blaðið - 21.10.2005, Side 37
blaöiö FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER
DAGSKRÁ I 37
Jordan vill
annað barn
Jordan hefur sagst tilbúin að eignast annað barn og segist vilja
eignast litla dóttur. Fyrirsætan á fyrir tvo syni en hefur nýlega
átt þann seinni. „Ég vill eignast stúlku, ég er sjálf mikið fyrir
stelpudót og hef allt bleikt inni hjá mér. Jordan hefur ný-
lega gifst söngvaranum Peter Andre en þau giftu sig fyrir
mánuði síðan en parið hóf samband eftir að hafa fallið
fyrir hvort öðru í sjónvarpsþættinum „I'm a celebrety
get me out of here“. ■
EITTHVAÐ FYRIR...
Svanhildur er með þáttinn „Island í dag" sem er á dagskrá Stöðvar 2.
tllfILÁ
Sirkus, Joan Of Arcadia, 20.00
Sagan af Jóhönnu af Örk færð í nú-
tímann. Táningsstelpan Joan er ný-
flutt til smábæjarins Arcadia þegar
skritnar uppákomur fara að henda
hana. Hún fer að fá skilaboð frá
Guði sem segir henni að gera alls
kyns hluti sem hún og gerir. Þessu
nýja hlutverki þarf hún síðan að
koma inn í daglega líf sitt sem reyn-
ist alls ekki auðvelt. Þáttaröðin var
tilnefnd til Emmy verðlauna auk
þess sem hún hlaut Peoples Choice
Award fyrir bestu dramaþættina.
Stöð 2, Idol Sjtörnuleit 3, 20:30
Rúmlega 1400 keppendur skráðu sig
til leiks í Idol - Stjörnuleit en haldin
voru áheyrnarpróf viða um land.
Nú víkur sögunni til Akureyrar þar
sem norðlenskir söngvarar létu til
sín taka. Hópur upprennandi söng-
stjarna mætti á Hótel KEA og freist-
aði þess að heilla dómnefndina upp
úr skónum. 1 næstu viku verður sýnt
frá áheyrnarprófum á Egilsstöðum.
2005.
Hvernig hefurðu það í dag?
Fínt. Það er bara megin stefna hjá mér að
hafa það fínt.
Hvenaer höfstu fyrst störf í fjölmiðlum?
Árið 1995 hóf ég störf sem blaðamaður
hjá Degi á Akureyri. Fór svo að vinna í
útvarpi, til 2003, en þá fór ég að vinna í
Kastijósinu.
Er starfið í fjölmiðlum öðruvísi en þú
hafðir ímyndað þér?
Ég veit það ekki, ég minnist þess ekki að
hafa nokkurn tíma reynt að ímynda mér
hvernig störf í fjölmiðlum væru.
Þannig að þú ætlaðir þér ekki að verða
fjölmiðlakona þegar þú varst lítil?
Nei. Svo lengi sem ég man eftir mér
ætlaði ég að verða eitthvað sem endaði
á -fræðingur. Ég var alveg til í að verða
fornleifafræðingurog ákvað snemma að
ég vildi verða lögfræðingur. Á tímabili
langaði mig líka til að verða dýralæknir.
aði á því að rassinn á mér var á skjánum.
Ég var eitthvað að þurrka framan úr Agli
Helgasyni sem var viðmælandi hjá okkur
og hafði sullað vatni framan í sig, hvernig
sem hann fór að því. Ég ákvað að vera
almennileg og þurrka framan úr honum í
góðmennsku minni. Svo byrjaði þátturinn
og á skjánum birtist rass!
Dreymdi þig eitthvað skemmtilegt í
nótt?
Nei, en mig hefur dreymt mjög mikið í
þessari viku. Meðal annars að klipparinn
minn var ekki við, svo ég fór í klippingu
hjá einhverri stelpu sem klippti mig stutt
og litaði hárið dökkt. Ég var utan við mig
og tók ekki eftir því strax, en argaði svo
á hana þegar ég uppgötvaði þetta. Svo
dreymdi mig líka að ég var að reyna að
kaupa húsið af Hannesi Hólmsteini. Mig
langaði mjög mikið að eiga þetta hús því
í því voru tvö baðherbergi. Draumfarir
mínar eru mjög steiktar á köflum.
Gætirðu lýst dæmigerðum degi í lífi
Svanhildar Hólm?
Ég vakna og fer niður og gef gullfiskunum
og köttunum. Svo kveiki ég á katlinum,
fer í bað, fer fram og fæ mér morgunmat.
Síðan les ég öll blöð sem ég kemst í, og
les fréttir á netinu og hlusta á morgun-
vaktina eða morgunsjónvarpið, eða á
Talstöðina. Mæti svo á fund í vinnunni,
og er þar allan daginn. Fer í.smink" um
sexleytið, og fer svo i útsendingu og er í
henni til hálf-átta. Hnýti svo nokkra lausa
enda áður en ég fer heim og hringi þar
nokkur símtöl sem tengjast vinnunni. Svo
les ég og horfi á sjónvarpið og dunda mér
eitthvað með fjölskyldunni. Þetta er venju-
legur virkur dagur, og ekki mikið pláss
fyrir neitt sem ekki tengist vinnunni.
Hver er uppáhaldstími dagsins?
Hann er þegar ég kem heim, það
er mjög gott.
Hefur eitthvað neyðarlegt
komið fyrir þig í útsendingu?
Neyðarlegi þröskuldurinn hjá
mér er frekar hár, svo það geta
alls konar neyðarlegir hlutir
gerst án þess að mér finnist
þeir neitt neyðarlegir. Ég tek
sjálfa mig ekki það alvarlega
að ég fari eitthvað hjá mér
þótt eitthvað fari úrskeiðis.
En ég held að ég verði að
nefna þegar þátturinn byrj-
Hver myndir þú vilja að væri lokaspurn-
ingin í þessu stutta spjalli?
Eg myndi vilja að hún væri: „Er eitthvað
að lokum?" og ég myndi svara: „Nei, mér
finnast þau fín."
Mel Gibson gefur
1 milljón dollara
til Mexikó
Kvikmyndastjarnan Mel
Gibson hefur ákveðið að
styrkja fórnarlömb hita-
stormsins í Mexikó um 1
milljón dollara. Stjarnan sem
var meðal annars í myndinni
Lethal Weapon vonast eftir að
taka næstu mynd sína Apocalypto
upp í Veracruz og hitti Vicente Fox
forseta Mexikó í vikunni. ■
Opið: Virka daga kl. 10 - 18, laugardaga kl. 11 - 16.