blaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 6

blaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLEHDAR FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 blaöiö Erlendir blaða- menn reynslu- aka Ðiscovery 3 hér á landi Um þessar mundir er hópur erlendrabflablaðamanna að reynslu- aka Discovery 3 á íslenska hálend- inu. Að ferðinni stendur Land Rover og er tilgangur hennar að gefa fjölmiðlafólkinu kost á að reyna úrvalsjeppann við ítrustu aðstæður. Land Rover hefur um árabil skipu- lagt slflcar aevintýraferðir um heim allan til að undirstrika sérstöðu Land Rover á 4x4 markaðinum. Að sögn Helgu Guðrúnar Jónasdóttur, kynningarstjóra B&L, hefur Land Rover eldd verið með sambærilega fjöhniðlakynningu hér á landi síðan 1998, þegar nýr Freelander var frumkynntur fyrir Bandaríkjamarkað. „Sú kynning tókst frábærlega og það er lfldega með hliðsjón af því sem Land Rover hefur komist að þeirri niðurstöðu að ísland væri kjörinn rammi fyrir Discovery 3“ Blaðamennirnir koma víða að, m.a. Bandarfkjunum, Kanada, Ástr- alíu, Frakklandi, Hollandi, Spáni og Japan, auk þess sem fulltrúi íslenskra blaðamanna verður með í för. Athygli vekur jafnffamt að auk blaðamannanna eru margir af æðstu stjórnendum Ford samsteyp- unnar með í för og er íslandsferðin að því leytinu óvenjuleg. Má þar nefna sem dæmi Colin Green, mark- aðsstjóra LRj AIKrammer, þróunar- stjóra Jaguar Land Rover og Stuart Dyblé, varaforstjóra Ford of Europe. Lœknisvottorð misnotuð: Ófrískar konur lengja fæðingarorlofið Grein í Læknablaðinu hefur vakið athygli. Töluvert virðist vera um að konur taki sér veik- indafrí áður en aðfœðingu kemur án þess að vera veikar. Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags fslands, skrifaði grein í Læknablaðið sem vakið hefur at- hygli. Þar vekur hann máls á þeirri tilhneigingu sem virðist ríkja hjá mörgum konum að þrýsta á um að fá útgefið vottorð um veikindi á með- göngu án þess að um raunveruleg veikindi sé að ræða. Sigurbjörn segir frá konu sem fór fram á vottorð frá honum og gaf hún ekki aðra ástæðu en þá að hún vildi hætta að vinna nokkrum vikum fyrir fæðingu og að hún vildi ekki skerða fæðingarorlof- ið við þá ráðstöfun. Læknirinn seg- ist hafa farið að skoða málið og gert úttekt á þessu hjá ákveðnu fyrirtæki hér í bæ og komið hafi í ljós að yfir- gnæfandi meirihluti þeirra kvenna sem fengið hefðu fæðingarorlof hafi lagt fram læknisvottorð um veikindi fyrir fæðinguna. „Við teljum umræð- una athyglisverða," segir Hrafnhild- ur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur hjá Samtökum atvinnulífsins. „Við höfum lengi viljað ræða þetta mál en það er mjög mikill þrýstingur á lækna að gefa út læknisvottorð í lok meðgöngu og ekkert sem kemur okkur á óvart íþessum fréttum. Það er oft þannig að það er óheppilegt að konur séu að vinna alveg fram að fæðingu. Þá hefðum við talið að þeg- ar fæðingarorlofið var lengt hefði verið eðlilegt að hluti lengingarinn- ar hefði verið tekinn fyrir fæðingu þannig að menn væru ekki að leika sér með læknisvottorðin." 90% óléttra tóku veikinda- leyfi fyrir fæðingu Hrafnhildur segir sögu Sigurbjörns ekki koma sér á óvart. „Fyrir nokkr- um árum gerði ég svipaða könnun innan fyrirtækis þar sem mikið var um að konur stæðu við vinnu sína. Niðurstaðan var sú að um 90% kvenna sem verið höfðu í fæðingar- orlofi á tímabilinu höfðu tekið veik- indaleyfi. Forsenda fyrir því að vera veikur samkvæmt kjarasamningum og lögum er sú að fólk sé óvinnu- fært vegna sjúkdóms. Meðganga sem ekki hefur í för með sér neinar aukaverkanir er ekki sjúkdómur. En það getur engu að síður verið mjög óráðlegt fyrir konu að vinna fram á síðasta dag. Þegar ég var að skoða þetta sá ég til dæmis að í Hollandi eru lögin þannig að kona skal vera heima síðustu fjórar vikurnar á með- göngunni. Það væri nú óráðlegt fyr- ir okkur að gera þetta að skyldu en ef að konan er ekki vinnufær, ætti hún að fara yfir á fæðingar- orlofið. Konur hafa rétt á að fara í fæðingarorlof mánuði fyrir fæðingu og nú þegar fæðingarorlofið er orðið þetta langt er ekkert óeðlilegt við það að þær nýti sér það.' Hrafnhildur segir hins vegar mik- inn þrýsting á lækna um að gefa út læknis- vottorð í stað þess að orlofið sé nýtt í það. „En það er ekki rétt notkun á læknisvottorði og það sem er at- hyglisvert er það að þetta hefur ekkert breyst þrátt fyrir að búið sé að lengja fæðingarorlofið.