blaðið - 21.10.2005, Side 22
22 I BESTI BITINW
FÖSTUDAGUR 21.OKTÓBER 2005 blaöiö
Humar
í hæsta gæðaflokki
Nú þegar farið er að kólna í veðri er fátt betra en að setjast niður í hádeginu og fá sér ljúffenga humar-
súpu. Fyrir þá sem vilja setjast niður á huggulegan stað og eiga rólega stund í hádeginu hvort sem er með
vinum eða vinnufélögum þá henta sjávaréttastaðirnir einkar vel og fátt er betra en að fá sér humarsúpu
til að fá smá hita í kroppinn. Andrúmsloftið á stöðunum er mjög rólegt sem hentar vel til til samnings-
gerða og spjalls enda er fólk í viðskiptalífinu áberandi á öllum stöðunum sem farið var á. íslenskar hum-
arsúpur eru löngu orðnar klassískar enda geta þær verið ótrúlega ljúffengur og algjör lúxus matur. Stað-
irnir sem valdir voru í Besta bitann eru allir þekkir fyrir að vera með betri stöðum bæjarins sem bjóða
upp á sjávarrétti. Andrúmsloftið á öllum stöðunum var mjög þægilegt þar sem ljúf tónlist hljómaði.
Himneskt bragð
Við Tjörnina er staður í gömlum anda þar sem
lagt er upp úr að hafa antík húsgögn og borð-
búnað. Stemningin á staðnum er mjög lúf og
ekki er hægt að komast hjá því að fá tilfinn-
ingu fyrir umhverfinu og taka þátt í þeirri ró-
legu stemningu sem einkennir staðinn. Hum-
arsúpan sem boðið er upp á Við Tjörnina er
hreint afbragð. Súpan er mjög bragðgóð með
hæfilegu magni af öllu og með einstaklega góð-
um koniaks undirtóni. Frá fyrstu matskeið
leikur koníakskeimurinn við bragðlaukana.
Rjómabragð er hæfilegt í súpunni og reynd-
ar virðist allt innihald súpunnar vera í góðu
jafnvægi. Súpan er létt og góð og humarinn í
henni er stinnur og bragðgóður. Framsetning
á súpunni er mjög hefðbundin og passar vel
við gamaldags borðbúnaðinn.
Humarsúpan á Við Tjörnina kostar 1400 og
er borin fram með einföldu hvítu brauðu og
smjöri.
Staður sem ber nafn með rentu
Humarhúsið er klassiskur staður í nútímaleg-
um stíl en hann er samt notalegur og á margan
hátt eins og að vera komin á fínan stað erlend-
is. Súpan á Humarhúsinu er bragðmikil með
mikið af humar. Humarinn er stór gæðahum-
ar og bragðast ákaflega vel. Það versta við hum-
arinn er stærðin en ekki er auðvelt að koma
humrinum upp í sig með skeið vegna stærðar-
innar og það hefði mátt bjóða upp á hníf til
að hægt væri að borða humarinn svo vel færi.
Súpan hjá Humarhúsinu er mjög matmikil því
hún hefur mikið magn af humri. Hún hefur
hæfilega mikinn rjóma og koníakskeim sem
leikur í munninum.
Súpan á Humarhúsinu kostar 1.350 og er bor-
in fram með brauðbollum og smjöri
Glæsileg og frumleg framsetning
Lækjarbrekka er huggulegur staður, útsýnið
út um gluggann og nærveran við miðbæinn er
skemmtileg. Á Lækjarbrekku er humarsúpan
mjög svo falleg í framsetningu og öðruvísi en
á hinum stöðunum. Hún er skreytt með olífu-
olíu og kryddjurtum sem gerir útlit súpunnar
mjög skemmtilegt. Humarinn var hvítlauks-
grillaður og mjög bragðgóður en passar ekki
alveg í súpuna þar sem bragðið af hvítlauksri-
stuðum humrinum er frekar yfirgnæfandi.
Humarinn hefði vel gengið einn sér en passaði
síður í súpuna. Súpan var þó mjög bragðgóð
og matmikil og þó ekki of þykk. Brauðið sem
borið var fram með súpunni var nýbakað á
staðnum.
Súpan á Lækjarbrekku kostar 1480 og er
borin fram með nýbökuðum brauðbollum,
smjöri og pestó.
Blaöið/Fríkki
Klassísk humarsúpa í gamla stílnum
Stemningin á Þrem Frökkum er mjög notaleg
og persónulegri en yfirleitt þekkist þar sem
kokkurinn kemur og heilsar upp á matargesti.
Staðurinn er þekktur fyrir afbragðs sjávarrétti
þar sem gerð er veisla úr fiskinum. Súpan hjá
Þrem Frökkum er mjög bragðmikil þar sem
humarinn er stinnur og bragðgóður. Súpan
er frekar þykk og skortir þann léttleika sem
er einkennandi þegar uppbakaðar súpur eru
annars vegar. Bragðið er þó klassískt og súpan
er góð, hefði þótt mátt vera meira jafnvægi í
koníakskeimnum. Brauðið sem borið var fram
var ekki mjög spennandi og of salt.
Súpan á Þrem Frökkum kostar 1180 og er
borin fram með brauði
sara@vbl.is
Verð kr.
69.900
Vélin sem þú hefur beðið eftir!
Finepix S9500 sameinar það besta úr venjulegum stafrænum myndavélum og D-SLR.
Innbyggð 28-300 mm linsa (10.7x)!
9.0 milljón díla Super CCD HR flaga með “Real Photo” tækni.
Aðeins 0,8 sekúndur að kveikja á sér og verða tökuklár! Tökutöf er aðeins 0,01 sekúnda!
Hægt að stilla handvirkt og stýring á aðdráttarlinsu er á linsuhringnum!
Vélin tekur kvikmyndir og hægt er að breyta aðdrætti meðan á töku stendur!
Með háhraða USB 2.0 tengi fyrir skráraflutning í tölvu.
Skór fyrir auka flass!
QöieŒBæaim
H FUJIFILM
Sjá nánar: www. fujifilm.is / www.ijosmyndavorur.is
Ljósmyndavörur Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 04501 Myndsmiðjan Egilsstöðum