blaðið - 21.10.2005, Síða 30
30 I ÍÞRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2005 blaðið
Sófaveisla í
habitat
15-50% afslattur*
Hvert fer Gunnar
Heiðar?
FOTBOLTADAGAR 21 & 22. OKTOBER
Kr .500.- Kr .5.500.- Kr .2.500.- Kr .7.500.-
Kr .1.500.-
mmmmmmmmmmmmmmmmmm
Jói útherji
knattspyrnuverslun m
Ármúli 36*108 Reykjavík
S.588 1560
Næg bílastæði - opið virka daga 10-18. laugardaga 11-16.
Askalind 1* Kópavogur • 568 9700
www.habitat.net • habitat@simnet.is
Frótba/tf
net
Mikið hefur verið rætt og ritað um
Gunnar Heiðar Þorvaldsson leik-
mann sænska liðsins Halmstad að
undanförnu í fjölmiðlum víða um
Evrópu. Gunnar Heiðar hefur verið
að spila frábærlega fyrir Halmstad
og hefur verið iðinn við að skora,
bæði í sænsku deildinni sem og í Evr-
ópukeppninni. Liði Halsmtad hefur
ekki gengið vel í vetur en hið sama
er ekki að segja um Gunnar Heiðar
sem er á sínu fyrsta ári sem atvinnu-
maður. Hann skorar og skorar og nú
er staðan sú að fjölmörg lið eru á eft-
ir kappanum.
Ensku úrvalsdeildarliðin Everton
og Birmingham City eru sögð líkleg
til að gera tilboð í Vestmannaeying-
inn unga en Gunnar Heiðar er 23 ára
gamall.
Þýska Bundesligu-liðið Hambur-
ger SV er einnig sagt hafa mikinn
áhuga á Gunnari Heiðari sem og
nokkur hollensk lið.
Gunnar Heiðar og félagar léku
í gær við Herthu Berlin í Evrópu-
keppninni og fór leikurinn fram í
Halsmtad í Svíþjóð.
„Þetta var náttúrulega gríðarlega
erfiður leikur fvrir okkur og þá sér-
staklega mig. Eg var einn frammi
og ég var dálítið einmana í fram-
línunni. Við áttum varla sjens í þá“,
sagði Gunnar Heiðar í spjalli við
Blaðið eftir leikinn gegn Herthu
Berlin í gær.
„En hvað með öll þessi lið sem eru
sögð hafa áhuga á að fá hann sem
leikmann?
„Ég hef ekkert heyrt af þessu, þann-
ig, en bara lesið um þetta á netinu.
Ég veit þó af áhuga nokkurra liða.
Ég veit voðalega lítið um þetta. Ég
sagði við Ólaf Garðarsson umboðs-
mann minn að hann ætti að sjá um
þetta og ég vildi sem minnst vita af
þessu fyrr en þessi mál væru klár“,
sagði Gunnar Heiðar.
„Ég á eitt ár eftir af samningi mín-
um við Halmstad, en honum lýkur
í október á næsta ári og það er það
sem ég einbeiti mér að núna, að
leika vel fyrir mitt lið”.
En truflar umræðan um áhuga
allra þessa liða, leikhans hjá Halmst-
ad?
„Nei, blessaður vertu maður, Ég
einbeiti mér bara að mínu. Mér var
reyndar sagt áðan af fréttamanni
sem var að taka viðtal við mig að
útsendarar frá hollenska liðinu
Hereenveen hafi verið á leiknum til
að fylgjast með mér. Þetta er ekkert
mál“.
En er ekki nokkuð ljóst að þú ferð
frá Halmstad?
„Ég veit það ekki. Það getur bara
vel farið svo. Ég veit voðalega lítið
um þetta.
Maður væri vissulega til í að taka
næsta skref upp á við en ég er nú
bara búinn að vera atvinnumaður f
eitt ár. Það er nægur tími fyrir mig
í þessu“, sagði Gunnar Heiðar Þor-
valdsson leikmaður með sænska lið-
inu Halmstad eftir leik gegn Herthu
Berlin í Evrópukeppninni í gær.
Mikið er rætt um Gunnar Heiðar
á spjallsíðum þessara liða og nægir
í því sambandi að nefna enska liðið
Everton en þar er gert ráð fyrir því
að Gunnar Heiðar verði leikmaður
Everton í janúarmánuði næstkom-
andi en þann mánuð verður mögu-
leiki fyrir leikmenn að skipta um
félag og ef ekki þá, verða leikmenn
að bíða næsta sumars. ■
llýr heimslisti alþjóða
skíðasambandsins
32 í öllum Evrópubikarmótum stór-
svigsins í vetur. Ekki er gert ráð fyrir
að Björgvin verði með í öllum mót-
um Heimsbikarkeppninnar í vetur
en taki þátt í sérvöldum keppnum.
Hans aðaláhersla verður þátttaka í
Evrópubikarnum.
Kristján Uni Óskarsson frá Ólafs-
firði, Kristinn Ingi Valsson frá Dal-
vík og Sindri Már Pálsson úr Breiða-
bliki í Kópavogi hafa einnig stórbætt
sig.
Það er því ljóst að stífar æfingar
og keppni karlalandsliðsins f Ástral-
íu og Nýja Sjálandi hafa skilað þess-
um bætta árangri.
Listann hér að ofan fengum við
sendan frá Skíðasamabandi Islands
og sýnir hann stöðu landsliðsins
okkar í alpagreinum á nýja heims-
listanum.
Landsliðið er nú við æfingar í Pitz-
tal í Austurríki fyrir utan Guðrúnu
Jónu Arinbjarnardóttur sem er í Sa-
as Fee í Sviss.
Dagný Linda hefur verið meidd og
frá keppni vegna hnémeiðsla og því
ekkert keppt að undanförnu en hún
er á fullu að æfa núna í Pitztal og bú-
ist við henni á fullri ferð í vetur. ■
Nýr heimslisti FIS(alþjóða skíðasam-
bandsins) var gefinn út í gær. List-
inn tekur gildi fyrir opnunarmót
heimsbikarsins í Sölden í Austurríki
á morgun. Landsliðsmenn íslands í
alpagreinum hafa stórbætt árangur
sinn á listanum. Björgvin Björgvins-
son frá Dalvík hefur enn og aftur
stórbætt sig og er nú í 77.sæti í svig-
inu en var í sæti númer 103 á síðasta
heimslista. Þá er Björgvin í i37.sæti
í stórsvigi en var í 347.sæti. Þetta er
gríðarlegur árangur hjá honum á
undanförnum misserum. Árangur
hans í Eyjaálfukeppninni í sumar
hefur sett hann í byrjunarnúmer 31-
Brun Svig Stórsvig Risasvig
01.07.05 22.10.05 01.07.05 22.10.05 01.07.05 22.10.05 01.07.05 22.10.05
Björgvin Björgvinsson 103 77 347 137
Kristján Uni Óskarsson 213 200 126 122 456 443 609 569
Kristinn Ingi Valsson 477 457 592 572
Sindri Már Pálsson 820 768 692 547 1278 1199 607 566
Dagný Linda Kristjánsd. 146 380 260 137
Guðrún J. Arinbjarnard. 637 662 538 563 692 717 886 911
■9
Q)
O)
O