - 660 6890
rít?—-
„Veiðisumarið í Skógá er það stysta á
landinu eða rétt um 70 veiðidagar en
veiðin fer vaxandi á hverju ári og því
til stuðnings má nefna að sumarið 2001
gaf 13 laxa en í sumar urðu þeir 311 lax-
arnir,“ segir Ásgeir Ásmundsson leigu-
taki árinnar, er hann kíkir yfir sumarið
og skoðar stöðuna.
„Méðalveiðin síðustu fjögur ár er
nú komin í 163 laxa og hefur hækkað
hratt síðustu tvö árin. Sumarið nú
byrjaði með miklum krafti og strax
eftir að fyrsti laxinn veiddist þá virt-
ust koma kröftugar göngur á hverju
flóði og botninn datt ekki úr göngum
fyrr en eftir mánaðamótin ágúst/sept.
Kuldinn f september dró verulega úr
veiðinni og því má segja að veiðin hefði
vel getað orðið meiri, einnig var mikill
lax í Kvernu sem gaf lítið miðað við
fiskmagn í tveimur hyljum. Veiðitíma-
bilinu lauk með bændadögum og nú
stendur klakveiðin yfir og segja má að
vel hafi gengið því nú þegar hefúr feng-
ist hellingur af laxi í ldakið og mest er
þaðúrKvernu.
Sé htið á nokkrar tölur um veiði þá
má sjá að júlí gefúr nú 47 laxa á móti 9
sumarið 2004, ágúst gaf 137 laxa á móti
120 sumarið 2004 og september gaf 116
laxa á móti 145 sumarið 2004. Hugan
gaf 147 laxa eða 53% og var Snældan þar
sterkust með 87 laxa og meðalþyngd-
in þetta sumarið reyndist vera 2,8 kg.
Stærstu laxarnir voru 12 pund“.
Hvernig gáfu svæðin?
„Svæði 1 gaf 33 laxa sem er mikill bati ffá
fyrri árum og ljóst að þetta svæði er að
koma sterkt inn, en hylur nr. 5 ( Kvísl-
ármót) gaf 18 laxa og bar af á svæði 1.
Svæði 2 gaf að þessu sinni 17 laxa og
var það hylur nr. 15, Mjódd sem gefur
best annað árið í röð eða 10 laxa. Svæði
3 kom mjög sterkt inn og nýir hyljir
komu góðir inn en hylur nr. 37 Geira-
strengur var góður að vanda og gaf 28
laxa. Svæði 4 hefur alltaf verið best og
Stóru - Ármót hafa borið af undanfarin
ár en nú báru við nýjar staðreyndir því
Ármótin gáfu aðeins 13 laxa á móti 87 í
fyrra og svæðið gaf í heild 128 laxa, en
hylur nr. 51 Raflínustrengur kom sterk-
ur inn og gaf 63 laxa, flestir þeirra voru
lúsugir laxar. Drangurinn kom næstur
með 39 laxa. Svæði 5 gaf 8 laxa og hylur
nr. 108 Birkihola gaf 5 laxa. Svæði 6 gaf
í sumar 63 laxa og þar kom nýr hylur
sterkur inn en mikið var af laxi þar í
lokvertíðar. Hylurnr. 112 Skógarsteinn
gaf 38 laxa. Veiðin dreifðist mjög vel yf-
ir Skógána og margir nýir hyljir komu
inn með fina veiði. Besta vikan var í
byrjun september og gaf hún 75 laxa.
Silungsveiðin var mjög góð eða 1034
fiskar og voru stærstu bleikjurnar 6
punda og 7 punda sjóbirtingur. Júh var
besti mánuðurinn með 499 fiska og
var vikan 22 - 28/7 með 144 fiska. 65%
aflans var á flugu og voru Nobbler og
Pecook bestu flugurnar. 600 silungar
veiddust í sjálfri Skógánni og dreifðust
vel um ánna“, segir Ásgeir. Veiðisumar-
ið er úti og stutt í það næsta. Klakveiðin
stenduryfirþessadagana. ■
vörðuheiði.
„Þetta var fínn labbitúr og við
fengum þó nokkuð af rjúpu,“ sagði
Þórarinn Sigþórsson sem var á
rjúpu á Fellsströnd.
Töluvert var um rjúpnaveiði-
menn á Bröttubrekku um síðustu
helgi, en þar var smalamennska
eins og í suður Dölum, en flestir
tóku tillit til aðstæðna á svæðinu.
Það er erfitt að henda reiður á
aflatölur en líklega hafa verið skotn-
ar nokkur þúsund af rjúpum víða
um land og flestir fengið vel í soð-
ið.
Margir ætla um helgina, veður-
spáin er miklu betri en síðustu
helgi.
Rjúpnaveiðin
Margir fengið
i jólamatinn
®|jjh
Bettinsoli
tvíhleypa er
frábœr kostur fyrir
rjúpnaveiðimanninn
J. Vilhjálmsson ehf.
Dunhaga 18.107 fteykjavík
Sími: 561*1950
j.vilhjalmsson@byssa.is
www.byssa.is
Byssusmíöl • Ðyssuvlðgerðlr - Byssusala
NQjar byssur * Notaðar byssur • fylglhtutlr
vððlur • Vöðluvlðgerðlr • Vöðlulelga • Btangarleiga
Umboö fyrir: Bioser, Sauer og Maueer riffla.
Schmidt & Bender, Pecar-Berlln og Mlnox ejónauka.
Niggeloh ótar og Recknaget ejónaukafeetlngar.
Rjúpnaveiðin byrjaði loksins aftur
á laugardaginn eftir tveggja ára hlé
og margir fóru til rjúpna. Slæmt
veður var fyrsta daginn.
Það er erfitt að segja til um fjölda
rjúpna sem hafa veiðst en það mesta
sem við höfum heyrt voru 120 rjúp-
ur margir saman og annar hópur
fékk 60 fugla, 8 saman.
„Það var klikkað veður þar sem
við voru fyrir vestan, en við fengum
nokkra fugla, en gengum okkur til
óbóta,“ sagði veiðimaður sem fékk
rjúpur í jólamatinn á fyrsta degi.
Einn hópur var vestur í Gufudal
og fékk 14 fugla, tveir saman.
„Það er aðalmálið að komast á
rjúpu og veiða hóflega, aflatölur
skipta engu máli lengur. Þetta var
fínt við fengum rjúpur og labbitúr-
inn var mjög góður“ sagði skotveiði-
maður, sem við heyrðum í á Holta-