“ Hrafnhildur segir að fyrir fyr- irtæki þar sem margar konur vinni og reksturinn sé lítill sé þetta erfitt mál og að þetta geri konur veikari fyrir á vinnumark- aði. Samkeppniseftirlitið: Umferðarstofa misnotaði markaðs- ráðandi stöðu sína gagnvart Skýrr Samkeppniseftirlitið birti í gær þá niðurstöðu sína að Umferðarstofa hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir upplýs- ingamiðlun úr ökutækjaskrá og þannig brotið gegn samkeppnislög- um. Fyrst og fremst beindist mis- notkunin gegn kærandanum, Skýrr. Fram kemur að Umferðarstofa hafi meinað Skýrr um aðgang að ökutækjaskrá til að miðla upplýs- ingum úr skránni með tilteknum hætti. Ennfremur að hún hafi gert lögmönnum samkeppnis- hamlandi tilboð og jafnframt beitt Skýrr ólögmætri þvingun í viðræðum við fyrirtækið um end- ursölu á upplýsingum. 1 ákvörðuninni mælir Sam- keppniseftirlitið fyrir um að Um- ferðarstofa veiti fyrirtækjum, sem þess óska, þann aðgang að öku- tækjaskrá, sem geri þeim kleift að veita viðskiptavinum sínum sömu þjónustu og Umferðarstofa gerir, að því tilskildu að tækni- og öryggiskröfum sé fullnægt. Þá er mælt fyrir um fjárhagslegan aðskilnað samkeppnisrekstrar Umferðarstofu annars vegar og lögbundinnar starfsemi stofnun- arinnar hins vegar. Margvísieg misnotkun á aðstöðu Samkeppniseftirlitið telur aug- ljóst að Umferðarstofa hafi lög- um samkvæmt yfirburðastöðu og sé jafnframt með ráðandi stöðu á markaðinum fyrir upp- lýsingamiðlun úr ökutækjaskrá. í júní 2003 hafi Umferðarstofa far- ið að bjóða upp á nýja þjónustu í tengslum við upplýsingamiðlun úr ökutækjaskrá um Netið. Hún hafi hins vegar neitað öðrum, þar á meðal Skýrr, um aðgang að gögnum, sem þurfti til þess að veita sömu eða sambærilega þjón- ustu. Samkeppniseftirlitið bend- ir á að þó að Umferðarstofa hafi lögbundið hlutverk við ökutækja- skráningu hafi hún ekki einka- leyfi til upplýsingamiðlunar úr henni. Með fyrrgreindum aðgerð- um hafi hún því reynt að taka sér slíkt einkaleyfi án lagaheimildar og í því telur eftirlitið felast alvar- lega samkeppnishindrun. Þá er vikið að tilboði Umferð- arstofu um upplýsingagjöf til lögmanna, en í því var sett það skilyrði að þeir lögmenn sem óskuðu eftir kennitöluuppflett- ingum í ökutækjaskrá yrðu einn- ig að kaupa almennan aðgang að ökutækjaskrá i gegnum Um- ferðarstofu og aðra ekki. Þessa samtvinnun segir Samkeppniseft- irlitið skýra misnotkun Umferð- arstofu á markaðsráðandi stöðu og brot á samkeppnislögum. ■ Malarflutningabíll valt á hringtorginu á mótum Vesturiandsvegar og Reykjavegar í Mosfellsbæ um hádegisbil i gær. ökumaður bfisins meiddist Iftillega á hálsi og var flutt- ur á slysadeild til athugunar. Eiturlyfjalaus œska: Evrópuverkefni hrundið úr vör á Bessastöðum Borgarstjórinn í Reykjavík, Stein- unn V. Óskarsdóttir, Kristín Ing- ólfsdóttir, rektor Háskóla Islands, og Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, undirrituðu í gær samning um samstarf við stjórn evrópsks samstarfsverkefnis um eiturlyfjalausa æsku í álfunni. Athöfnin fór fram á Bessastöðum en forseti Islands, Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari verkefnisins. Við sama tækifæri var undirrit- aður samningur milli Reykjavíkur- borgar og Actavis Group um stuðn- ing Actavis við verkefnið. Actavis styrkir sérstaklega rannsóknir og forvarnaátak í fimm borgum: Viln- íus í Litháen, Belgrað í Serbíu, Sófíu í Búlgaríu, Miklagarði í Tyrklandi og Pétursborg í Rússlandi, en leggur einnig fjármuni til rannsóknarþátt- arins á íslandi. Verkefnið verður hið fyrsta sinnar tegundar og markar útrás íslensks rannsóknarstarfs í félagsvísindum og útflutning á íslenskri þekkingu og árangri í forvörnum. Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi, verður formaður evrópska stýrihópsins, sem leiðir verkefnið, og sjö manna íslensk verkefnisstjórn verður hon- um til ráðuneytis. I henni sitja full- trúar frá Reykjavíkurborg, Háskóla íslands, Háskólanum í Reykjavík og embætti forsetá Islands. I hverri þátttökuborg verða unn- ar kannanir að íslenskri fyrirmynd um notkun ungmenna á fíkniefn- um, viðhorf þeirra og aðstæður. Þær verða framkvæmdar árin 2006, 2008 og 2010. Með því móti á að mæla árangur af forvarnastarfi í borgunum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.